48. (2006). fundur
48. (2006). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
14.12.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2111122
01
Tilboð í byggingarrétt lóða við Kumlamýri.
Alls bárust 84 umslög með tilboðum í lóðir við Kumlamýri á Álftanesi.
Á fundinum voru umslög með tilboðum opnuð og nöfn tilboðsgjafa skráð ásamt tilboðsverði. Fjöldi tilboða reyndist vera 84. Sjá fylgiskjal með fundargerð.
Tilboð verða yfirfarin og tekin fyrir að nýju á fundi bæjarráðs 21. desember nk.
Þeir tveir einstaklingar sem eiga hæsta sameiginlega tilboð í tvær samliggjandi lóðir fá fyrsta rétt til að velja lóðir á svæðinu. Næsta valrétt eiga þeir sem eiga næsthæsta tilboð og svo koll af kolli.
Skilyrði fyrir samþykki tilboðs er að tilboðsgjafar séu fjárráða og ekki í vanskilum við Garðabæ.
Þegar tilboð í samliggjandi lóðir hefur verið samþykkt skal viðkomandi tilboðsgjöfum veittur frestur í 14 daga til að leggja fram staðfestingu banka eða lánastofnunar varðandi fjárhagsstöðu sína, fjármögnun lóðar og skal koma fram að báðir tilboðsgjafarnir í sameiginlegu tilboði geti staðið undir kostnaði sem áætlaður er vegna byggingarframkvæmda, greiðslu gatnagerðargjalda og kaupa á byggingarrétt lóðarinnar.
Tilboðsfjárhæð fyrir byggingarrétt skal innt af hendi innan 20 daga frá samþykki bæjarráðs á tilboðum. Gatnagerðargjald skal greitt við útgáfu á byggingarleyfi.
Sólveig Helga Jóhannsdóttir, skipulagsfræðingur og Hulda Hauksdóttir, upplýsingastjóri lásu upp tilboðin og skráðu nöfn tilboðsgjafa og tilboðsverð.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006130
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 Viðaukar nr. 6, nr. 7 og nr 8.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 6, nr. 7 og nr. 8 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 6, nr. 7 og nr. 8 við fjárhagsáætlun 2021 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 6
Leikskóla
Eftirfarandi þarf að bæta við leikskóla vegna:
Undirbúningstíma faglærðra skv. kjarasamningum (aukin mönnun) langtímaveikinda, lækkunar tekna vegna niðurfellingar á leikskólagjöldum vegna Covid og hækkunar rekstrartengdra liða vegna covid.
Leikskóladeild Flataskóla 8.000.000 04118-
Lundaból 14.000.000 04114-
Sunnuhvoll 10.000.000 04115-
Kirkjuból 5.000.000 04113-
Leikskólinn Krakkakot 6.000.000 04119-
Hnoðraholt Hjalli 15.000.000 04168-
Litlu Ásar 10.000.000 04165-
Leikskólinn Ásar 10.000.000 04161-
Leikskólinn Sjáland 10.000.000 04116-
Dagvistargjöld
Vegna námsvistargjalda leikskólabarna
í öðrum sveitarfélögum
og einkaskólum þarf að bæta við um 40 mkr.
við fjárhagsáætlun 40.000.000 04167-4364
Leikskólar og dagvistargjöld samtals 128.000.000
Grunnskólar
Eftirfarandi þarf að bæta við grunnskólana vegna aukins launakostnaðar umfram áætlun vegna langtímaveikinda og hækkunar rekstrartengdra liða
vegna covid:
Flataskóli 25.000.000 04211-
Garðaskóli 20.000.000 04212-
Sjálandsskóli 20.000.000 04214-
Barnaskóli Hjallastefnunnar 14.000.000 04263-4364
Grunnskólar samtals 79.000.000
Frístundaheimili
Frístund Flataskóli 1.500.000 04281-
Frístund Hofsstaðaskóli 4.000.000 04283-
Frístund Álftanessskóli 2.500.000 04286-
Frístund Urriðaholtsskóli 3.000.000 04287-
Frístundaheimili önnur
(börn í sérskólum og skólum í öðrum sveitarfél.) 65.000.000 04290-9195
Frístund samtals 76.000.000
Samtals útgjaldaauki 283.000.000
Fjármögnun viðauka
Viðauka er mætt með hækkun á byggingarrétti - 283.000.000 31400-0397
Viðauki 7
Stoðþjónusta - sólarhringsþjónusta vegna málefna fatlaðs fólks
Vegna fjölgunar þjónustuþega og hækkunar á töxtum NPA samninga þarf að bæta við fjárhagsáætlun ársins í stoð- og stuðningsþjónusutu.
