Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóða við Vinastræti.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (2033). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóða við Vinastræti 22-30 og háholts Urriðaholts. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum lóðanna Vinastræti 30 og Vinastræti 22-28. Byggingarmagn er aukið vegna stækkun bílakjallara.
Samþykkt tillaga skal send til meðferðar Skipulagsstofnunar með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
7. (903). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir m.a. ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum lóðanna Vinastræti 30 og Vinastræti 22-28. Byggingarmagn er aukið vegna stækkun bílakjallara. (Mál nr. 2103095)
Bæjarráð Garðabæjar
04
16. (2023). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir m.a. ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum lóðanna Vinastræti 30 og Vinastræti 22-28. Byggingarmagn er aukið vegna stækkun bílkjallara.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 3 sem nær til lóðanna Vinastræti 22-30 og Vinastræti 30 á háholti Urriðaholts.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að lóðamörkum er breytt. Bílakjallari Vinastrætis 30 stækkar og nær undir götuna. Byggingareitum er breytt og byggingamagn eykst á lóð Vinastrætis 30 en minnkar á lóð Vinarstrætis 22-28. Í heildina er um að ræða 872 fermetra aukningu byggingamagns.
Sett er kvöð um umferð og lagnir um Vinastræti.
Kvöð er um samnýtingu bílastæða á lóðum Vinastrætis 30 og Vinastrætis 22-28.
Ekki er gert ráð fyrir hámarksfjölda hæða eins og í gildandi skipulagi en hámarkshæð er skilgreind í sneiðingu. Hámarkshæð syðri byggingarreitar lóðar nr.22-28 lækkar úr 10,3 mys í 107,4 mys. Hámarkshæð hæsta hluta byggingarreits á lóð nr.30 lækkar úr 106,6 mys í 103,3 mys. Hámarkshæðir byggingarreits hækka úr 90,3 mys og 96,6 mys í 98,3 mys.
Stefnt er að því að félagsheimili Oddfellowreglunnar verði reist að Vinastræti 30.
Tillögurnar gera ekki ráð fyrir breytingu á nýtingu húsanna í deiliskipulagi og er því áfram um atvinnuhúsnæði að ræða.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillögum skulu fylgja skýringamyndir sem sýna breytingu á skuggavarpi og útisýni í aðliggjandi byggð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
4. fundur
Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 3 sem gerir ráð fyrir breytingum sem ná til lóðanna Vinastræti 20-28 og 30. Oddfellowreglan hyggst reisa byggingu undir starfsemi sýna á lóð númer 30.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að lóðamörkum er breytt. Bílakjallari Vinastrætis 30 stækkar og nær undir Vinastræti. Byggingareitum er breytt og byggingamagn eykst á lóð
Vinastrætis 30 en minnkar á lóð Vinarstrætis 22-28. Í heildina er um að ræða 872 fermetra aukningu byggingamagns.
Sett er kvöð um umferð og lagnir um Vörðuveg.
Kvöð er um samnýtingu bílastæða á lóðum Vinastrætis 30 og Vinarstrætis 22-28.
Tillagan gerir ekki ráð fyrir íbúðum á lóðunum.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
2. fundur
Fulltrúar lóðareiganda, Líknar-og styrktarsjóðus Oddfellowa, ásamt Birni Guðbrandssyni arkitekt kynntu hugmyndir um breytingar deiliskipulags á háholti Urriðaholts, við Vinastræti.
Tillögum vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
4. fundur
Stefán Veturliðarson fyrir hönd Oddfellow-reglunnar og Björn Guðbrandsson arkitekt hjá Arkís kynntu hugmyndir um breytingar á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 sem ná til háholtsins og bygginga á óbyggðum lóðum við Vinastræti. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.