Beint í efni

Skilavegir samkvæmt vegalögum

Málsnúmer 2109240

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (897). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samning Vegagerðarinnar og Garðabæjar um yfirfærslu veghalds. (Mál nr. 2109240)

Bæjarráð Garðabæjar

02

1. (2008). fundur

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir samningi við Vegagerðina um yfirfærslu veghalds.

Gert er ráð fyrir að veghald eftirfarandi vega færist yfir til Garðabæjar frá og með 1. janúar 2022.

Arnarnesvegur nr. 411-02, frá Hegranesi að Hafnarfjarðarvegur.

Vífilsstaðavegur nr. 412-01, frá Hafnarfjarðarvegi að Reykjanesbraut.

Vífilsstaðavegur nr. 412-02, frá Reykjanesbraut að Elliðavatnsvegi.

Álftanesvegur nr. 415-02, frá Reykjarnesbraut að Garðahrauni.

Vegagerðin mun greiða Garðabæ kr. 82.410.000 til að koma viðkomandi vegum í viðunandi ástand.

Í samningum gerir Garðabær eftirfarandi fyrirvara.

Fyrirvari samkvæmt 6. gr. samningsins.

„Samningar hafa ekki tekist um að fjármunir sem Vegagerðin hefur haft til reksturs og viðhalds þeirra vega sem færast til Garðabæjar við yfirfærslu veghalds samkvæmt vegalögum, 1. janúar 2022. Í greinargerð með lögum nr. 14/2015 kemur fram sá vilji löggjafans að „ekki [sé]gert ráð fyrir að í yfirfærslunni felist aukinn kostnaður fyrir sveitarfélögin“ og að „gert er ráð fyrir að það fjármagn sem nú er á hendi Vegagerðarinnar vegna veghalds þessara vega færist yfir til sveitarfélaganna samhliða yfirfærslunni á grundvelli samninga.“ Því lítur Garðabær svo á að þeim þætti sem lýtur að fjármögnun reksturs og viðhalds umræddra vega til framtíðar sé ólokið. Er því fyrirvari gerður við undirskrift þessa samkomulags og áskilnaður um allan rétt sveitarfélagsins til að leita réttar síns hvað þetta varðar.

Garðabær gerir þann fyrirvara að yfirfærsla veghalds Álftanesvegar frá Reykjanesbraut að Garðahrauni eigi ekki að leiða til aukins kostnaðarhlutar bæjarins við framtíðar endurgerð vegamóta Álftanesvegar og Reykjanesbrautar frá því sem væri ef vegurinn væri áfram í veghaldi Vegagerðarinnar.

Vegagerðin tekur ekki afstöðu til fyrirvara Garðabæjar en áskilur sér rétt til þess síðar verði tilefni til.“

Fyrirvari samkvæmt 7. gr. samningsins.

„Samningsaðilar munu skoða möguleika á því að leggja Álftanesveg frá Engidal að Reykjanesbraut en slík framkvæmd er háð því að ákvarðanir verði teknar um breytta flokkun vegarins.“

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samningsins.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

48. (2006). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir að gerðar hafa verið athugasemdir við Vegagerðina varðandi að Álftanesvegurinn er meðal vega sem tilgreindir eru.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

04

34. (1992). fundur

Í bréfinu er farið fram á að Garðabær tilnefni tengilið til að taka þátt í viðræðum og undirbúningi að því að Garðabær taki yfir veghald á Vífilsstaðvegi og Elliðavatnsvegi að uppfylltum skilyrðum varðandi viðhaldsástand.

Bæjarráð tilnefnir Eystein Haraldsson, bæjarverkfræðing sem tengilið Garðabæjar vegna verkefnisins og felur bæjarstjóra að fylgja eftir kröfu gagnvart ríkinu um fjármögnum vegna framtíðarrekstrar við veghaldið.

Fylgiskjöl