16. (2023). fundur
16. (2023). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
03.05.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Úttekt vegna starfsemi sem fram fór í daggæslu og á leikskóla sem rekin var í Garðabæ með hléum á árunum 1996-2014.
Á fund bæjarráð kom Ellý Alda Þorsteinsdóttir og gerði grein fyrir úttekt vegna starfsemi sem fram fór í daggæslu og á leikskóla sem rekin var í Garðabæ með hléum á árunum 1996-2014.
Meginniðurstaða úttektarinnar er að á grunni þeirra gagna sem safnað hefur verið liggja ekki fyrir upplýsingar eða vísbendingar um að í umræddri starfsemi hafi börnum sem voru í vistun verið beitt ofbeldi utan lýsingar á tveimur atvikum frá einum starfsmanni. Í úttektinni er að finna ákveðna fyrirvara sem mikilvægt er að hafa í huga varðandi niðurstöðu.
Í úttektinni er sérstök grein gerð fyrir hvernig eftirliti var háttað á sínum tíma og breyttu verklagi samkvæmt verklagsreglum sem lagðar eru til grundvallar nú.
Úttektin verður kynnt foreldrum og öðrum aðilum sem rætt hefur verið við í tengslum við gerð úttektarinnar.
Á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið var Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur.
Fylgiskjöl
02
Andvaravellir 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Milena Saveria van der Heerik, kt. 201278-2799, leyfi til að bæta við kvist á þak hesthússins við Andvaravelli 3.
03
Brekkuás 2 -Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita tækni- og umhverfisviði Garðabæjar leyfi til að byggja íbúðarkjarna með sjö einstaklingsíbúðum við Brekkuás 2.
04
Hólmatún 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Láru Mörtu Fleckenstein, kt. 211179-5549, leyfi til að byggja yfir svalir við núverandi raðhús við Hólmatún 6.
05
Hólmatún 8- Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Herði Má Harðarsyni, kt. 151066-3139, leyfi til að byggja yfir svalir við núverandi raðhús við Hólmatún 8.
06
Hólmatún 10- Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Magnúsi Ólafssyni, kt. 250366-3379, leyfi til að byggja yfir svalir við núverandi raðhús við Hólmatún 10.
07
Hólmatún 10A- Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hauki Þór Sveinssyni, kt. 080972-5639, leyfi til að byggja yfir svalir við núverandi raðhús við Hólmatún 10A.
08
Þrastarlundur 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Oddi Péturssyni, kt. 051082-4359, leyfi til að byggja við núverandi einbýlishús við Þrastarlund 1.
09
Tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholti - Urriðaból.
Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við byggingu leikskóla í Urriðaholt - Urriðaból.
Þarfaþing hf. kr. 1.489.083.561
Fortis ehf. kr. 1.448.688.779
Kostnaðaráætlun kr. 1.189.168.816
Bæjarráð felur bæjarverkfræðingi að ræða við lægstbjóðanda varðandi skilyrði samkvæmt skilmálum útboðsins.
10
Útboðlýsing vegna framkvæmda við 2. áfanga Urriðaholtsskóla.
Lagt fram yfirlit yfir helstu stærðir og dagsetningar vegna fyrirhugaðs útboðs á 2. áfanga Urriðaholtsskóla - uppsteypa og fullnaðarfrágangur.
Bæjarstjóri upplýsti að KPMG er að vinna að greinargerð vegna mats á áhrifum framkvæmdarinnar á fjárhags sveitarfélagsins, sbr. 66. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011.
Þá voru lögð fram drög að kafla 0 í útboðslýsingu.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi forkynningu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar stígakerfi i upplandi Garðabæjar.
Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi forkynningu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar stígakerfi í upplandi Garðabæjar. Tillagan var forkynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum og tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni.
Athugasemdir og ábendingar sem borist hafa á kynningartíma liggja fyrir og eru til skoðunar hjá tækni og umhverfisviði.
