Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 25/9 20.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
14. (873). fundur
Björg Fenger ræddi 1. tl., forvarnarviku í Garðabæ, 2. tl., götuvaktina, 6. tl., skýrslu um verkefnið "Velsæld íbúa í Garðabæ", 7. tl., úthlutun úr 19. júní sjóði. Þá ræddi Björg önnur mál, tilraunaopnun í félagsmiðstöðvum fyrir 16-18 ára og nýtingu hvatapeninga fyrir sama aldurshóp.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., götuvaktina og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Garðabæjarlistinn skorar á meirihlutann að sammælast um að ráðast í það verkefni strax að koma á ungmennahúsi fyrir ungmenni 16 ára og eldri. Öll teikn eru á lofti um mikilvægi þess og þörfin fer vaxandi í því árferði sem við erum að horfa fram á í samfélaginu vegna Covid 19."
Þá ræddi Sara Dögg 6. tl., skýrslu um verkefnið "Velsæld íbúa Garðabæjar".
Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., umræður um íþróttastarf eldri borgara.
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og tók undir framkomna bókun. Þá ræddi Ingvar önnur mál, tilraunaopnun í félagsmiðstöðvum fyrir 16-18 ára.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., götuvaktina.
Valborg Ösp Á Warén, kvaddi sér hljóðs og tók undir framkomna bókun. Þá ræddi Valborg Ösp 2. tl., götuvaktina.
Fundargerðin lögð fram.