Beint í efni

Reglur um greiðslur til forráðamanna barna eldri en 12 mánaða sem ekki hafa fengið úthlutað leikskólavist.

Málsnúmer 2202330

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (905). fundur

Almar Guðmundsson, fylgdi úr hlaði reglum um greiðslur til forráðamanna barna eldri en 12 mánaða sem ekki hafa fengið úthlutað leikskólavist.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls og lagði til að í 1. tl., komi fram skýrt að um er að ræða vistun á leikskóla í Garðabæ.

Bæjarstjórn samþykkir reglur um greiðslur til forráðamanna barna eldri en 12 mánaða sem ekki hafa fengið úthlutað leikskólavist til að taka gildi 1. júní 2022 með áorðinni breytingu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

9. (905). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

9. (905). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

04

21. (2028). fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa reglum um greiðslur til forráðmanna barna eldri en 12 ára sem ekki hafa fengið úthlutað leiksólavist í Garðabæ til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

05

20. (2027). fundur

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna að gerð reglna um heimagreiðslur til foreldra sem koma til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Bæjarráð Garðabæjar

06

15. (2022). fundur

Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar frá fundi 11. apríl sl. þar sem nefndin lýsir stuðning við að mótaðar verði reglur um foreldragreiðslur í þeim tilvikum sem börn 12 mánaða og eldri eiga ekki kost á leikskólavist.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir umræðu um málið í leikskólanefnd.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að semja drög að reglum sem koma til afgreiðslu bæjarráðs.

Leikskólanefnd Garðabæjar

07

32. fundur


Leikskólanefnd er hlynnt þessu úrræði miðað við núverandi stöðu í leikskólamálum. Mótaðar verði skýrar reglur um verkefnið og að það verði tímabundið til áramóta 2023/24. Verkefnið verði tekið út fyrir þann tíma og endurmetið

Leikskólanefnd Garðabæjar

08

31. fundur

Dagskrárliður ræddur og samþykkt að færa hann á dagskrá fundar leikskólanefndar þann 13. apríl.

Bæjarráð Garðabæjar

09

8. (2015). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar leikskólanefndar og til nánari skoðunar bæjarstjóra.