Beint í efni

Skýrsla SHS, HMS og ASÍ um búsetu í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu 2021 - 2022.

Málsnúmer 2108482

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

15. (2022). fundur

Á fund bæjarráðs komu Bjarni Kjartansson og Örn Harðarson, frá Slökkviliði á höfuðborgarsvæðisins og gerðu grein fyrir skýrslu um búsetu í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Fram kom að fjöldi atvinnuhúsnæðis í Garðabæ er 14 þar sem um búsetu fólks er að ræða og þar af eru 3 hús sem þurfa að fara í forgang aðgerða á grundvelli öryggissjónarmiða.

Bæjarráð Garðabæjar

02

33. (1991). fundur

Á fund bæjarráðs kom Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og gerði grein fyrir verkefni við kortlagningu á búsetu í atvinnuhúsnæði. Fram koma að sérstök áhersla verður lögð á öryggismál eins og brunavarnir sem og félagslega stöðu þeirra sem hafa búsetu í atvinnuhúsnæði.

Heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður um 20 m.kr. og mun Húsnæðis og mannvirkjastofnun greiða um 40% en sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu 60%, sem skiptist í samræmi við íbúafjölda. Hlutur Garðabæjar er um 1,0 mkr.

Jóna Sæmundsdóttir, bæjarfulltrúi var á fjarfundi umdir þessum dagaskrárlið.

Bæjarráð Garðabæjar

03

32 (1990). fundur

Í bréfinu er kynning á verkefni við kortlagningu á búsetu í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður um 20 m.kr. og mun HMS greiða um 40% en sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu 60%, sem skiptist í samræmi við íbúafjölda.

Bæjarráð vísar bréfinu til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 og til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl