7. (885). fundur
7. (885). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
06.05.2021
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Gunnar Valur Gíslason
- Jóna Sæmundsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Björg Fenger
- Gunnar Einarsson
- Sara Dögg Svanhildardóttir
- Valborg Ösp Á. Warén
- Harpa Þorsteinsdóttir
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vefsíðu bæjarins.
Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. apríl 2021 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2104022F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 20/4 ´21.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma og lagði fram eftirfarandi bókun.
Það eru vond vinnubrögð af formanni bæjarráðs að heimila bókun, þar sem gagnrýni á nafngreindan bæjarfulltrúa sem ekki á seturétt í bæjarráði, er heimiluð. Það eru enn verri vinnubrögð af formanni að standa fyrir slíkum vinnubrögðum sjálf í stað þess að taka þann málflutning upp í bæjarstjórn, þar sem við báðar eigum sæti. Upplýsingar um alvarlega stöðu um biðlista og innritunarvanda í leikskóla Garðabæjar komu fram á fundi leikskólaráðs þann 17. mars 2021. Þennan vanda þarf að leysa varanlega með byggingu nýs leikskóla en ekki með upphrópunum gagnvart þeim sem vekja athygli á vandanum.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Valborg Ösp Á Warén, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Gunnar Einarsson, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Almar Guðmundsson, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Valborg Ösp Á Warén, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Gunnar Einarsson, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Í þeim málflutningi sem komið hefur fram er mér það ljóst að Garðabær hefur notið góðs af þeirri íbúasamsetningu sem hefur verið í bænum undanfarin ár. Leikskólar hafa vel staðið undir þeirri íbúafjölgun sem hefur sem hefur átt sér stað enda ekki verið mikil uppbygging húsnæða sem henta yngra fjölskyldufólki. Því virðist það vera nokkuð ljóst að það hefur komið meirihluta í opna skjöldu sú hraða uppbygging og þá sérstaklega aðsókn barnafjölskylda í Urriðaholt. Afleiðing þess að hafa misreiknað íbúaþróun er sú að uppbygging mikilvægra innviða í þágu barnafjölskyldna er vanáætluð."
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2104032F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 27/4 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 10. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi kolefnisfótspor höfuðborgarsvæðisins, dags 23.04.21 og 11. tl. Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samræmingu úrgangsflokkunar, dags 23.04.21.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., Betri Garðabær - hugmyndasöfnun - íbúakosning 2021, 4.. tl., Bréf Umhverfisstofnunar varðandi kynningu á endurskoðaðri tillögu að friðlýsingu og stækkun fólkvangs í Garðahrauni efra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 7. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um innviðargjöld í Urriðaholti.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi . tl., Betri Garðabær - hugmyndasöfnun - íbúakosning 2021, 4. tl., bréf Umhverfisstofnunar varðandi kynningu á endurskoðaðri tillögu að friðlýsingu og stækkun fólkvangs í Garðahrauni efra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., bréf Trés lífsins, varðandi lóð fyrir byggingu bálstofu og höfuðstöðva í Rjúpnadal.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., bréf umhverfisstofnunar varðandi kynningu á endurskoðaðri tillögu að friðlýsingu og stækkun fólkvangs í Garðahrauni efra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum.
Gunnar Einarsson, ræddi 7. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um innviðargjöld í Urriðaholti, 12. tl., bréf Trés lífsins, varðandi lóð fyrir byggingu bálstofu og höfuðstöðva í Rjúpnadal.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., bréf Umhverfisstofnunar um friðlýsingu Skerjafjarðar við Álftanes
Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2104044F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 4/5 ´21.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 26. tl., bréf Fjölsmiðjunnar varðandi framtíðarfjármögnun.
Gunnar Einarsson, ræddi 26. tl., bréf Fjölsmiðjunnar varðandi framtíðarfjármögnun.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., kynningu á stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús, 2. tl., kynningu á úrgangs- og innkaupastefnu og 3. tl., sumarstörf ungmenna 2021.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 16. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir hesthúsasvæði Sóta og 17. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Víðiholt.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., sumarstörf ungmenna 2021 og 26. tl., bréf Fjölsmiðjunnar varðandi framtíðarfjármögnun.
Almar Guðmundsson, ræddi 25. tl., tilkynningu félagsmálaráðuneytisins um úthlutun styrks til að efla félagsstarf fullorðinna.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 29. tl., fyrirspurn um nýtingu strætó.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 21. tl., erindi stjórnar íbúasamtaka Urriðaholts varðandi áherslur um framkvæmdir í Urriðaholti
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 29. tl., fyrirspurn um nýtingu strætó.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 21. tl., erindi stjórnar íbúasamtaka Urriðaholts varðandi áherslur um framkvæmdir í Urriðaholti.
Björg Fenger, ræddi 29. tl., fyrirspurn um nýtingu strætó.
Gunnar Einarsson, ræddi 29. tl., fyrirspurn um nýtingu strætó og 21. tl., erindi stjórnar íbúasamtaka Urriðaholts varðandi áherslur um framkvæmdir í Urriðaholti.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 21. tl., erindi stjórnar íbúasamtaka Urriðaholts varðandi áherslur um framkvæmdir í Urriðaholti.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 21. tl., erindi stjórnar íbúasamtaka Urriðaholts varðandi áherslur um framkvæmdir í Urriðaholti.
