1. fundur
1. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
08.02.2022
Kl. 15:00 - 16:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
- Eysteinn Haraldsson
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Anna María Guðmundsdóttir
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2104212
01
HS Veitur lóð Bjarnastaðir - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að nýrri staðsetningu spennistöðvar við Bakkaveg á lóð Bjarnastaða að lokinni grenndarkynningu.
Athugasemd hefur borist frá eigendum Sveinskotsvarar 2 þar sem nýrri staðsetningu er mótmælt.
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 2108327
02
Hólmatún 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að nýtingarhlutfall raðhúslóða hækki á lóðum númer 8 og 10. Deiliskipulag gerir ráð fyrir því að hámarksnýtingarhlutfall raðhúsa sé 0,40.
Ástæða þess að sótt er um breytinguna er að áformað er að byggja yfir svalir á rishæð vegna viðvarandi lekavandamála.
Eftir breytingu yrði nýtingarhlutfall heimilað sem hér segir:
Nr. 8 0,57
nr.10 0,56
Fyrir raðhúslengjuna alla 6,8,10 og 10a er hámarksbyggingarmagn 0,46.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Deildar og Landakots (Deiliskipulag í Bessastaðahreppi) í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Hólmatúns nr.3a, 4a,5,7,9,9a,11 og 12.
Tillaga að breytingu húss gerir ráð fyrir því að bílageymslur raðhúsanna í lengjunni verði að íverurýmum. Deiiskipulag heimilar bílageymslur en ekki er kveðið á um að gera skuli ráð fyrir þeim.
Málsnúmer 2201452
03
Suðurnesvegur 6 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að stækka hesthúsið Suðurnesvegur 6 sem er innan þess svæðis sem tillaga að deiliskipulagi hesthúsahverfis sem nú er í auglýsingu nær til.
Skipulagsstjóri beinir því til fyrirspyrjanda að gera athugasemd við þá tillögu og óska eftir stækkun byggingarreits og hestagerðis. Athugasemdafrestur er til 16.febrúar. Æskilegt væri að þá liggi fyrir afstaða annara hesthúseigenda á svæðinu til stækkunartillögunnar.
Málsnúmer 2201527
04
Faxatún 21 - stækkun bílskúrs - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um óverulega stækkun bílageymslu og breytingu á notkun hennar úr bílageymslu í íverurými.
Svar skipulagsstjóra: Breyting á notkun bílageymslunnar kallar á deiliskipulagsbreytingu sem sækja þarf um sérstaklega. Stækkun eins og spurt er um rúmast innan ákvæða deiliskipulags.
Málsnúmer 2111178
05
Hlíðarbyggð 45 Viðbótargluggar - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um gerð glugga á neðri hæð á þeirri hlið sem veit að bakgarði.
Svar skipulagsstjóra: Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Hlíðarbyggð þar sem að deiliskipulag var samþykkt áður en fyrsta Aðalskipulag Garðabæjar hlaut staðfestingu. Ef samþykki annarra eigenda raðhúslengjunnar liggur fyrir eins og lög um fjöleignahús gerir ráð fyrir gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við breytinguna.
Málsnúmer 2111148
06
Lindarflöt 41 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að brunagafl bílageymslu á lóðarmörkum verði 8,75 metrar en heimiluðu hámarkslengd brunagafls í deiliskipulagi Flata er er 7,5 metrar.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Lindarflatar nr. 11,13,39,40,42 og 43.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2111302
07
Þrastarlundur 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækkar til austurs sem nemur tillögu að viðbyggingu sem sótt hefur verið um.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/201 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Þrastarlundar nr 2,3 og 4, Efstalundar nr.2 og 4, Gígjulundar 1 og 2 og Hörpulundar 1.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2202029
08
Kjóavellir. Deiliskipulagsbreyting í kjölfar lóðaúthlutunar
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kjóavalla innan Garðabæjar.
Breytingin nær til fyrirhugaðrar hesthúsabyggðar í Rjúpnahæð, sem liggur milli
gamla Andvarasvæðisins og Markavegar. Innan þess svæðis sem
deiliskipulagsbreytingin nær til er gert ráð fyrir uppbyggingu
hesthúsa við fimm götur sem ýmist tengjast Markavegi eða
Hattarvöllum.
