Bréf Persónuverndar varðandi eftirfylgni á úttekt á skýjalausnum í grunnskólastarfi, dags. 5. mars 2025.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
10. (2158). fundur
Lagt fram erindi Persónuverndar vegna eftirfylgni ákvörðunar vegna úttektar á kennslulausninni Google Workspace for Education (Google-nemendakerfið) í grunnskólum Garðabæjar.
Fram kemur að Persónuvernd telur að Garðabær hafi farið að fyrirmælum þeim sem lögð voru fyrir sveitarfélagið í ákvörðun stofnunarinnar, með fyrirvara um staðfestingu viðauka um vinnslusamning og skilmála Google.
Bæjarráð Garðabæjar
02
46.(2099). fundur
Á fund bæjarráð kom Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur og gerði grein fyrir ákvörðun Persónuverndar vegna úttektar á notkun Garðabæjar á skýjalausnum Google í grunnskólastarfi. Í ákvörðunarorði kemur m.a. fram að vinnsla persónuupplýsinga grunnskólanemenda í Google-nemendakerfinu á vegum bæjarins samrýmist ekki lögum 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og regluger (ESB) 2016/679.
Í ákvörðuninni er lagt fyrir Garðabæ að færa vinnsluna til samræmis við löggjöfina og er frestur til að gera Persónuvernd grein fyrir þeim lagfæringu til 29. febrúar 2024.
Samkvæmt ákvörðunarorði er lögð á Garðabæ stjórnvaldssekt að fjárhæð kr. 2.500.000 kr.
Sambærileg ákvörðun beinist einnig að fjórum öðrum sveitarfélögum.
Bæjarráð Garðabæjar
03
8. (2015). fundur
Í bréfinu kemur fram að Persónuvernd hafi ákveðið að hefja úttekt á notkun sex sveitarfélaga, eða grunnskóla þeirra, á skýjaþjónustu í grunnskólastarfi. Með bréfinu fylgir spurningalisti sem er þáttur í víðtækara verkefni sem unnið er að frumkvæði Evrópska persónuverndarráðsins (EDPB), þar sem meirihluti aðildaríkja ráðsins sinnir sameiginlegum viðfangsefnum á samræmdan hátt, en Evrópska persónuverndarráðið hefur ákveðið að setja „notkun opinberra aðila á skýjaþjónustu“ í forgang árið 2022.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að bregðast við úttekt Persónuverndar á notkun Garðabæjar á skýjaþjónustu í grunnskólastarfi og svara umbeðnum spurningum en frestur til að svara er til og með 31. mars nk.