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðanna við Lyngás 7 og 9.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðanna við Lyngás 7 og 9 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna hækkunar á nýtingarhlutfalli lóða.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Silfurtún er varðar hækkun á nýtingarhlutfalli lóða verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vörðugötu 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vörðugötu 2. Í tillögunni er gert ráð fyrir að byggingarreitur bílgeymslu stækki og að bílastæðum fjölgi en gestastæðum á lóð fækki. Byggingarmagn ofanjarðar helst óbreytt.
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 6.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits á lóðinni við Blikanes 6. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Blikaness 3,4,5,7 og 8 og Tjaldaness 3,5 og 7.
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi austur- og vesturhluta Urriðaholts vegna afmörkun svæðanna.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta og vesturhluta Urriðaholts er varðar afmörkun deiliskipulagssvæðanna.
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna aukningar á byggingarmagni og stækkun lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan var auglýst og liggja fyrir umsagnir umsagnaraðila. Í tillögunni felst að lóðin stækkar til vesturs um 16.866 m². Byggingarreitur stækkar til vesturs og hámarksbyggingamagn á lóð eykst úr 22.500 m² í 35.500 m². Fjöldi bílastæða eykst í samræmi við bílastæðakröfu sem er óbreytt, þ.e. 1 stæði fyrir hverja 30 m².
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem gerir m.a. ráð fyrir stækkun byggingarreits og auknu byggingarmagni á lóðinni við Kauptún 1.
19
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 3. hluta Urriðaholts vegna lóða við Vinastræti.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir m.a. ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum lóðanna Vinastræti 30 og Vinastræti 22-28. Byggingarmagn er aukið vegna stækkun bílkjallara.
20
Erindi Nemenda- og foreldrafélags blásarasveitar Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi styrk til endurnýjunar á jökkum blásarasveitar, dags. 27.04.22.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
21
Bréf Félags eldri borgara í Garðabæ varðandi framkvæmd samstarfssamnings, í apríl 2022.
Lagt fram og vísað til kynningar í öldungaráði
22
Erindi Foreldrajafnréttis um styrk til gerð fræðsluefnis, dags. 25.04.22.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
23
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 - breyting á hafnarsvæði, þéttingu byggðar við Suðurhöfn, Flensborgarhöfn og Hamarshöfn.
Lagt fram.
24
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi drög að samstarfssamning við Skátafélagið Vífil.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samstarfssamning við Skátafélagið Vífil.
25
Afgreiðsla menningar- og safnanefndar varðandi tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2022.
Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2022. Tilnefningin verður tilkynnt á menningaruppskeruhátíð miðvikudaginn 25 maí nk. í Sveinatungu.
26
Bréf Wat Phra Dhammakaja Búddisata félags á Íslandi varðandi nunnuklaustrið, dags. 26.04.22.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
27
Bréf Mast- matvælastofnunar varðandi upplýsingar vegna fuglaflensu, dags. 25.04.22.
Lagt fram og vísað til umfjöllunar umhverfisnefndar.
28
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - úthlutun styrkja.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja.
Garðakórinn 350.000
Stígamót 500.000
Samtök um kvennaathvarf 500.000
ADHD - samtökin 150.000
Samtökin 78 100.000
Sjálfsbjörg - Samvera og súpa 100.000
Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi 250.000
Bjarkahlíð -miðstöð fyrir þolendur ofbeldis 400.000
Kvennaráðgjöfin 250.000
Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins 100.000
Bæjarráð samþykki að vísa eftirfarandi styrkbeiðnum til afgreiðslu bæjarstjóra
Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn
Fjölskylduhjálp Ísland
29
Vetrarmýri - úthlutunarsamningar vegna sölu lóða.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvol um úthlutun lóða í Vetrarmýri.
30
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar (umhverfisvæn orkuöflun), 582. mál., dags. 29.04.22.
Lagt fram.