Þorraholt 2 - 4 - sala byggingar- og lóðarréttinda
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
17. (932). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning við Heklu fasteignir ehf. um úthlutun lóðarinnar við Þorraholt 2-4 fyrir starfsemi bílaumboðs.
Bæjarráð Garðabæjar
02
46.(2099). fundur
Lagður fram til afgreiðslu samningur við Heklu fasteignir ehf. um úthlutun lóðarinnar við Þorraholt 2-4 fyrir starfsemi bílaumboðs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Bæjarráð Garðabæjar
04
21. (2028). fundur
Lögð fram eftirfarandi tilboð í byggingarrétt lóða við Þorraholt 2 og 4.
Tilboð 1.
Þorraholt 2 og 4 kr. 210.000.000.
Tilboð 2
Þorraholt 2 kr. 138.000.000
Þorraholt 4 kr. 144.250.000
Samtals: kr. 282.250.000
Á fundinum var upplýst að tilboð 2 er frá Heklu fasteignum hf., kt. 631202-3060.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn Heklu fasteigna ehf. um nánari útfærslu tilboðsins og áform félagsins varðandi starfsemi á lóðunum.
Bæjarráð Garðabæjar
05
37. (1995). fundur
Bæjarráð samþykkir tilboð Sentor ehf., kt. 480506-0810, að fjárhæð kr. 101.255.000 í byggingarrétt lóðarinnar við Þorraholt 2.
Tilboðsgjafa skal tilkynnt um um samþykkt tilboðs og um skil á gögnum um fjárhagsstöðu, fjármögnun lóðar og byggingarframkvæmda.
Bæjarráð Garðabæjar
06
34. (1992). fundur
Lagt fram tilboð frá Sentor ehf., kt. 480506-0810 að fjárhæð kr. 101.255.000 í lóðina við Þorraholt 2.
Bæjarráð vísar tilboðinu á þessu stigi til nánari skoðunar bæjarstjóra.