Almar Guðmundsson, ræddi 21. tl., erindi stjórnar íbúasamtaka Urriðaholts varðandi áherslur um framkvæmdir í Urriðaholti.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 21. tl., erindi stjórnar íbúasamtaka Urriðaholts varðandi áherslur um framkvæmdir í Urriðaholti.
Gunnar Einarsson, ræddi 21. tl., erindi stjórnar íbúasamtaka Urriðaholts varðandi áherslur um framkvæmdir í Urriðaholti.
Fundargerðin sem er 30 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2104023F
04
Fundargerð fjölskylduráðs frá 21/4 ´21.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., endurskoðun lýðræðisstefnu og 9. tl., átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2104020F
05
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 16/4 ´21.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna, 3. tl., sumarstarf félagsmiðstöðva, 4. tl., tækjakaup í fjölnota íþróttahúsi, 7. tl., klifurvegg í fjölnota íþróttahúsi og 6. tl., áform um að halda frímerkjasýninguna NORDIA í Ásgarði árið 2023. Þá ræddi Björg önnur mál, kynningarfund á niðurstöðum á stöðu barna í 8. - 10. bekk og leiðtogaþjálfun í kvennaíþróttum.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 9. tl., mikilvægi þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 9. tl., mikilvægi þátttöku barna og ungmenna af erlendu uppruna í skipulögðu íþróttastarfi.
Björg Fenger, ræddi 9. tl., mikilvægi þátttöku barna og ungmenna af erlendu uppruna í skipulögðu íþróttastarfi.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2104002F
06
Fundargerð leikskólanefndar frá 14/4 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2104031F
07
Fundargerð leikskólanefndar frá 28/4 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2105001F
08
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 3/5 ´21.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., val á bæjarlistamanni og heiðursviðurkenningu, 3. tl., umsókn um styrk frá HIMA (Harpa International Music Academy), 4. tl., sumarstörf er tengjast listum og menningu og 7. tl., barnamenningarhátíð í Garðabæ 2021.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2104035F
09
Fundargerð skipulagsnefndar frá 29/4 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2103036F
10
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 14/4 ´21.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður samræmdra könnunarprófa 2019-2020, 2. tl., skólastefnu, 3. tl., úthlutun úr þróunarsjóði, 5. tl., skólamat í grunnskólum, 6. tl., ráðningu skólastjóra Sjálandsskóla. Sigríður Hulda bauð Sesselju Þóru Gunnarsdóttur nýráðinn skólastjóra velkomna til starfa og óskaði henni velfarnaðar í starfi.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2104009F
11
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 15/4 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2104012F
12
Fundargerð umhverfisnefndar frá 14/4 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., vöktun á loftbornum flúori í gróðri og 5. tl., friðlýsingu strandlengju Álftaness.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2101447
13
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 26/4 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2102249
14
Fundargerðir stjórnar SHS nr. 224-227 frá 24/3 - 16/4 ´21.
Fundargerðirnar lagðar fram.
Málsnúmer 2101300
15
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 9/4 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2102176
16
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 9/4 ´21.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., stöðu og horfur moltu og metangass framleiðslu GAJA
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl. stöðu og horfur moltu og metangass framleiðslu GAJA og 3. tl., úrgangstölfræði heimilanna 2020.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2101346
17
Fundargerð stjórnar SSH frá 12/4 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2102108
18
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 21/4 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2009461
19
Tillaga um stækkun heilbrigðiseftirlitsvæðis.
Lögð fram eftirfarandi tillaga.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að Mosfellsbær og Seltjarnarnes verði hluti af heilbrigðiseftirlitssvæði Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs, sbr. 9. töluliður 2. mgr. 45. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Samþykki er háð staðfestingu allra hlutaðeigandi sveitarfélaga."
Tillagan samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2105042
20
Tillaga um flokkun úrgangsstrauma við byggingarframkvæmdir.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu er hún flytur ásamt Jónu Sæmundsdóttur.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela tækni- og umhverfissviði að skoða möguleika á útfærslu skilmála er snúa að flokkun úrgangsstrauma við byggingarframkvæmdir í sveitarfélaginu."
Greinargerð:
Á tímum aukinnar sjálfbærni og hringrásarhagkerfis er mikilvægt að horft sé á alla þætti. Garðabær hefur sett sér skýra stefnu í úrgangsmálum og á Alþingi er unnið að nýrri löggjöf um úrgang. Nágrannaþjóðir okkar hafa gert mun strangari kröfur á byggingaraðila hvað varðar flokkun úrgangs og þróunin er hröð. Það er því vel við hæfi að Garðabær taki stærri skref með því að þróa og innleiða skilmála er snúa að flokkun úrgangsstrauma þar sem umhverfisþættir fái meira vægi og verði hluti útboðsgagna.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2006130
21
Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 - Lántaka.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.200.000.000. Um er að ræða verðtryggt lán með 1,12% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 13 ára og án heimildar til uppgreiðslu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.200.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til byggingar fjölnota íþróttahúss sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku að fjárhæð kr. 1.200.000.000 samkvæmt heimild í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2021."