Lindarflöt 41 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
28. (2035). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Frey Gunnarssyni, kt. 120580-4779, leyfi til að byggja við og gera breytingar á innra skipulagi núverandi einbýlishúss að Lindarflöt 41.
Bæjarráð Garðabæjar
02
23. (2030). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Lindarflöt 41, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan var grenndarkynnt og barst athugasemd frá nágranna. Umsækjandi hefur gert breytingar á tillögunni sem nágranni hefur fallist á. Tillagan er samþykkt með þeirri breytingu.
Samþykkt tillaga um deiliskipulagsbreytingu skal send Skipulagsstofnun og auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Lindarflöt 41. Athugasemd sem barst í grenndarkynningu lögð fram.
Umsækjandi hefur gert þær breytingar á tillögunni að viðbygging færist að hluta til fjær lóðarmörkum.
Lagt fram skjal þar sem þeir sem athugasemd gerðu fallast á nýja útfærslu.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2. mgr.42.gr. og 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
4. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemd sem borist hefur.
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
06
1. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að brunagafl bílageymslu á lóðarmörkum verði 8,75 metrar en heimiluðu hámarkslengd brunagafls í deiliskipulagi Flata er er 7,5 metrar.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Lindarflatar nr. 11,13,39,40,42 og 43.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.