Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 20/4 ´21.

Málsnúmer 2104022F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (885). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma og lagði fram eftirfarandi bókun.

Það eru vond vinnubrögð af formanni bæjarráðs að heimila bókun, þar sem gagnrýni á nafngreindan bæjarfulltrúa sem ekki á seturétt í bæjarráði, er heimiluð. Það eru enn verri vinnubrögð af formanni að standa fyrir slíkum vinnubrögðum sjálf í stað þess að taka þann málflutning upp í bæjarstjórn, þar sem við báðar eigum sæti. Upplýsingar um alvarlega stöðu um biðlista og innritunarvanda í leikskóla Garðabæjar komu fram á fundi leikskólaráðs þann 17. mars 2021. Þennan vanda þarf að leysa varanlega með byggingu nýs leikskóla en ekki með upphrópunum gagnvart þeim sem vekja athygli á vandanum.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.

Valborg Ösp Á Warén, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.

Gunnar Einarsson, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.

Almar Guðmundsson, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.

Valborg Ösp Á Warén, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.

Gunnar Einarsson, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Í þeim málflutningi sem komið hefur fram er mér það ljóst að Garðabær hefur notið góðs af þeirri íbúasamsetningu sem hefur verið í bænum undanfarin ár. Leikskólar hafa vel staðið undir þeirri íbúafjölgun sem hefur sem hefur átt sér stað enda ekki verið mikil uppbygging húsnæða sem henta yngra fjölskyldufólki. Því virðist það vera nokkuð ljóst að það hefur komið meirihluta í opna skjöldu sú hraða uppbygging og þá sérstaklega aðsókn barnafjölskylda í Urriðaholt. Afleiðing þess að hafa misreiknað íbúaþróun er sú að uppbygging mikilvægra innviða í þágu barnafjölskyldna er vanáætluð."

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 15. tl., Leikskólann Sunnuhvol - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.

Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.