Stoðþjónusta
Frekari liðveisla 138.000.000 02530-
Stuðningsþjónusta 8.000.000 02550-
Búsetuúrræði og sólarhringsþjónusta -27.000.000 02575-
Skammtímavistun og dagþjónusta -25.000.000 02575-4369
Sambýli Ægisgrund
Vegna fjölgunar heimilismanna
og langtímaveikinda 8.000.000 02561-
Sigurhæð
Breyting á rekstri heimilisins frá áramótum 8.000.000 02562-
Skammtímavistun Móaflöt
Hækkun á launaliðum, veikindalaun
umfram þegar samþykkta áætlun. 8.000.000 02571-
Önnur þjónusta - akstur
Skólaakstur m.a. á Álftanes vegna flutnings
frístundaheimilis 5.-10. bekkur 3.000.000 02590-4114
Akstur með fatlað fólk, meiri kostnaður vegna
Covid, fáir í bílum. 9.000.000 02590-4118
Fjárhagsaðstoð
Framlag frá ríkinu -19.000.000 02110-0990
Önnur félagsleg hjálp
Niðurgreidd leikskólagjöld forgangshópar 3.000.000 02190-9175
Niðurgreidd gjöld frístundaheimila 1.000.000 02190-9176
Fjölskyldusvið - skrifstofa
Langtímaveikindi, launaliðir 18.000.000 02020-1111
Samtals útgjaldaauki 133.000.000
Fjármögnun viðauka
Endurútreikningur vegna sorphirðu -55.000.000 08210-4943
Jöfnunarsjóður málefni fatlaðs fólks -26.000.000 00100-0148
Staðgreiðsla útsvars -52.000.000 00010-0021
Samtals -133.000.000
Viðauki 8
Breyting á framkvæmdayfirliti
Á fundi bæjarráðs 2. mars 2021 var samþykkt umsókn Bjargs íbúafélags um stofnframlag sbr. fund bæjarráðs 23. júní 2020 vegna umsóknar félagsins um byggingu 17 almennra íbúða að Maríugötu 5 í Urriðaholti. Íbúðum var fjölgað um 5 frá fyrri samþykkt. Garðabær greiðir 12% framlag af stofnverði.
Kaup á lóðinni Maríugata 5 af Urriðaholti ehf 50.000.000
Stofnframlag Garðabæjar 110.000.000
Fjármögnun:
Seldur byggingarréttur -160.000.000
Málsnúmer 2101097
03
Kinnargata 21 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830 leyfi fyrir breytingu á innra skipulagi einbýlishúss í byggingum að Kinnargötu 21.
Málsnúmer 2103060
04
Tillaga um val á ráðgjafa teymi til að vinna að gerð rammahluta aðalskipulags og deiliskipulagsáætlana fyrir þróunarsvæði A.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir minnisblaði matshóps sem skipaður var fimm fulltrúum, fjórum frá Garðabæ auk utanaðkomandi ráðgjafa. Í hópnum sátu Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri, Guðbjörg Brá Gísladóttir deildarstjóri umhverfis og framkvæmda, Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Sólveig H. Jóhannsdóttir skipulagsfræðingur og Svanhildur Gunnlaugsdóttir landslagsarkitekt hjá Landform ehf á Selfossi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja niðurstöðu matshópsins um að leita samninga við ráðgjafateymi sem skipað er ráðgjöfum frá Arkþing/Nordic og Eflu verfræðistofu til að vinna að skipulagi þróunarsvæðis A og Hafnarfjarðarvegar
Á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið voru Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri, Guðbjörg Brá Gísladóttir deildarstjóri umhverfis og framkvæmda, Sólveig H. Jóhannsdóttir skipulagsfræðingur.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101200
05
Útboðsskilmálar vegna innkaupa á þjónustu iðnaðarmanna á sviði rafiðnaðar.
Lagðir fram til kynningar útboðsskilmálar vegna þjónustu iðnarmanna ? raflagnir.
Bæjarráð samþykkir að útboð verði auglýst á grundvelli fyrirliggjandi skilmála.
Málsnúmer 2109350
06
Bréf Minjastofnunar Íslands varðandi friðlýsingu Litlabæjarvarar 4, dags.
Í bréfinu kemur fram að mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að friðlýsa ytra borð og frágang gólfs, lofts og veggja einbýlishússins að Litlabæjarvör 4 á Álftanesi í Garðabæ.
Friðlýsingarskjali verður þinglýst á eignina.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911396
07
Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi loftlagsstefnu Garðabæjar.
Bæjarráð vísar tillögu umhverfisnefndar um loftlagsstefnu Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar. Um er að ræða loftlagsstefnu til að gilda fyrir stofnanir bæjarins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2112120
08
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru vegna ákvörðunar um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Frjóakur 9, dags.09.12.21.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2112061
09
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru vegna ákvörðunar um deiliskipulagsbreytingu lóða nr. 6 og 8 við Eskiás, dags. 06.12.21.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2106022
10
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi beiðni um endurupptöku úrskurðar í máli varðandi deiliskipulag Ása og Grunda, dags. 06.12.21.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2112146
11
Drög að samkomulagi við Urriðaholt ehf. um lok uppbyggingar byggðar í Urriðaholti - Viðauki XI.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir samkomulagi við Urriðaholt um lok uppbyggingar í Urriðaholti.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulag við Urriðaholt ehf. um lok uppbyggingu byggðar í Urriðaholti.
Málsnúmer 2112135
12
Beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.
Bæjarráð vísar beiðninni til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2112151
13
Fyrirspurn varðandi aðkomu bæjaryfirvalda að bólusetningum barna gegn Covid-19
Bæjarráð vísar fyrirspurninni til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2112153
14
Umsögn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2022.
Í umsögninni er lögð áhersla á eftirfarandi þætti.
Þjónustu við fatlað fólk.
Yfirfærslu vega frá ríki til sveitarfélaga.
Framlag til almenningssamgangna.
Bæjarráð tekur undir áherslur SSH um að tryggðar verði fjárveitingar til að standa undir þjónustu við ofangreinda málaflokka.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2107183
15
Svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans vegna úrskurðar kærunefndar útboðsmála í máli nr. 25/2021.
Málsnúmer 2109240
16
Bréf Vegagerðarinnar varðandi yfirfærslu veghalds frá Vegagerðinni til Garðabæjar, dags.06.12.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að gerðar hafa verið athugasemdir við Vegagerðina varðandi að Álftanesvegurinn er meðal vega sem tilgreindir eru.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2103143
17
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi drög að samningi um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið, dags. 10.12.21.
Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.