Beint í efni

Kjóavellir. Deiliskipulagsbreyting í kjölfar lóðaúthlutunar

Málsnúmer 2202029

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

3. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kjóavalla innan Garðabæjar.
Breytingin nær til fyrirhugaðrar hesthúsabyggðar í Rjúpnahæð, sem liggur milli
gamla Andvarasvæðisins og Markavegar. Innan þess svæðis sem
deiliskipulagsbreytingin nær til er gert ráð fyrir uppbyggingu
hesthúsa við fimm götur sem ýmist tengjast Markavegi eða
Hattarvöllum.
Breytingin samræmist Aðalskipulagi Garðarbæjar 2016 - 2030, en
þar er landnotkunarflokkur skilgreindur sem íþróttasvæði, ætlað
hestaíþróttum (4.15 Íþ).
Lóðir hafa verið auglýstar til úthlutunar og er lóðarstærðum breytt
til samræmis við umsóknir sem hafa borist. Lega reiðstíga breytist
lítillega vegna aðlögunar að landi, en Markavegur liggur nokkuð
hátt yfir landi og er því nauðsynlegt að aðlaga lóðir, götur og stíga
að hæðarlegu vegarins. Endalóð við Orravelli, næst Markavegi,
hefur verið felld út vegna þessa.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
1. Húsum fækkar úr 56 í 53
2. Uppröðun og stærð lóða breytist lítillega
3. Hlutfall einbýlis og parhúsa breytist
4. Húsnúmer breytast og skiptast parhúsalóðir í a og b hluta
5. Byggingarreitur fyrir tengibyggingu milli lóða við Sunnuvelli
4-6
6. Dreifistöð færist til norðurs, nær Stjörnuvöllum
7. Reiðleið meðfram Markavegi og Elliðavatnsvegi færist fjær
vegum.
Skipulagssjóri metur breytinguna óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010, þar sem um tilfærslu á lóðum innan
óbyggðs svæðis er að ræða, byggingarmagn minnkar lítillega og
landnotkun helst óbreytt. Skipulagsstjóri telur að áhrif á
einstakra aðila varði ekki hagsmuni þeirra, þar sem úthlutun lóða og breyting deiliskipulags er
framkvæmd samtímis og lóðir aðlagaðar að þeim umsóknum sem
borist hafa. Grenndarkynning er því felld niður í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga.
Að öðru leyti gilda skilmálar deiliskipulags Kjóavalla m.s.br.
Senda skal tillöguna bæjarskipulagi Kópavogs til meðferðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.