Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 9-11.

Málsnúmer 2103205

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

32 (1990). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 9-11. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 903.856 á íbúð m.v. BVT 780,7 stig í ágúst 2021 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Auglýsingu lokið engar athugasemdir

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta sem gerir ráð fyrir því að fjölgað verði um fjórar íbúðir stærri en 90 m2 og fjórar íbúðir minni en 90 m2. Bílastæðum á lóð fjölgar til samræmis við fjölgun íbúða. Tillagana var í auglýsingu frá 15.júní til 27.júlí sl.
Engar athugasemdir bárust við tillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

7. (885). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 9-11 sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 34 í 42.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 891.931 á íbúð m.v. BVT 770,4 stig í maí 2021 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi. (Mál nr. 2103205)

Bæjarráð Garðabæjar

04

16. (1974). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 9-11 sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 34 í 42.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 891.931 á íbúð m.v. BVT 770,4 stig í maí 2021 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta sem gerir ráð fyrir því að fjölgað verði um fjórar íbúðir stærri en 90 m2 og fjórar íbúðir minni en 90 m2. Bílastæðum á lóð fjölgar til samræmis við fjölgun íbúða.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

6. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

07

5. fundur

Lögð fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi m.a. um fjölgun íbúa. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

5. fundur

Vísað til tækni- og umhverfissviðs til nánari skoðunar með lóðarhafa.