Beint í efni

14. (873). fundur

01.10.2020
Bæjarstjórn Garðabæjar

14. (873). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

01.10.2020

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Gunnar Einarsson
  • Guðfinnur Sigurvinsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Valborg Ösp Á. Warén

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður.

Björg Fenger, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 17. september 2020 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2009028F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 22/9 ´20.

Enginn tók til máls.

Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2009039F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 29/9 ´20.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 (2021-2022).

Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2009020F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 16/9 ´20.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk, 2. tl., reglur um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk. Almar upplýsti að öldungaráð mun koma saman á morgun en ráðið hefur ekki komið saman síðan í upphafi árs vegna aðstæðna í Covid.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og sagði frá því að í dag skrifaði Garðabær undir samstarfssamning um barnvænt sveitarfélag við UNICEF og félagsmálaráðuneytið. Áslaug Hulda hvatti til þess af því tilefni að fljótlega verði boðað til sameiginlegs fundar bæjarstjórnar og ungmennaráðs.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2009036F

04

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 25/9 20.

Björg Fenger ræddi 1. tl., forvarnarviku í Garðabæ, 2. tl., götuvaktina, 6. tl., skýrslu um verkefnið "Velsæld íbúa í Garðabæ", 7. tl., úthlutun úr 19. júní sjóði. Þá ræddi Björg önnur mál, tilraunaopnun í félagsmiðstöðvum fyrir 16-18 ára og nýtingu hvatapeninga fyrir sama aldurshóp.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., götuvaktina og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Garðabæjarlistinn skorar á meirihlutann að sammælast um að ráðast í það verkefni strax að koma á ungmennahúsi fyrir ungmenni 16 ára og eldri. Öll teikn eru á lofti um mikilvægi þess og þörfin fer vaxandi í því árferði sem við erum að horfa fram á í samfélaginu vegna Covid 19."

Þá ræddi Sara Dögg 6. tl., skýrslu um verkefnið "Velsæld íbúa Garðabæjar".

Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., umræður um íþróttastarf eldri borgara.

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og tók undir framkomna bókun. Þá ræddi Ingvar önnur mál, tilraunaopnun í félagsmiðstöðvum fyrir 16-18 ára.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., götuvaktina.

Valborg Ösp Á Warén, kvaddi sér hljóðs og tók undir framkomna bókun. Þá ræddi Valborg Ösp 2. tl., götuvaktina.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2008027F

05

Fundargerð leikskólanefndar frá 23/9 ´20.

Valborg Ösp Á Warén, ræddi 2. tl., áhrif Covid á starfsemi leikskólanna og 4. tl., forvarnarviku í Garðabæ.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2009029F

06

Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 24/9 ´20.

Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og sagði frá samstarfi skólanefndar tónlistarskólans og menningar og safnanefndar og greindi frá sameiginlegu verkefni nefndanna um að stofna tónlistarklasa í Garðabæ.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2006007F

07

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 8/6 ´20.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., húsnæðismál Hönnunarsafns Íslands og sagði frá fundi fulltrúa Garðabæjar með menntamálaráðherra þar sem rætt var um húsnæðismál safnsins.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001357

08

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 28/8 ´20.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., drög að fjárhagsáætlun 2021, 4. tl., stöðu varðandi uppkeyrslu móttöku- og flokkunarstöðvar og Gaja, 5. tl., markaðsþróun vegna sölu metans og ráðstöfun moltu og 7. tl. fyrirætlanir um umbætur á fyrirkomulagi innkaupa.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi málefni Sorpu bs.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi flokkun sorps og hvata í því sambandi. Þá ræddi Áslaug Hulda almennt um málefni Sorpu bs.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi málefni Sorpu bs.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001425

09

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 4/9 ´20.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., forsendur og fyrstu drög aða fjárhagsáætlun Strætó bs., 3. tl. leiðakerfismál, 5. tl., akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og sátt sem gerð hefur verið í dómsmáli og 6. tl., kostnaðargreiningu rekstrar og fjárfestingargetu Strætó bs.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2003480

10

Fundargerð 24. eigendafundar Strætó bs. frá 7/9 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2003017

11

Fundargerð 25. eigendafundar Sorpu bs. frá 7/9 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2009461

12

Erindi umhverfis- og auðlindaráðuneytisins varðandi mögulega breytingu á heilbrigðiseftirlitssvæðum, dags. 22.09.20.

Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs og lagði til að bæjarstjórn samþykki að taka jákvæða afstöðu til breytinga á heilbrigðiseftirlitsvæðum enda leiði það ekki til aukins kostnaðar fyrir Garðabæ.

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að taka jákvætt í erindi um mögulega stækkun á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar enda leiði það ekki til aukins kostnaðar fyrir Garðabæ.

Málsnúmer 1904109

13

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - Lántaka

Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 500.000.000. Um er að ræða verðtryggt lán með 0,75% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 14 ára og án heimildar til uppgreiðslu.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 500.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til viðbyggingar við grunnskóla á Álftanesi og byggingar fjölnota íþróttahúss sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða ofangreinda tillögu um lántöku að fjárhæð kr. 500.000 hjá Lánasjóði sveitarfélaga.

Málsnúmer 2009626

14

Fyrirspurn Garðabæjarlistans um aðgerðaráætlun Garðabæjar í umhverfis- og loftlagsmálum.

Sara Dögg Svanhildardóttir, gerði nánari grein fyrir fyrirspurn um aðgerðaráætlun Garðabæjar í umhverfis- og loftslagsmálum og óskaði eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi loftslagsstefnu og innkaupa- og úrgangsstefnu.

Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls og sagði frá umfjöllun og vinnu í umhverfisnefnd varðandi undirbúning að loftlagsstefnu Garðabæjar og fleiri málum er varða umhverfismál.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að leggja fram minnisblað um stöðu mála varðandi aðgerðaráætlun Garðabæjar í umhverfis- og loftslagsmálum.