Beint í efni

33. (1991). fundur

07.09.2021
Bæjarráð Garðabæjar

33. (1991). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

07.09.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - varamaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2108482

01

Kynning á verkefni Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi kortlagningu á búsetu í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á fund bæjarráðs kom Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og gerði grein fyrir verkefni við kortlagningu á búsetu í atvinnuhúsnæði. Fram koma að sérstök áhersla verður lögð á öryggismál eins og brunavarnir sem og félagslega stöðu þeirra sem hafa búsetu í atvinnuhúsnæði.

Heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður um 20 m.kr. og mun Húsnæðis og mannvirkjastofnun greiða um 40% en sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu 60%, sem skiptist í samræmi við íbúafjölda. Hlutur Garðabæjar er um 1,0 mkr.

Jóna Sæmundsdóttir, bæjarfulltrúi var á fjarfundi umdir þessum dagaskrárlið.

Málsnúmer 2104529

02

Sunnuflöt 17 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GB-Global ehf., kt. 411014-0960, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Sunnuflöt 17.

Málsnúmer 2101001

03

Bréf Þjóðskrár Íslands varðandi kjörskrárstofn vegna kosninga til Alþingis 25. september 2021, dags. 21.08.21.

Lagt fram eintak af kjörskrá fyrir Garðabæ vegna kosninga til Alþingis sem fram eiga að fara 25. september 2021. Á kjörskrá eru samtals 13.369 kjósendur. Í Íþróttahúsinu Mýrinni er fjöldi kjósenda 11.308 og í Álftanesskóla 2.061. Kjósendum hefur fjölgað um 1.652 frá síðustu kosningum til Alþingis 2017. Bæjarráð staðfestir með vísan til 22. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, kjörskrá Garðabæjar til að gilda við kosningar til Alþingis sem fram eiga að fara 25. september 2021. Kjörskráin skal auglýst og liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg frá 14. september nk. til kjördags.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109001

04

Árshlutareikningur Strætó bs. janúar - júní 2021.

Málsnúmer 2109035

05

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, dags. 30.08.21.

Lagt fram.

Bæjarstjóri upplýsti að fyrirhugaður er örfundur á vegum SSH föstudaginn 10. september nk. þar sem farið verður nánar yfir verkferla við innleiðingu laganna hjá sveitarfélögum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109042

06

Áætlun um hönnun og framkvæmdir við gatnagerð í Vetrarmýri og á Hnoðraholti.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir áætlun um hönnun og framkvæmdir við gatnagerð í Vetramýri og Hnoðraholti. Framkvæmdir við Vetrarbraut hafa þegar verið boðnar út en stefnt er að útboði framkvæmda í Vetrarmýri í desember 2021 og á Hnoðraholti í febrúar 2022.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009461

07

Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu um drög að reglugerð varðandi breytingar á starfssvæði heilbrigðiseftirlits, dags. 31.08.21.

Lögð fram drög að reglugerð um breytingu á starfsvæði heilbrigðieftirlits sem ráðuneytið stefnir að því að auglýsa fljótlega með gildistíma frá 1. janúar nk.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109053

08

Bréf Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varðandi beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 01.09.21.

Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 9.263.793 til greiðslu fasteignagjalda árið 2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109051

09

Undirbúningur að hönnun og framkvæmdum við búsetukjarna að Brekkuási 2.

Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 2. september sl. var samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis sem gerir ráð fyrir að byggður verði búsetukjarni fyrir fatlað fólk á lóðinni við Brekkuás 2.

Bæjarstjóri kynntu hugmynd um að láta fara fram alútboð vegna hönnunar og byggingar húsnæðis fyrir búsetukjarna á lóðinni.

Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og verður útboðslýsing þegar hún liggur fyrir lögð fyrir bæjarráð.