Breytingin samræmist Aðalskipulagi Garðarbæjar 2016 - 2030, en
þar er landnotkunarflokkur skilgreindur sem íþróttasvæði, ætlað
hestaíþróttum (4.15 Íþ).
Lóðir hafa verið auglýstar til úthlutunar og er lóðarstærðum breytt
til samræmis við umsóknir sem hafa borist. Lega reiðstíga breytist
lítillega vegna aðlögunar að landi, en Markavegur liggur nokkuð
hátt yfir landi og er því nauðsynlegt að aðlaga lóðir, götur og stíga
að hæðarlegu vegarins. Endalóð við Orravelli, næst Markavegi,
hefur verið felld út vegna þessa.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
1. Húsum fækkar úr 56 í 53
2. Uppröðun og stærð lóða breytist lítillega
3. Hlutfall einbýlis og parhúsa breytist
4. Húsnúmer breytast og skiptast parhúsalóðir í a og b hluta
5. Byggingarreitur fyrir tengibyggingu milli lóða við Sunnuvelli
4-6
6. Dreifistöð færist til norðurs, nær Stjörnuvöllum
7. Reiðleið meðfram Markavegi og Elliðavatnsvegi færist fjær
vegum.
Skipulagssjóri metur breytinguna óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010, þar sem um tilfærslu á lóðum innan
óbyggðs svæðis er að ræða, byggingarmagn minnkar lítillega og
landnotkun helst óbreytt. Skipulagsstjóri telur að áhrif á
einstakra aðila varði ekki hagsmuni þeirra, þar sem úthlutun lóða og breyting deiliskipulags er
framkvæmd samtímis og lóðir aðlagaðar að þeim umsóknum sem
borist hafa. Grenndarkynning er því felld niður í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga.
Að öðru leyti gilda skilmálar deiliskipulags Kjóavalla m.s.br.
Senda skal tillöguna bæjarskipulagi Kópavogs til meðferðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2110307
09
Hraungata 26 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir einbýlishúss þar sem að ekki er að öllu leyti fylgt ákvæðum deiliskipulags um uppbrot húshliða auk þess sem gluggalaus rými í kjallara fara út fyrir byggingarreit að götu.
Að fengnu samráði við deiliskipulagshöfund gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað umrædd atriði varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2010451
10
Kirkjulundur 17 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn um viðbyggingu sem gerir ráð fyrir því að hún er 20 cm hærri en grenndarkynnt gögn. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað þetta atriði varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2201108
11
Holtsvegur 31 - Tilkynning um framkvæmdir
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir sjálfberandi gustlokun yfir heitum potti á þaki byggingar. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefnar vegna Lynggötu 2 árið 2019 (málsnr.1905363) gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfu 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga um deiliskipulagsbreytingu vegna umræddrara gustlokunar.
Málsnúmer 2201352
12
Grímsgata 6 Nýbygging - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Málsnúmer 2110330
13
Maríugata 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Málsnúmer 2110240
14
Hönnun - Útboð - Miðgarður Urriðaholt
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir lóð fyrir inntaks-og þjónustuhús fyrir gervigrasvöll. Staðsetning er norð-vestan við völlinn.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Þar sem að breytingin varða ekki hagsmuni annarra en Garðabæjar er grenndarkynning felld níður í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga.
Sýna skal staðsetningu ljósamastra við gervifrasvöll á uppdrætti en uppsetning þeirra er heimil samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
Málsnúmer 2201334
15
Kauptún 5. Bráðabirgðahúsnæði fyrir leikskóla í Urriðaholt. Breyting á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluti
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðar fyrir þjónustubyggingu neðst á útivistarsvæðinu í nyrðri græna geiranum. Lóðin kallast Holtsvegur 22 samkvæmt gildandi deiliskipulagi en tillaga gerir ráð fyrir á lóðin verði kölluð Kauptún 5.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst breyting á lögun lóðar og byggingarreits fyrir þjónustubyggingu.
Stærð lóðar er óbreytt 1.341 m². Lögun byggingarreits breytist til samræmis við lögun lóðar.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins er grenndarkynning felld niður í samræmi við 2.ml.3.gr.44.gr.sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.