28. (2035). fundur
28. (2035). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
16.08.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2106536
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - viðauki nr. 3.
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2022. Um er að ræða breytingar á launaliðum fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2022 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki nr. 3.
„Í gildandi kjarasamningum Sambands ísl. sveitarfélaga eru tengiákvæði við lífskjarasamninga á almennum markaði um greiðslu hagvaxtarauka.
Forsendunefnd ASÍ og SA hefur staðfest að hagvaxtarauki að fjárhæð 10.500 kr. komi á öll taxtalaun frá 1. apríl 2022 og greiðist með launum þann 1. maí 2022.
Samband ísl. sveitarfélaga hefur gengið frá kjarasamningum við kennarafélögin um kjarasamninga við grunnskólakennara, leikskólakennara og tónlistarskólakennara. Kjarasamningarnir eru með gildistíma frá 1. janúar 2022.
Hækkun launaliðar sameiginlegs kostnaðar er tilkomin vegna ákvæða kjarasamninga 5,0 mkr og uppgjörs á launum bæjarstjóra 19,5 mkr
Ofangreindar hækkanir á launum á árinu 2022 eru metnar á 226,1 mkr. og skiptast þannig niður á einstaka málaflokka og deildir:
Fjölskyldusvið kr. 15.500.000
Fræðslusvið kr. 170.000.000
Menningarmál kr. 2.500.000
Æskulýðs- og íþróttamál kr. 6.200.000
Tæknideild kr. 2.600.000
Umhverfismál kr. 2.400.000
Sameiginlegur kostnaður kr. 24.500.000
Eignasjóður kr. 100.000
Þjónustumiðstöð kr. 2.000.000
Samveitur kr. 300.000
Samtals kr. 226.100.000
Fjárhagsáætlun 2022 gerir ráð fyrir fjárveitingu að fjárhæð 160 mkr. vegna sumarátaks ungs fólks. Áætlað er að raunkostnaður verði um 240 mkr. Ekki varð af þátttöku Vinnumálastofnunar í verkefninu á árinu 2022 eins og var árið 2021.
Sumarátak vegna vinnu ungs fólks kr. 80.000.000
kr.
Samtals hækkun launaliða kr. 306.100.000
Fjármögnun viðauka
Útgjaldaauka er mætt með varasjóði og hækkun á staðgreiðslu útsvars.
Varasjóður kr. -68.000.000 31916-7179
Staðgreiðsla útsvars kr. -238.100.000 00010-0021
Samtals kr. -306.100.000“
Málsnúmer 2206032
02
Lambhagi 20 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jeta ehf., kt. 530212-0840, leyfi til að byggja sólskála við núverandi einbýlishús að Lambhaga 20.
Málsnúmer 2206223
03
Kauptún 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Urriðakoti ehf., kt. 440505-2360, leyfi til að byggja við núverandi atvinnuhúsnæði að Kauptúni 4.
Málsnúmer 2111148
04
Lindarflöt 41 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Frey Gunnarssyni, kt. 120580-4779, leyfi til að byggja við og gera breytingar á innra skipulagi núverandi einbýlishúss að Lindarflöt 41.
Málsnúmer 2202488
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi fyrir golfvöll Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar og útivistarskóg Skógræktarfélags Garðabæjar í Smalaholti.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um verkefnalýsingu deiliskipulagstillögu fyrir svæði golfvallar Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar og útivistarskóg Skógræktarfélags Garðabæjar í Smalaholti, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2207039
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar vegna lóða við Garðatorg.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar varðandi lóðir við Garðatorg nr. 4 og 6, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir heimild fyrir verslanir og veitingastaði að nýta sér útisvæði. Tillagan skal grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 2205204
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa að Víkurgötu 7 um skiptingu raðhúsaeiningar í tvær íbúðir.
Málsnúmer 2208268
08
Tilkynning frá umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu varðandi samgönguviku 2022.
Málsnúmer 2201115
09
Innritun í leikskóla haustið 2022.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir minnisblaði, dags. 15. ágúst 2022 um stöðu innritunar í leikskóla en öllum börnum sem fædd eru í júní, júlí og ágúst 2021 hefur verið úthlutað dvöl á leikskóla í Garðabæ.
Halldóra Pétursdóttir, leikskólafulltrúi, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2203101
10
Gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2022-2023.
Bæjarráð vísar tillögu skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi gjaldskrá skólárið 2022-2023 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2208212
11
Tilkynning frá mennta- og barnamálaráðuneytinu varðandi drög að reglugerð um tengiliði og málstjóra samþéttingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerðu grein fyrir stöðu innleiðingar á samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna hjá Garðabæ.
Tilkynningin lögð fram og vísað til kynningar í fjölskylduráði, skólanefnd grunnskóla og leikskólanefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2201266
12
Framlög til stjórnmálaflokka 2022 - síðari hluti.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi skiptingu á greiðslu til stjórnmálasamtaka síðari hluta ársins samkvæmt fjárhagsáætlun 2022.
Framsóknarflokkur kr. 276.718
Viðreisn kr. 281.182
Sjálfstæðisflokkur kr.1.040.670
Garðabæjarlistinn kr. 443.097
Samtals: kr.2.041.667
Fyrir liggja gögn til staðfestingar á að ofangreind stjórnmálasamtök hafa sinnt upplýsingaskyldu sinni gagnvart Ríkisendurskoðun samkvæmt 5. gr. a. laga nr. 162/2006 um starfsemi stjórnmálasamtaka.
Málsnúmer 2111187
13
Tilboð í framkvæmdir við lóð Álftanesskóla.
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við endurbætur á lóð Álftanesskóla. Tilboðin hafa verið yfirfarin.
Topptækni ehf. kr. 93.771.200
Sumargarðar ehf. kr. 89.645.300
Mostak ehf. kr. 69.470.000
Garðyrkjuþjónustan ehf. kr. 86.551.500
Fagurverk ehf. kr. 94.635.800
Jarðvit ehf. kr. 77.592.890
Kostnaðaráætlun kr. 76.784.500
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Mostaks ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2208316
14
Umhverfishópar 2022 - greinargerð um sumarvinnu ungs fólks.
Lögð fram greinargerð yfirflokkstjóra umhverfishópa sumarið 2022.
Bæjarráð lýsir sérstakri ánægju með framkomna greinargerð um verkefni ungs fólk við umhverfisstörf í Garðabæ í sumar.