HS Veitur lóð Bjarnastaðir - Bakkavegur 2 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
6. fundur
Verðum að taka aftur fyrir þar sem málinu var vísað til tækni og umhverfissviðs á síðasta fundi þar sem athugasemd barst.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Verðum að taka aftur fyrir þar sem málinu var vísað til tækni og umhverfissviðs á síðasta fundi þar sem athugasemd barst.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
3. fundur
Verðum að taka aftur fyrir þar sem málinu var vísað til tækni og umhverfissviðs á síðasta fundi þar sem athugasemd barst.
Lögð fram tillaga að afmörkun lóðar fyrir spennustöð við Bakkaveg á lóð Bjarnastaða að lokinni grenndarkynningu.
Athugasemd barst frá nágrönnum um nýja legu spennistöðvar.
Fallið er frá nýrri staðsetningu spennistöðvarinnar.
Lögð fram tillaga að afmörkun lóðar fyrir nýrri spennistöð á sama stað og hún hefur staðið um árabil. Stærð lóðar er 5 x 7,5 m og byggingarreitur er hálfan meter frá lóðarmörkum.Vestri skammhlið lóðar liggur að gangstétt við Bakkaveg.
Skipulagsstjóri samþykkir afmörkun lóðarinnar og fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 2.ml. 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
1. fundur
Lögð fram tillaga að nýrri staðsetningu spennistöðvar við Bakkaveg á lóð Bjarnastaða að lokinni grenndarkynningu.
Athugasemd hefur borist frá eigendum Sveinskotsvarar 2 þar sem nýrri staðsetningu er mótmælt.
Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
07
5. fundur
Lögð fram fyrirspurn Veitna fyrir nýrri staðsetningu spennistöðvar á lóð Bjarnastaða sem er í eigu Garðabæjar. Reisa á nýja stöð sem leysir nústandandi spennustöð af en hún stendur um 7 m norðar en staðurinn sem spurt er um.
Skipulagsstjóri vísar tillögu um nýja lóð fyrir spennistöð til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. og 5.mgr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Grenndarkynna skal eigendum Sveinskotsvarar 2, Hákotsvarar 1 og Þóroddarkots 2.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.