Beint í efni

4. fundur

24.03.2022
Skipulagsnefnd Garðabæjar

4. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

24.03.2022

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
  • Arnar Hannes Halldórsson - byggingarfulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2111064

01

Breyting á vaxtarmörkum svæðisskipulags í landi Garðabæjar. Aðal- og svæðisskipulagsbreyting.

Lögð fram verkefnislýsing að breytingu Svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2040 og tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.

Breyting svæðisskipulags felst í breytingu á vaxtamörkum í Smalaholti og Rjúpnahlíð.

Breyting aðalskipulags felst í nýrri landnotkun í Rjúpnahlíð og Rjúpnadal þar sem að opin svæði (Op) breytast í athafnasvæði (At) sem ná til um 20 hektara lands.

Í samræmi við 1.mgr.23.gr. og 1.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 samykkir skipulagsnefnd framlagða verkefnislýsingu og skal hún send svæðisskipulagsnefnd til meðferðar.

Málsnúmer 1912201

02

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 4. Stígakerfi í Upplandi

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2040 sem vísað hefur verið til forkynningar. Skipulagsstjóri leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að ekki verði gert ráð fyrir reiðleið yfir Urriðakotshraun og Tjarnholt og um línuveg að Gráhelluhrauni enda hafa landeigendur lýst sig mótfallna þeirri útfærslu.

Skipulagsnefnd bendir á að samkvæmt aðalskipulagi Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir reiðleið um Sléttuhlíð og Klifholt sem myndi stytta reiðleið milli hesthúsabyggða Spretts og Sörla til muna.

Málsnúmer 2202488

03

Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarstígur.

Skipulagsstjóri gerir grein fyrir því tækni-og umhverfissvið hefur fengið Landslag ehf til þess að móta tillögu að deiliskipulagi golfvallar og skógargarðs í Smalaholti og Skyggni í samræmi við þá stefnu sem sett er fram í rammahluta aðalskipulags á Þróunarsvæði B (Vífilsstaðalandi) sem Landslag kom að. Fallið er frá gerð lýsingar í sbr.3.mgr.40.gr.Skipulagslaga þar sem að allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi.

Málsnúmer 2102111

04

Víðiholt íbúðabyggð. Deiliskipulag

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt að lokinni auglýsingu ásamt innsendum athugasemdum og umsögnum.

Varðandi þau varnaðarorð sem fram koma í bókun heilbrigðisnefndar um nálægð hesthúsabyggðar við íbúðarbyggð þá telur skipulagsnefnd að sú nálægð sé í samræmi við sýn margra íbúa á Álftanesi um "sveit í borg" sem einkennir bæjarhlutann.

Skipulagsnefnd leggur til eftirfarandi breytingar á tillögunni:

- Íbúðareiningum fækkar úr 75 í 74. Raðhús næst Lyngholti fellt út.

- Byggingarreitir fjölbýlishúsa styttast um 4,5 m í suðurenda.

- Gert verði ráð fyrir 2 m breiðum stíg milli lóða í Asparholti og Víðiholti alla leið frá Breiðumýri að göngustíg milli Lyngholts og Apsarholts.

- Hámarkshæð raðhúsa lækkar úr 6,5 í 6,3.

- Hámarkshæð fjölbýlishúss lækkar úr 10 m í 9,1. Hámarkshæð lyftuhúss verði 10 m.

- Leiksvæði norðan við Víðiholt fellt út

- Bílastæðum fjölgar

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem deiliskipulag Víðiholts með ofangreindum breytingum í samræmi við 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.



Málsnúmer 2102110

05

Félagssvæði Sóta. Deiliskipulag.

Tillaga að deiliskipulagi hesthúsabyggðar á félagssvæði Sóta ásamt umsögnum og athugasemdum lögð fram. Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.

Málsnúmer 2112275

06

Holtstún - grenndarkynning á byggingarleyfi

Lögð fram umsókn landeiganda um byggingarleyfi fyrir 2 einbýlishúsum við tjarnarbakkann á milli Stekkjar og Asparvíkur.

