Beint í efni

Samþykkt fyrir sameiginlegt heilbrigðiseftirlit og kosning fulltrúa í heilbrigðisnefnd.

Málsnúmer 2009461

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (897). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að kjósa eftirfarandi einstaklinga sem fulltrúa Garðabæjar í heilbrigðisnefnd fyrir sameiginlegt svæði Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Kópavogs, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar.

Ingibjörg Hauksdóttir, aðalmaður og Jón Bjarni Þorsteinsson, varamaður.

Þau voru aðal- og varafulltrúi í heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

18. (896). fundur

Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samþykktir um sameiginlegt heilbrigðiseftirlit fyrir Garðabæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes.

Bæjarráð Garðabæjar

03

33. (1991). fundur

Lögð fram drög að reglugerð um breytingu á starfsvæði heilbrigðieftirlits sem ráðuneytið stefnir að því að auglýsa fljótlega með gildistíma frá 1. janúar nk.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

04

22. (1980). fundur

Í tilkynningunni kemur fram að drög að reglugerð um sameiningu heilbrigðiseftirlitssvæða hefur verið kynnt í samráðsgátt. Í reglugerðinn er gert ráð fyrir að Mosfellsbær og Seltjarnarnes sameinist heilbrigðiseftirliti Hafnafjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

7. (885). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

7. (885). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

7. (885). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að Mosfellsbær og Seltjarnarnes verði hluti af heilbrigðiseftirlitssvæði Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs, sbr. 9. töluliður 2. mgr. 45. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Samþykki er háð staðfestingu allra hlutaðeigandi sveitarfélaga."

Tillagan samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

08

15. (1973). fundur

Gerð er grein fyrir viðræðum fulltrúa sveitarfélaganna Hafnarfjarðar, Kópavogs, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um sameiginlegt heilbrigðiseftirlit og kynnt drög að sameiginlegri fjárhagsáætlun og drög að samþykktum fyrir nýtt eftirlitsvæði. Niðurstaða samstarfshópsins er að mæla með sameiginlegu heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

09

50. (1958). fundur

Bæjarráð samþykkir að Garðabær taki þátt í viðræðum sveitarfélaganna Kópavogsbæjar, Hafnarfjarðar, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar um breytingu á heilbrigðiseftirlitssvæði Kópavogs og Hafnarfjarðar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

10

14. (873). fundur

Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs og lagði til að bæjarstjórn samþykki að taka jákvæða afstöðu til breytinga á heilbrigðiseftirlitsvæðum enda leiði það ekki til aukins kostnaðar fyrir Garðabæ.

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að taka jákvætt í erindi um mögulega stækkun á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar enda leiði það ekki til aukins kostnaðar fyrir Garðabæ.

Bæjarráð Garðabæjar

11

38. (1946). fundur

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl