Beint í efni

37. (1995). fundur

28.09.2021
Bæjarráð Garðabæjar

37. (1995). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

28.09.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2109397

01

Svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um almenningssamgöngur í Urriðaholti.

Á fundi bæjarráð mætti Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda og gerði nánari grein fyrir svari við fyrirspurn varðandi almenningssamgöngur í Urriðaholti. Fram komu upplýsingar um nýtingu á leið 22 og pöntunarþjónustu í Urriðaholti.

Lögð fram eftirfarandi tillaga um bætta þjónustu almenningssamgangna í Urriðaholti með tíðari strætóferðum frá og með 1. október 2021. Samkvæmt tillögunni verður aukin tíðni á leið 22 Ásgarður-Urriðaholt-Ásgarður sem hér segir:

- Virka daga mun vagninn aka allan daginn á 30 mín tíðni frá kl. 07:00-20:00 og pöntunarþjónusta á 30 mín tíðni frá kl. 20:00-23:30.

- Á laugardögum mun vagninn aka allan daginn á 30 mín tíðni frá kl. 8:00-19:00 og pöntunarþjónusta á 30 mín tíðni frá kl. 19:00-23:30

- Á sunnudögum mun vagninn aka allan daginn á 30 mín tíðni frá kl. 10:00-19:00 og pöntunarþjónusta á 30 mín tíðni frá kl.19:00-23:30.

Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um bætta þjónustu almenningssamgangna í Urriðaholti.

Sara Dögg Svanhildardóttir lagði fram eftirfarandi bókun

„Garðabæjarlistinn fagnar þeirri ákvörðun að stórauka skuli þjónustu við íbúa Urriðaholts með aukinni tíðni strætóferða til og frá hverfi líkt og við í Garðabæjarlistanum höfum ítrekað talað fyrir og lagt til. Aukin þjónusta mun ekki síst hafa mikil áhrif á þjónustu við börn og ungmenni sem við fögnum mjög.“

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1907227

02

Viðhald og endurnýjun götulýsingar í Garðabæ.

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir áætlun um viðhald og endurnýjun götulýsingar. Fram kom að unnið er að undirbúningi útboðs vegna viðhaldsþjónustu og Ledvæðingar götulýsingar.

Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.

Málsnúmer 2108455

03

Furulundur 9 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurbirni K. Haraldssyni, kt. 291053-4409, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Furulundi 9.

Eysteinn Haraldsson, bæjarverkfræðingur vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2105710

04

Smáraflöt 42 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um endurnýjun á leyfi til handa Heiðrúnu Perlu Heiðarsdóttur, kt. 141170-5629 fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishúss að Smáraflöt 42.

Málsnúmer 2107321

05

Tilboð í byggingarrétt lóðar við Þorraholt 2.

Bæjarráð samþykkir tilboð Sentor ehf., kt. 480506-0810, að fjárhæð kr. 101.255.000 í byggingarrétt lóðarinnar við Þorraholt 2.

Tilboðsgjafa skal tilkynnt um um samþykkt tilboðs og um skil á gögnum um fjárhagsstöðu, fjármögnun lóðar og byggingarframkvæmda.

Málsnúmer 2109455

06

Bréf UMF- Stjörnunnar um úthlutun lóðar fyrir auglýsingaskilti í Molduhrauni, dags. 22.09.21.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindi og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2103060

07

Tillaga um val á ráðgjöfum vegna skipulagsvinnu á þróunarsvæði A og Hafnarfjarðarvegar.

Bæjarráð samþykkir tillögu um að auglýsa eftir ráðgjöfum til að vinna að gerð rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlana fyrir þróunarsvæði A ásamt Hafnarfjarðarvegi milli bæjarmarka.

Málsnúmer 2109328

08

Tölvureglur fyrir starfsmenn Garðabæjar.

Lagðar fram til kynningar tölvureglur Garðabæjar en um er að ræða vinnureglur og leiðbeiningar um tölvubúnað og kerfi til notkunar fyrir starfsmenn Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109454

09

Bréf Hestamannafélagsins Spretts um niðurfellingu fasteignagjalda 2021.

Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 2.210.451 til greiðslu fasteignagjalda árið 2021.

Málsnúmer 2109445

10

Erindi K.Á varðandi geymslusvæði fyrir ferðavagna, dags. 18.09.21.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2105101

11

Afgreiðsla menningar- og safnanefndar og íþrótta- og tómstundaráðs varðandi erindi Secret Solstice um tónlistarhátíð í Garðabæ.

Í umsögn bæði menningar- og safnanefndar og íþrótta- og tómstundaráðs kemur fram að vegna áforma um framkvæmdir svæðinu m.a. byggingu nýs leikskóla er það niðurstaða beggja nefnda að Vífilsstaðatún sé ekki heppilegur vettvangur fyrir hina árlegu tónlistarhátíð Secret Soltice

Bæjarráð tekur undir umsögn nefndanna um að Vífilsstaðatún sé ekki heppilegur vettvangur fyrir hina árlegu tónlistarhátíð Secret Soltice. Bæjarstjóra falið að tilkynna forsvarsmönnum hátíðarinnar um niðurstöðu málsins.

Málsnúmer 2109431

12

Tilkynning Jafnréttisstofu og Sambands ísl. sveitarfélaga um landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga 14. október 2021.

Lögð fram.

Málsnúmer 1906094

13

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í íslenskum sveitarfélögum, dags. 17.09.21.

Bæjarráð samþykkir að Garðabær sæki um þátttöku í verkefninu og tilnefnir Björgu Fenger, forseta bæjarstjórnar og Sunnu G. Sigurðardóttur, verkefnastjóra fulltrúa Garðabæjar til að taka ábyrgð á innleiðingu verkefnisins hjá Garðabæ.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109504

14

Ósk Garðabæjarlistans um minnisblað um stöðu innleiðingar innkaupa og úrgangsstefnu Garðabæjar.

Bæjaráð felur bæjarstjóra að láta vinna minnisblað um stöðu innleiðingar innkaupa- og úrgangstefnu Garðabæjar.

Sara Dögg Svanhildardóttir leggur fram eftirfarandi tillögu.

„Garðabæjarlistinn leggur til að settur verði á laggirnar starfshópur um innleiðingu loftslagsstefnu Garðabæjar. Verkefnið er brýnt og sveitarfélögum ber lögum samkvæmt að setja sér loftslagsstefnu fyrir lok ársins 2021.“

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar umhverfisnefndar.

Fylgiskjöl