Beint í efni

46.(2099). fundur

05.12.2023
Bæjarráð Garðabæjar

46.(2099). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

05.12.2023

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2307150

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 (2024-2027).

Farið yfir tillögur um álagningu fasteignaskatts og þjónustugjalda ásamt tillögum um breytingar við frumvarp að fjárhagsáætlun sem verða til afgreiðslu við síðari umræðu um fjárhagsáætlun á fundi bæjarstjórnar 7. desember nk.

Lagt fram yfirlit yfir mál sem vísað hefur verið til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2210434

02

Grásteinsmýri 1 (MHL 01) - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Grásteinsmýri ehf., kt. 510220-1960, leyfi til breytinga á uppdráttum vegna útfærslu á hjólageymslu fjölbýlishússins að Grásteinsmýri 1.

Málsnúmer 2212012

03

Holtsbúð 33 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sólveigu Hauksdóttur, kt. 281162-7649, leyfi til að rífa bílskúr og byggja við núverandi einbýlishús að Holtsbúð 33.

Málsnúmer 2311205

04

Mávanes 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita App Dynamatic ehf., kt. 440112-0480, leyfi fyrir útlitsbreytingu á gluggum hurðum ásamt breytingum á innra skipulagi einbýlishússins að Mávanesi 4.

Einbýlishúsið að Mávanesi 4 er friðlýst af mennta- og menningarmálaráðherra. Friðlýsingin nær til ytra borðs hússins og burðavirkis. Minjastofnun hefur veitt jákvæða umsögn vegna breytinganna.

Málsnúmer 2307403

05

Mávanes 23 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Ívari Einarssyni, kt. 151169-5389, leyfi til að byggja við einbýlishúsið að Mávanesi 23.

Málsnúmer 2202453

06

Ákvörðun Persónuverndar vegna úttektar á notkun Garðabæjar á skýjalausn Google í grunnskólastarfi, dags. 28.11.23.

Á fund bæjarráð kom Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur og gerði grein fyrir ákvörðun Persónuverndar vegna úttektar á notkun Garðabæjar á skýjalausnum Google í grunnskólastarfi. Í ákvörðunarorði kemur m.a. fram að vinnsla persónuupplýsinga grunnskólanemenda í Google-nemendakerfinu á vegum bæjarins samrýmist ekki lögum 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og regluger (ESB) 2016/679.

Í ákvörðuninni er lagt fyrir Garðabæ að færa vinnsluna til samræmis við löggjöfina og er frestur til að gera Persónuvernd grein fyrir þeim lagfæringu til 29. febrúar 2024.

Samkvæmt ákvörðunarorði er lögð á Garðabæ stjórnvaldssekt að fjárhæð kr. 2.500.000 kr.

Sambærileg ákvörðun beinist einnig að fjórum öðrum sveitarfélögum.

Málsnúmer 2312010

07

Fyrirspurn Garðabæjarlistans um uppbyggingu á Álftanesi.

Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn frá Garðabæjarlistanum.

Hver er áætlaður fjöldi nýrra íbúða á Álftanesi næstu fimm árin?

Hver er núverandi íbúafjöldi Álftaness?

Hver er áætlaður fjöldi íbúa á Álftanesi eftir eitt, tvö og þrjú ár?

Hversu mörg börn er áætlað að bætist við á leik- og grunnskólaaldri á sama tímabili?

Hversu mikið svigrúm til móttöku fleiri barna er til staðar í leik- og grunnskólum á Álftanesi?

Hvernig eru áætlanir um stækkun skóla og leikskóla á næstu árum?

Hafa umferðaráhrif verið metin, t.d. um Breiðumýri þar sem mörg börn fara um í og úr skóla?

Er áætlað að ráðast í aðgerðir til að auka umferðaröryggi á svæðinu? Verða t.d. sett upp gangbrautarljós við Breiðumýri?

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

Málsnúmer 2107321

08

Samningur við Heklu fasteignir ehf. um úthlutun lóðar við Þorraholt 2 - 4.

Lagður fram til afgreiðslu samningur við Heklu fasteignir ehf. um úthlutun lóðarinnar við Þorraholt 2-4 fyrir starfsemi bílaumboðs.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

Málsnúmer 2303613

09

Opnun tilboða í framkvæmdir við göngu- og hjólastíg í Vífilsstaðahrauni.

Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við göngu- og hjólastíg í Vífilsstaðahrauni.

Mostak 87.800.000 kr.

Berg Verktakar 39.649.900 kr.

Grafa og Grjót 38.125.980 kr.

Stjörnugarðar 48.525.000 kr.

Dráttarbílar 40.736.808 kr.

Kostnaðaráætlun 55.404.300 kr.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gröfu og Grjóts ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2311618

10

Erindi Hafnarfjarðarbæjar varðandi gerð lýsingar vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 (Miðsvæði M7 - Hamarshöfn H6), dags. 30.11.23.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2311613

11

Bréf Landssamtaka hjólreiðamanna varðandi samninga við leigufyrirtæki með rafhlaupahjól, dags. 26.11.23.

Bæjarráð tekur undir ábendingar í bréfinu um að gera verður ríkari kröfur varðandi umgengni og frágang vegna notkunar á rafhlaupahjólum,

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og taka málið upp á vettvangi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Málsnúmer 2311623

12

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Bláa lónsins Svartsengi ehf. um tímabundið áfengisleyfi vegna fjáröflunarviðburðar.

Lagðar fram umsóknir frá Bláa lóninu Svartsengi ehf. um tímabundið áfengisleyfi á viðburðum í veitingahúsinu Sjálandi dagana 7. - 9. desember 2023 og 14. - 16. desember 2023.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðin leyfi verið veitt.

Björg Fenger vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2312003

13

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi drög að skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu, dags. 21.11.23.

Í tilkynningunni kemur fram að drög að skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu ásamt greinargerð hafa verið lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda. Frestur til að gera athugasemdir er til 7. febrúar 2024.

Málsnúmer 2312008

14

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu ásamt fimm ára aðgerðaáætlun lögð fram á Alþingi, dags 29.11.23.

Í tilkynningunni kemur fram að innviðaráðherra hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um landskipulagsstefnu fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028.

Málsnúmer 2311576

15

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um gjaldfrjálsar skólamáltíðir og umgjörð þeirra, 402. mál., dags. 28.11.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2311534

16

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002 og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. 497. mál., dags. 24.11.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2311555

17

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 73. mál., dags. 27.11.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2311554

18

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun, 509. mál., dags. 27.11.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2312011

19

Bréf RVK Studios varðandi leyfi fyrir kvikmyndatökur í Heiðmörk, dags. 23.11.23.

Í bréfinu er farið fram á leyfi fyrir kvikmyndatökur í Heiðmörk á tímabilinu febrúar 2024 ? júlí 2024.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.