Beint í efni

8. (2015). fundur

01.03.2022
Bæjarráð Garðabæjar

8. (2015). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

01.03.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2202315

01

Garðatorg 5 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Tanntorgi ehf., kt. 540119-1040, leyfi til að breyta innra skipulagi rýmis í eignarhluta 0201 og setja svalir (neyðarútgangur) á suðurhlið núverandi verslunar- og þjónustuhúss við Garðatorg 5. Bæjarráð gerir fyrirvara um útfærslu á stiga og svölum og vísar þeim þætti til nánari skoðunar hjá tækni -og umhverfissviði.

Málsnúmer 2202374

02

Urriðavatn (golfskáli) um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa, kt. 440692-2069, leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi golfskála Golfklúbbsins Odds í Urriðavatnsdölum.

Málsnúmer 2202008

03

Kauptún 1 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lagernum Iceland ehf., kt. 451207-0750, leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi núverandi verslunar- og þjónustuhúsnæðis við Kauptún 1.

Málsnúmer 2201565

04

Stekkjarflöt 9 -Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir að veita Ástu Pétursdóttur, kt. 291276-4909, leyfi til byggja við núverandi einbýlishús við Stekkjarflöt 9.

Málsnúmer 2110243

05

Brekkugata 8 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir að veita Fagsmíði Fasteignum ehf., kt. 431013-0100, leyfi til að breyta útlit á gluggum og hurðum og gera óverulegar breytingar á innra skipulagi parhúss í byggingu við Brekkugötu 8.

Málsnúmer 2202330

06

Bréf Sigríðar Gunnarsdóttur varðandi foreldragreiðslur, dags. 21.02.2022.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar leikskólanefndar og til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Málsnúmer 2202354

07

Tilkynning frá Hafnarfjarðarbæ varðandi tillögu að deiliskipulagi Reykjanesbrautar við Straumsvík.

Bæjarráð vísar tilkynningunni til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2101200

08

Opnun tilboða vegna þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar.

Eftirfarandi tilboð bárust í þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar.

Svæði 1 Svæði 2 Svæði 3

Rafmagnsþjónustan ehf. 17.576.250 17.415.000 17.324.700

Raf og tæknilausnir ehf. 21.950.000 21.950.000 21.950.000

Rafafl ehf. 31.500.000 31.500.000 31.500.000

Eco Raf 23.835.000 23.154.000 26.105.000

TG Raf ehf. 21.371.246 21.371.246 21.371.246

Raflýsing ehf. 17.630.000 17.630.000 19.350.000

Fagtækni ehf. 26.389.652 26.389.652 26.389.652

Rafsetning ehf. 22.016.450 22.623.800 22.623.800

Rafboði ehf. 15.695.650 15.695.650 15.695.650

Rafstoð ehf. 21.889.400 22.412.500 20.785.000

Rafsel ehf. 21.553.000 21.553.000 21.553.000

Á opnunarfundi fór fulltrúi Rafmagnsþjónustunnar ehf. fram á að bókað væri áður en tilboð voru opnuð að útboðið hafi verið kært til kærunefndar útboðsmála en niðurstaða kærumálsins liggur ekki fyrir. Kæran var tekin fyrir á fundi bæjarráðs sem haldinn var 1. febrúar 2022 og var samþykkt að fela Andra Árnasyni, lögmanni að gæta hagsmuna bæjarins í málinu. Engar athugasemdir komu fram eftir opnun tilboða.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Rafboða ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2202389

09

Bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga varðandi almennt eftirlit með fjármálum sveitarfélaga, dags. 21.02.22.

Lagt fram bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga þar sem upplýst er um starfsáætlun nefndarinnar og helstu áhersluatriði á árinu 2022.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2202391

10

Bréf ríkislögreglustjóra varðandi eftirlit með stöðu almannavarnastarfs, dags. 21.02.22.

Í bréfinu eru kynnt áform almannavarna um að hrinda af stað rafrænu eftirliti með stöðu almannavarnarstarfs sveitarfélaga og verður af því tilefni gerð sérstök könnun hjá sveitarfélögunum. Garðabær hefur tilnefnt Huldu Hauksdóttur, upplýsingastjóra sem tengilið og ábyrgðaraðila Garðabæjar.

Bæjarráð ræddi um mikilvægi endurreisnar eftir faraldurinn og nauðsyn þess að huga vel að líðan fólks í öllum aldurshópum í því sambandi.

Málsnúmer 2202392

11

Erindi Listasetursins varðandi stofnun tónlistarskóla í Urriðaholti, dags. 04.02.22.

Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og menningarsviðs og til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2112179

12

Opnun tilboða í kaup á led-lömpum fyrir götulýsingu.

Eftirfarandi tilboð bárust í opnun tilboða í kaup á led-lömpum fyrir götulýsingu.

Í töflu hér fyrir neðan hafa tilboðsverð verið leiðrétt m.t.t. afls í lýsingarútreikningum og uppgefins líftíma. Um er að ræða útreikning á lífsferilskostnaðarreikni (LCC). Þá hefur LCC kostnaður einnig verið leiðréttur miðað við miðgengi Seðlabanka á opnunardegi tilboða.

Formkröfur, lýsingarútreikningar og tæknilegir eiginleikar hafa einnig verið sannreyndir hjá stigahæsta bjóðanda og stenst hann kröfur útboðsgagna.

Reykjafell ehf. kr. 125.193.451,00

Rafkaup hf. kr. 139.464.024,00

Jóhann Ólafsson & Co ehf. kr. 110.548.538,57

Ískraft - Tilboð 1 kr. 155.180.850,69

Ískraft - Tilboð 2 kr. 152.972.389,00

Ískraft - Tilboð 3 kr. 139.233.754,00

Fagkaup ehf. - Johan Rönning ehf kr. 103.440.242,38

Fagkaup ehf. - S. Guðjónsson ehf. kr. 119.274.045,65

Rafmagnsþjónustan ehf. kr. 126.154.881,70

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Fagkaups ehf. og Johan Rönning ehf. sem er hagkvæmasta tilboðið samkvæmt LCC útreikningi. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2202034

13

Afgreiðsla leikskólanefndar og skólanefndar grunnskóla varðandi skóladagatal 2022 - 2023.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við afgreiðslu leikskólanefndar og skólanefndar grunnskóla á skóladagatali 2022-2023.

Málsnúmer 2001444

14

Tilkynning heilbrigðisráðuneytis um afléttingu allra takmarkana innanlands og á landamærum, dags. 23.02.22.

Lögð fram.

Málsnúmer 2202206

15

Bréf Garðasóknar varðandi framkvæmdir við stækkun kirkjugarðs, dags. 02.02.22.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari úrvinnslu á tækni- og umhverfissviði.

Málsnúmer 2202453

16

Bréf Persónuverndar varðandi úttekt á notkun Garðabæjar á skýjaþjónustu í grunnskólastarfi, dags. 25.02.22.

Í bréfinu kemur fram að Persónuvernd hafi ákveðið að hefja úttekt á notkun sex sveitarfélaga, eða grunnskóla þeirra, á skýjaþjónustu í grunnskólastarfi. Með bréfinu fylgir spurningalisti sem er þáttur í víðtækara verkefni sem unnið er að frumkvæði Evrópska persónuverndarráðsins (EDPB), þar sem meirihluti aðildaríkja ráðsins sinnir sameiginlegum viðfangsefnum á samræmdan hátt, en Evrópska persónuverndarráðið hefur ákveðið að setja „notkun opinberra aðila á skýjaþjónustu“ í forgang árið 2022.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að bregðast við úttekt Persónuverndar á notkun Garðabæjar á skýjaþjónustu í grunnskólastarfi og svara umbeðnum spurningum en frestur til að svara er til og með 31. mars nk.

Fylgiskjöl