15. (2022). fundur
15. (2022). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
26.04.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Skýrsla SHS, HMS og ASÍ um búsetu í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu 2021 - 2022.
Á fund bæjarráðs komu Bjarni Kjartansson og Örn Harðarson, frá Slökkviliði á höfuðborgarsvæðisins og gerðu grein fyrir skýrslu um búsetu í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Fram kom að fjöldi atvinnuhúsnæðis í Garðabæ er 14 þar sem um búsetu fólks er að ræða og þar af eru 3 hús sem þurfa að fara í forgang aðgerða á grundvelli öryggissjónarmiða.
02
Eskiás 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Framkvæmdafélaginu Eskiási ehf. kt., 501286-1419, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 35 íbúðum að Eskiási 3.
03
Bréf Hjallastefnunnar varðandi viðbyggingu, lóðarréttindi og þjónustusamning vegna starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum, dags. 12.04.22.
Bæjarritari gerði grein fyrir viðræðum við fulltrúa Hjallastefnunnar um gerð lóðarleigusamnings, greiðslu gatnagerðargjalda og leyfi vegna fjölgunar á lausum kennslustofum á lóðinni.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir viðræðum við fulltrúa Hjallastefnunnar um um gerð nýs þjónustusamnings.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til áframhaldandi viðræðna um nýjan þjónustusamningi sem er forsenda fyrir gerð lóðarleigusamnings og fjölgunar á lausum kennslustofum.
04
Samkomulag við Olís hf. varðandi innlausn lóðar í Kumlamýri.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir samkomulagi við Olís hf. um innlausn lóðar í Kumlamýri.
Bæjarráð samþykkir samkomulagið fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra umboð til undirritunar kaupsamnings um lóðina ásamt yfirlýsingu um ráðstöfun lóðar í Rjúpnahlíð.
05
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu um drög að reglugerð í samráðsgátt um fjölgun atvinnuleyfa leigubifreiða.
Lögð fram.
07
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (vinnutími starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð), 590. mál., dags. 11.04.22.
Lögð fram.
08
Erindi Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar varðandi beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda árið 2022.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar styrk að fjárhæð kr. 12.314.465 til greiðslu fasteignagjalda árið 2022.
09
Bréf Norræna félagsins varðandi styrkbeiðni vegna vinabæjarmóts í Garðabæ 2022, dags. 05.04.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
10
Erindi stjórnar sjálfseignarstofnunar varðandi verkefnið "Römpum upp Ísland", dags. 28.03.22.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til tækni- og umhverfissviðs vegna aðkomu að verkefninu með aðstoð starfsmanna bæjarins varðandi aðgengi og aðbúnað.
Fylgiskjöl
11
Erindi Sálfræðistofunnar Höfðabakka varðandi styrk til forvarnarverkefnis, dags. 11.04.22.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar fjölskylduráðs og íþrótta- og tómstundaráðs.
Fylgiskjöl
12
Útboðlýsing fyrir útboð á frístundaakstri 2022.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir helstu atriðum útboðslýsingar.
Bæjarráð samþykkir útboðslýsinguna og felur bæjarstjóra að hlutast til að auglýsa útboð á frístundaakstri.
13
Bréf JSG lögmanna varðandi jarðir í Garðahverfi, dags. 08.04.22.
14
Afgreiðsla leikskólanefndar varðandi erindi um foreldragreiðslur.
Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar frá fundi 11. apríl sl. þar sem nefndin lýsir stuðning við að mótaðar verði reglur um foreldragreiðslur í þeim tilvikum sem börn 12 mánaða og eldri eiga ekki kost á leikskólavist.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir umræðu um málið í leikskólanefnd.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að semja drög að reglum sem koma til afgreiðslu bæjarráðs.
15
Afgreiðsla leikskólanefndar varðandi úthlutun úr þróunarsjóði leikskóla.
Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun styrkja úr þróunarsjóði leikskóla 2022. Alls bárust 7 umsóknir í sjóðinn. Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 4.500.000 úr sjóðnum til 6 verkefna. Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð leikskóla.
16
Erindi Háskólans á Hólum og Árnastofnunar varðandi málstefnu, dags. 22.04.22.
Lagt fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.
17
Tilkynning frá Almannavörnum um þemaviku 28. apríl - 5. maí.
Lögð fram til kynningar.
18
Opnunarhátíð Miðgarðs - fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir dagskrá opnunarhátíðar í Miðgarði sem fyrirhuguð er laugardaginn 30. apríl 2022.