5. fundur
5. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
28.04.2021
Kl. 09:30 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson
- Anna María Guðmundsdóttir
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Strönd, 225 Garðabæ - gestastofa, Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn eiganda Strandar við Höfðabraut á Álftanesi hvort heimilað verði að reisa smáhýsi á lóðinni sem ætlað er til íveru (gestahús). Flatarmál yrði 15 m2.
Svar skipulagsstjóra: Þar sem að húsið er ætlað til íveru gilda ekki ákvæði byggingarreglugerðar um smáhýsi á lóð sem undanþegin eru byggingarleyfi. Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og þar af leiðandi enginn byggingarreitur skilgreindur þurfa allar byggingarleyfisumsóknir að undirgangast grenndarkynningarferli í samræmi við 44.gr.skipulagslaga. Ef tillögu er vísað til grenndarkynningar í samræmi við framangreinda grein þá þarf tillagan að vera í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Tvö hús á lóð ætluð til íveru (íbúðarhús og gestahús) geta seint talist til sama byggðamynsturs og byggð við Höfðabraut. Öðru máli gegnir um viðbyggingu við húsið.
Tillaga að deiliskipulagi svæðisins er í mótun en það er ekki sennilegt að samþykkt verði að heimila aukahús á lóð til íveru þar sem það hefði mikið fordæmisgildi í einbýlishúsabyggð.
Ef eingöngu er horft til staðsetningu smáhýsis sem ekki er ætlað til íveru er tillaga A ekki æskileg vegna nándar við næsta hús og staðsetningar í bili milli húsa, tillaga C kæmi til greina ef smáhýsið stendur lágt í landi og spillir ekki útsýni frá næsta húsi. Tillaga B væri æskilegasta staðsetningin en kallar á góða lausn ef ekki á að raska ásýnd hússins.
02
Hólmatún 25 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hólmatúns sem nær til parhúslóðarinnar Hólmatún 25 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur smáhýsum á lóð allt að 20 m2 að samanlögðum grunnfleti. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Hólmatúns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.1213/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
03
HS Veitur lóð Bjarnastaðir - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn Veitna fyrir nýrri staðsetningu spennistöðvar á lóð Bjarnastaða sem er í eigu Garðabæjar. Reisa á nýja stöð sem leysir nústandandi spennustöð af en hún stendur um 7 m norðar en staðurinn sem spurt er um.
Skipulagsstjóri vísar tillögu um nýja lóð fyrir spennistöð til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. og 5.mgr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Grenndarkynna skal eigendum Sveinskotsvarar 2, Hákotsvarar 1 og Þóroddarkots 2.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
04
Hraunhólar 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem sýndur er lóðarfrágangur sem er ekki í samræmi við samþykkt byggingarleyfi. Norðurhluti lóðar er ekki stallaður eins og samþykkt var og er því ásýnd lóðarinnar að Lynghólum öðru vísi en til stóð.
Skipulagsstjóri óskar eftir rökstuddri skýringu á því af hverju lóðin hefur verið útfærð með öðrum hætti en byggingarleyfi var veitt fyrir.
05
Breiðás 5 - stækkun bílskúrs Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um 10,5 m2 viðbyggingu við enda nústandandi bílageymslu. Árið 1981 var veitt byggingarleyfi fyrir viðbyggingunni en hún aldrei reist.
Deiliskipulag gerir ráð fyrir opnum byggingarreit á lóðinni og hefð er fyrir bílageymslu á þessum stað. Ef samþykki eigenda aðliggjandi lóðar liggur fyrir þar sem að bílageymslan liggur að lóðarmörkum gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við byggingarleyfi sé veitt fyrir stækkuninni.
06
Sunnuflöt 17 - dsk breyting
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
07
Seinakur 6 -Umsókn um byggingarleyfi
Að mati skipulagsstjóra er innsend tillaga í samræmi við deiliskipluag Akra.
08
Espilundur 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
09
Brekkubyggð 75 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um nýjar útidyr á suðurhlið raðhússin Brekkubyggð 75. Skipulagsstjóri bendir á að tillagan kalli á umsókn um byggingarleyfi sem útlitsbreyting. Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi í Brekkubyggð að neðanverðu skal vísa umsókn um byggingarleyfi til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga. Með vísan í 3.mgr.sömu greinar fellir skipulagsstjóri grenndarkynningu niður þar sem að umsóknin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda. Þó skal bent á að samþykki eigenda á sömu lóð þarf ef gera á breytingar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
10
Austurhraun 7 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
11
Víkurgata 17 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Urriðaholts vestur í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
12
Kinnargata 92 - stækkun bílakjallara -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um innihald fyrirspurnar. Fyrirspurn og umsögn vísað til skipulagsnefndar.
13
Holtsvegur 45 - girðing -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Umsögn deiliskipulagshöfundar um innihald fyrirspurnar lögð fram. Skipulagssstjóri tekur undir umsögnina og er í henni að finna svar við fyrirspurninni.
14
Sveinskotsvör 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir skyggni í tengslum við stofu sem nær vel út fyrir byggingarreit á götuhlið með burðarsúlu utan byggingarreits.Ekki er kveðið sérstaklega á um skyggni í deiliskipulagsskilmálum en byggingar skulu vera innan byggingarreits. Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags í samræmi við 2.mgr.43.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar. Grenndarkýnna skal eigendum Bjarnastaðavarar 1 og 2a, Sviðholtsvarar 1 og Sveinskotsvarar 2,3 og 4. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
15
Maríugata 13-15 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi m.a. um fjölgun íbúa. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
16
Maríugata 9-11 deiliskipulagsbreyting - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi m.a. um fjölgun íbúa. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
17
Ögurás 1-7 svalir og pallur með opnun á 1-2 hæð - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirpurn hönnuðar þar sem spurt er hvort heimilað verði að yfirbyggðarsvalir fari lítillega út fyrir byggingarreit á einum stað.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað yfirbyggðar svalir varða sem ná lítillega út fyrir byggingarreit. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.