Beint í efni

34. (1992). fundur

14.09.2021
Bæjarráð Garðabæjar

34. (1992). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

14.09.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2107277

01

Keldugata 2 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Keldugötu 2 ehf., kt. 620920-1500, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 9 íbúðum á lóðinni við Keldugötu 2.

Málsnúmer 2107049

02

Spítalavegur 2b Mánahvoll - leikskóli - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita tækni- og umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að byggja sex deilda leikskóla við Spítalaveg 2b.

Málsnúmer 2106536

03

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025) - drög að forsendum.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir forsendum og vinnuferlum vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2022 (2022-2025).

Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði 26. október 2021 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 4. nóvember 2021. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 2. desember 2021.

Bæjarráð samþykkir forsendur og verkferla fjárhagsáætlunar 2022.

Málsnúmer 2109116

04

Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins varðandi drög að breytingum á leiðbeiningum um ritun fundargerða og notkun fjarfundarbúnaðar, dags. 01.09.21

Bæjarráð lýsir yfir jákvæðri afstöðu til þess að sveitarstjórnarmönnum verði heimilt að taka þátt í fundum sveitarstjórnar, nefnda og ráða með rafrænum hætti og felur bæjarstjóra að undirbúa tillögu um breytingu á samþykkt stjórn Garðabæjar þar sem kveðið verði á um heimild til rafrænna funda í bæjarstjórn, nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins.

Málsnúmer 2109117

05

Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð við Vetrarbraut.

Eftirfarandi tilboð bárust í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð við Vetrarbraut.

Strendingur ehf. kr. 9.425.000

VSB Verkfræðistofa kr. 10.202.450

Verkfræðistofa Reykjavíkur ehf. kr. 10.949.860

Verkís hf. kr. 11.549.850

VSÓ Ráðgjöf ehf. kr. 11.851.920

Hnit verkfræðistofa ehf. kr. 11.928.800

Mannvit hf. kr. 13.122.500

Kostnaðaráætlun kr. 12.370.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Strendings ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda

Málsnúmer 2109165

06

Bréf Golfklúbbsins Odds og Golfsambands Íslands um styrk vegna Evrópumóts stúlknalandsliða 2022, dags. 06.09.21.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2105286

07

Bréf Sjúkratrygginga Íslands varðandi afturköllun Hrafnistu á samningi um starfsemi Ísafoldar, dags. 01.09.21.

Í bréfinu er upplýst um að Sjómannadagsráð hefur dregið til baka uppsögn sína á rekstri hjúkrunarheimilisins Ísafoldar og að reksturinn verði áfram á vegum Sjómannadagsráðs og Hrafnistu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109217

08

Bréf Almannaheilla - samtök þriðja geirans varðandi vettvang fyrir samfélagslega nýsköpun í Garðabæ, dags. 08.09.21

Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með fulltrúum samtakanna en í bréfinu kemur fram að samtökin hafa fengið húsnæði fyrir starfsemi sína í Garðabæ. Bæjarráð lýsir ánægju með starfsemi samtakanna við að leita nýrra leiða til að mæta þörfum og koma með skapandi lausnir, beita hugviti og nýsköpun í samfélagsþjónustu.

Bæjarráð vísar bréfinu til leikskólanefndar, skólanefndar grunnskóla, fjölskylduráðs, íþrótta- og tómstundaráðs og menningar- og safnanefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109149

09

Greinargerð yfirflokkstjóra umhverfishópa - hreinn bær - betri bær sumarið 2021.

Lögð fram greinargerð yfirflokkstjóra umhverfishópa sumarið 2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109223

10

Tilkynning Skipulagsstofnunar um ný lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, dags. 01.09.21

Lögð fram.

Málsnúmer 2109227

11

Tilkynning umhverfis- og auðlindaráðuneytisins varðandi aðgerðaáætlun um aukna vernd votlendis, dags. 08.09.21.

Málsnúmer 2107183

12

Útboð þjónustu iðnaðarmanna - raflagnir.

Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 13. júlí 2021 voru lögð fram tilboð í þjónustu rafvirkja. Einn bjóðenda kærði útboðið og hefur af þeirri ástæðu ekki verið tekin afstaða til tilboða. Kæran er enn til meðferðar hjá kærunefnd útboðsmála.

Gildistími tilboða er runnin út og ekki hefur verið leitað eftir framlengingu á gildistíma tilboða sem er háð því að fyrir liggi samþykki allra bjóðenda.

Útboðið telst því fallið niður og samþykkir bæjarráð að þjónusta rafvirkja verði boðin út að nýju.

Málsnúmer 2109239

13

Tilkynning heilbrigðisráðuneytisins varðandi fyrstu áfangaskýrslur um óbein áhrif COVID-19 á samfélagið, dags. 09.09.21.

Lögð fram og vísað til skólanefndar, leikskólanefndar, fjölskylduráðs og íþrótta- og tómstundaráðs og menningar- og safnanefndar.

Málsnúmer 2108194

14

Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi starfsleyfi Rio Tinto í Straumsvík, dags. 09.09.21.

Í bréfinu eru vakin athygli á umfjöllun heilbrigðisnefndar um tillögu að nýju starfsleyfi fyrir álver Rio Tinto á Íslandi hf. í Straumsvík sem er til meðferðar hjá Umhverfisstofnun.

Heilbrigðisnefndin gerir athugasemd við að óbreytt vöktunaráætlun gildi til 2029 og bendir á að leggja þarf fram raunhæft mat á þörf vöktunar á Garðaholti.

Bæjarráð ítrekar bókun frá fundi 20. apríl 2021 og felur bæjarstjóra að koma henni á framfæri við umhverfisstofnun.

„Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um að nauðsynlegt sé við endurútgáfu á starfsleyfi fyrir Álverið í Straumsvík að bæta vöktunaráætlun vegna flúormælinga í gróðri fyrir svæðið í heild og þar með talið svæðið á Garðaholti.“

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109240

15

Bréf Vegagerðarinnar varðandi ósk um viðræður vegna skilavega, dags. 07.09.21.

Í bréfinu er farið fram á að Garðabær tilnefni tengilið til að taka þátt í viðræðum og undirbúningi að því að Garðabær taki yfir veghald á Vífilsstaðvegi og Elliðavatnsvegi að uppfylltum skilyrðum varðandi viðhaldsástand.

Bæjarráð tilnefnir Eystein Haraldsson, bæjarverkfræðing sem tengilið Garðabæjar vegna verkefnisins og felur bæjarstjóra að fylgja eftir kröfu gagnvart ríkinu um fjármögnum vegna framtíðarrekstrar við veghaldið.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109206

16

Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru vegna lokaúttektar byggingar að Sjónarvegi 1, dags. 07.09.21.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Málsnúmer 2107321

17

Tilboð í byggingarrétt lóða við Þorraholt.

Lagt fram tilboð frá Sentor ehf., kt. 480506-0810 að fjárhæð kr. 101.255.000 í lóðina við Þorraholt 2.

Bæjarráð vísar tilboðinu á þessu stigi til nánari skoðunar bæjarstjóra.