Hólmatún 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (2023). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Láru Mörtu Fleckenstein, kt. 211179-5549, leyfi til að byggja yfir svalir við núverandi raðhús við Hólmatún 6.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
2. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskikpulagsbreytingu Deildar og Landakots (Deiliskipulag í Bessastaðahreppi) að lokinni grenndarkynningu sem gerir ráð fyrir því að nýtingarhlutfall raðhúslóða hækki á lóðum númer 8 og 10 við Hólmatún. Deiliskipulag gerir ráð fyrir því að hámarksnýtingarhlutfall raðhúsa sé 0,40. Eftir breytingu er nýtingarhlutfall heimilað sem hér segir: Nr. 8 verður 0,57 , nr.10 verður 0,56.
Engar athugsemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Deildar og Landakots (Deiliskipulag í Bessastaðahreppi).
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
06
1. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að nýtingarhlutfall raðhúslóða hækki á lóðum númer 8 og 10. Deiliskipulag gerir ráð fyrir því að hámarksnýtingarhlutfall raðhúsa sé 0,40.
Ástæða þess að sótt er um breytinguna er að áformað er að byggja yfir svalir á rishæð vegna viðvarandi lekavandamála.
Eftir breytingu yrði nýtingarhlutfall heimilað sem hér segir:
Nr. 8 0,57
nr.10 0,56
Fyrir raðhúslengjuna alla 6,8,10 og 10a er hámarksbyggingarmagn 0,46.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Deildar og Landakots (Deiliskipulag í Bessastaðahreppi) í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Hólmatúns nr.3a, 4a,5,7,9,9a,11 og 12.
Tillaga að breytingu húss gerir ráð fyrir því að bílageymslur raðhúsanna í lengjunni verði að íverurýmum. Deiiskipulag heimilar bílageymslur en ekki er kveðið á um að gera skuli ráð fyrir þeim.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
08
9. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun húss sem gerir ráð fyrir að kvistir verði stækkaðir og byggðir yfir svalir.
Deiliskipulag heimilar nýtingu á risi og kvisti af ákveðinni stærð og lengd og einnig er heimilt að hafa svalir ofan á útbyggingum.
Nýtingarhlutfall fer yfir 0,4 eins og deiliskipulag gerir ráð fyrir.
Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu.
Vísað til umfjöllunar í skipulagsnefnd.