Ekkert deiliskipulag hefur verið samþykkt á svæðinu en tillagan er innan landnotkunarreits fyrir íbúðarbyggð í aðalskipulagi. Byggingarnar eru í samræmi við byggðamyndstur innan landnotkunarreitsins.

Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Grenndarkynna skal eigendum Stekkjar, Asparvíkur, Tjarnar og Eyvindarholts sem og eigendum húsa við Austurtún, Norðurtún og Túngötu sem liggja að Norðurnesvegi.

Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 2103095

07

Urriðaholt norðurhluti 3. Deiliskipulagsbreyting. Háholt - Vinastræti.

Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 3 sem gerir ráð fyrir breytingum sem ná til lóðanna Vinastræti 20-28 og 30. Oddfellowreglan hyggst reisa byggingu undir starfsemi sýna á lóð númer 30.

Í deiliskipulagsbreytingunni felst að lóðamörkum er breytt. Bílakjallari Vinastrætis 30 stækkar og nær undir Vinastræti. Byggingareitum er breytt og byggingamagn eykst á lóð

Vinastrætis 30 en minnkar á lóð Vinarstrætis 22-28. Í heildina er um að ræða 872 fermetra aukningu byggingamagns.

Sett er kvöð um umferð og lagnir um Vörðuveg.

Kvöð er um samnýtingu bílastæða á lóðum Vinastrætis 30 og Vinarstrætis 22-28.

Tillagan gerir ekki ráð fyrir íbúðum á lóðunum.

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 2110128

08

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 8.Arnarnesháls/Arnarland

Lagðar fram þær umsagnir sem borist hafa vegna verkefnislýsingar sem auglýst hefur verið.

Málsnúmer 2110129

09

Arnarland. Deiliskipulag

Lagðar fram þær umsagnir sem borist hafa við auglýsta verklýsingu.

Baldur Ó.Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun:

"Undirritaður hefur áður rætt og gagnrýnt kynntar hugmyndir um uppbyggingu á s.k. Arnarlandi, norðan Arnarnesvegar - bæði á fundum skipulagsnefndar og einnig í bæjarstjórn.

Í fyrsta lagi að hugmyndir og fyrirætlan með svæðið skyldu ekki upphaflega fyrst bornar upp og ræddar í skipulagsnefnd. Það var ekki gert fyrr en eftir að samningar við Arnarland og tilheyrandi fyrirtæki höfðu verið undirritaðir og þegar ákveðið hvernig skyldi skipulagt og fyrir hvern. Það teljast vart lýðræðileg vinnubrögð.

Þá hefur undirritaður einnig gagnrýnt skipulagshugmyndina sjálfa sem byggir á að þar verði einungis íbúðir fyrir 50 ára og eldri. Þar verði því í raun samfélagslega einsleit barnlaus byggð. Fyrsta barnlausa hverfið í bæjarfélaginu.

Enda segir í mati Skipulagsstofnunar um þessi áform m.a . „Skipulagsstofnun vill undirstrika að blöndun byggðar felst ekki einungis í blöndun þjónustu, starfsemi og íbúða heldur einnig blöndun íbúðabyggðarinnar sjálfrar, þ.e. blöndun íbúðagerða og eignaforms (m.a hlutfall leiguíbúða)“ þá segir þar einnig „ Að mati Skipulagsstofnunar eru áform um íbúðir fyrir 50 ára og eldri ekki til þess fallin að styðja við þróun blandaðrar byggðar“

Blönduð byggð og íbúðagerð en er ein grunnforsenda vel heppnaðs og lifandi bæjarskipulags. Því ber að taka þessar athugsemdir Skipulagsstofnunar til alvarlegrar skoðunar og framkomnar skipulagshugmyndir til endurskoðunar.

Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd."

Málsnúmer 2108621

10

Mosagata leiksvæði. Breyting á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluti

Lögð fram tillaga að breyting deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir að göngustígur frá Mosagötu að göngustíg á milli lóða við Mosagötu og Holtsveg falli út ásamt leiksvæði. Um leið breytast mörk lóðarinnar Mosagata 4 sem stækkar til norðvestur.

Lögð fram athugasemd sem borist hefur ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem brugðist er við athugasemdinni.

Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar samþykkir skipulagsnefnd tillöguna sem breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipualgslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2112324

11

Grímsgata 2-4. Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 4 sem gerir ráð fyrir kvöð um 1 m háan hljóðvegg við horn Urriðaholtsstrætis og Grímsgötu eins og gert er ráð fyrir í deiliskipulag við Lautargötu.

Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum Urriðaholtsstrætis 26,28,30,32,34 og 36 sem og Vörðugötu 2.

Málsnúmer 2109356

12

Kauptún 4. Deiliskipulagsbreyting Kauptúns.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 4 og nágrennis að lokinni auglýsingu. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.

Málsnúmer 2203245

13

Faxatún 21 - breyta bílskúr í íbúð - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn til skipulagsnefndar um það hvort heimilað verði að fella niður kvöð deiliskipulags Silfurtúns um bílageymslu á lóðinni.

Svar: Skipulagsnefnd hafnar því að gera breytingu á kvöð um bílageymslu á lóð en bendir um leið á að það sé háð útfærslu hve stór sú bílageymsla getur verið.

Málsnúmer 2111148

14

Lindarflöt 41 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemd sem borist hefur.

Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 2202324

15

Umsögn um skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstræti.

Skýrsla lögð fram og innhald hennar rætt.Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir þeim aðgerðum sem fyrirhugað er að ráðast í.

Málsnúmer 2110264

16

Framtíðarspá út frá skipulags- og skólamálum í Garðabæ

Skýrsla lögð fram og innhald hennar rætt.

Málsnúmer 2202128

17

Póstbox í Garðabæ - Íslandspóstur

Sólveig Jóhannsdóttir greindi frá þeirri vinnu sem hefur farið fram við greiningu á þörf og staðsetningu fyrir póstbox á vegum Íslandspósts í bænum. Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 2110177

18

Hönnun - Útboð - Vetrarbraut 2. áfangi - Vífilsstaðarvegur - háholt_ gatnagerð og veitur

Lögð fram umsókn um veitingu framkvæmdaleyfis um 2.áfanga Vetrarbrautar. Gögn eru í samræmi við deiliskipulag.

Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi í samræmi við framlögð gögn sbr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2112150

19

Hönnun - Útboð - Efnislosun í Rjúpnadal

Lögð fram umsókn um veitingu framkvæmdaleyfis fyrir efnislosun í Rjúpnadal á því svæði sem skipulag gerir ráð fyrir kirkjugarði. Gögn eru í samræmi við deiliskipulag.

Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi í samræmi við framlögð gögn sbr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2110108

20

Hönnun - Útboð - Hnoðraholt norður - gatnagerð og lagnir

Lögð fram umsókn um veitingu framkvæmdaleyfis fyrir gatnagerð í Hnoðraholti norður. Gögn eru í samræmi við deiliskipulag.

Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi í samræmi við framlögð gögn sbr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2201501

21

Ljósvist utan lóðarmarka - leiðbeiningar

Skýrsla lögð fram og innhald hennar ræst.

Málsnúmer 2201437

22

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021

Niðurstaða könnunar lögð fram.

Málsnúmer 2203246

23

Nónsmári 1-7 og 9-15. Breyting á deiliskipulagi í Kópavogi

Lögð fram tillaga ð breytingu á deiliskipulags Nónsmára í Kópavogi sem liggur að bæjarmörkum við Arnarnesveg.

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir athugasemd við hækkun húsa um eina hæð þar sem að byggingar munu að öllum líkindum skyggja á útsýni úr íbúðum fjölbýlishúsa við Nónhæð í Garðabæ til norðurs.

Málsnúmer 2203294

24

Vatnsendahvarf. Forkynning á nýju deiliskipulagi í Kópavogi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillögurnar.

Málsnúmer 2203463

25

Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025. Breyting á á landnotkun og niðurfellingu á þynningarsvæði

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar auglýsir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breyting felst í að landnotkun á reit I3 og I4 er breytt í AT3 og AT4 og mörk þynningarsvæði álversins í Straumsvík eru feld niður.

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 2202354

25

Reykjanesbraut. Deiliskipulag í Hafnarfirði

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.