Beint í efni

Fundargerð fjölskylduráðs frá 16/9 ´20.

Málsnúmer 2009020F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (873). fundur

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk, 2. tl., reglur um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk. Almar upplýsti að öldungaráð mun koma saman á morgun en ráðið hefur ekki komið saman síðan í upphafi árs vegna aðstæðna í Covid.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og sagði frá því að í dag skrifaði Garðabær undir samstarfssamning um barnvænt sveitarfélag við UNICEF og félagsmálaráðuneytið. Áslaug Hulda hvatti til þess af því tilefni að fljótlega verði boðað til sameiginlegs fundar bæjarstjórnar og ungmennaráðs.

Fundargerðin lögð fram.