Beint í efni

Kumlamýri - úthlutun lóða og sala byggingarréttar.

Málsnúmer 2111122

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (943). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

10. (943). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

22. (2123). fundur

Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 4. júní 2024 voru opnuð tilboð í 4 parhúsalóðir við Kumlamýri. Alls bárust 36 tilboð sem skiptust þannig:

Tilboð í Kumlamýri 5-7 7

Tilboð í Kumlamýri 6-8 12

Tilboð í Kumlamýri 17-19 8

Tilboð í Kumlamýri 21-23 9

Sömu einstaklingar áttu hæsta tilboð í 3 parhúsalóðir, en hafa fallið frá tilboð sínu í 2 lóðir.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboðum í lóðir í Kumlamýri, þar sem lagt er til grundvallar hæsta verð í samræmi við söluskilmála. Tilboðin eru samþykkt með fyrirvara um að tilboðsgjafar uppfylli öll skilyrði um hæfi skv. söluskilmálum. Tilboðsgjöfum er veittur frestur til kl. 16:00 fimmtudaginn 20. júní 2024 til að skila tilskildum gögnum.

Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til að samþykkja tilboð í lóðir í þeim tilvikum sem tilboðsgjafar falla frá tilboðum sínum eða uppfylla ekki hæfisskilyrði. Skal þá lagt til grundvallar að taka tilboðum frá þeim aðilum sem eru næsti í röðinni hvað varðar tilboðsverð, enda séu uppfyllt skilyrði í söluskilmálum.

Hæstu tilboð í einstaka lóðir voru:

Tilboðsgjafi Lóð Tilboðsfjárhæð

Ásland 4 ehf. Kumlamýri 5-7 39.100.000

Karl Jónsson og Sigurður

Halldór Bjarnason Kumlamýri 6-8 44.000.000

Karl Jónsson og Sigurður

Halldór Bjarnason Kumlamýri 17-19 44.000.000

Karl Jónsson og Sigurður

Halldór Bjarnason Kumlamýri 21-23 47.000.000

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

9. (942). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

05

21. (2122). fundur

Lögð voru fram óopnuð umslög með tilboðum í byggingarrétt lóða við Kumlamýri 5-7, 6-8, 17-19 og 21-23, sbr. samþykkt bæjarráðs frá fundi 7. maí sl. um sölu á byggingarrétti lóða við Kumlamýri og tilkynningu á vef Garðabæjar. Tilboðin komu frá söluaðilum, þ.e. Torg - fasteignasölu, Garðatorg eignamiðlun, Fasteignamarkaðinum og Fasteignasölunni Miklaborg. Umslögin voru opnuð og tilboðin flokkuð eftir tegundum lóða. Samtals bárust 161 tilboð. Tilboðin verða skráð, flokkuð nánar og tekin til afgreiðslu á fundi bæjarráðs þriðjudaginn 11. júní 2024.

Bæjarráð Garðabæjar

06

17. (2118). fundur

Bæjarráð samþykkir skilmála um sölu á byggingarétti lóða við Kumlamýri. Lóðirnar verða auglýstar á vef Garðabæjar og hjá tilgreindum fasteignasölum. Bæjarráð samþykkir að lóðirnar verði auglýstar til sölu hjá fasteignasölum með 14 daga tilboðsfresti. Tilboð verða opnuð á fundi bæjarráðs, þriðjudaginn 28. maí 2024.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

1. (897). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

08

49. (2007). fundur

Tilboð í byggingarrétt parhúsalóða í Kumlamýri hafa verið yfir farin. Um er að ræða úthlutun og sölu byggingaréttar 26 parhúsalóða í Kumlámýri.

Draga þarf um röð jafnhárra tilboð

Ingi Örn Gíslason og Böðvar Jónsson kr. 38.000.000

Björn Sigurðsson og Helgi Gunnarsson kr. 38.000.000

Hjálmtýr Bergsson Sandholt og Theodóra Stella Hafsteinsdóttir kr. 36.000.000

Gunnar Örn Hilmarsson og Sigurður Jóhann Stefánsson kr. 36.000.000

Gísli Sveinbjörnsson og Trausti Finnbogason kr. 36.000.000

Arnar Rósenkrans Hilmarsson og Helen Viggósdóttir kr. 36.000.000

Draga þarf um tvo tilboð sem tilboðsfjárhæðir í lóðir nr. 25 og 26 eru jafnháar.

Lea Helgadóttir og Bergur Sandholt kr. 34.000.000

Haukur Gunnarsson og Gunnar Guðbrandsson kr. 34.000.000

Miðar með nöfnum tilboðsgjafa voru sett í box og formaður bæjarráðs dró miða með nöfnum:

Að drætti loknum er röðin þessi:

1. Jóhann Svavar Jóhannsson og Krystian Jerzy Sadowski kr. 47.340.000

2. Jónas Pétur Ólason og Luke Shearman kr. 40.200.000

3. Sigurður H. Sigurðsson og Sigurður Jensson kr. 40.000.000

4. Björn Sigurðsson og Helgi Gunnarsson kr. 38.000.000

5. Ingi Örn Gíslason og Böðvar Jónsson kr. 38.000.000

6. Steinþór Ólafsson og Pétur Ingason kr. 37.000.000

7. Gísli Sveinbjörnsson og Trausti Finnbogason kr. 36.000.000

8. Hjálmtýr B. Sandholt og Theodóra S. Hafsteinsdóttir kr. 36.000.000

9. Arnar Rósenkr Hilmarsson og Helen Viggósdóttir kr. 36.000.000

10. Gunnar Örn Hilmarsson og Sigurður Jóhann Stefánsson kr. 36.000.000

11. Páll Hólm Sigurðsson og Björgvin Gestsson kr. 35.200.000

12. Valdimar Ólafsson og Gylfi Jens Gylfason kr. 34.865.000

13. Haukur Gunnarsson og Gunnar Guðbrandsson kr. 34.000.000

14. Lea Helgadóttir og Bergur Sandholt kr. 34.000.000

Bæjarráð samþykkir tilboð ofangreindra einstaklinga samkvæmt töluliðum 1-13 í byggingarrétt lóða í Kumlamýri. Tilboðsgjafi nr. 14 er á biðlista eins og aðrir tilboðsgjafar í röð miðað við fjárhæð tilboða.

Þeir tveir einstaklingar sem eiga hæsta sameiginlega tilboð í tvær samliggjandi lóðir fá fyrsta rétt til að velja lóðir á svæðinu. Næsta valrétt eiga þeir sem eiga næsthæsta tilboð og svo koll að kolli.

Tilboðsgjöfum verður sendur tölvupóstur til staðfestingará samþykki tilboðs. Frestur til að að leggja fram staðfestingu banka eða lánastofnunar varðandi fjárhagsstöðu sína, fjármögnun lóðar er 14 dagar frá og með 1. janúar 2022. Í staðfestingu skal koma fram að báðir tilboðsgjafar í sameiginlegu tilboði geti staðið undir kostnaði sem áætlaður er vegna byggingarframkvæmda, greiðslu gatnagerðargjalda og kaupa á byggingarrétt lóðarinnar.

Tilboðsfjárhæð fyrir byggingarrétt skal innt af hendi fyrir 4. febrúar 2022.

Tilboðsgjafar verða boðaðir til fundar í Sveinatungu í tveimur hópum 1-7 og 8-13 þar sem val á lóðum fer fram.


Bæjarráð Garðabæjar

09

48. (2006). fundur

Alls bárust 84 umslög með tilboðum í lóðir við Kumlamýri á Álftanesi.

Á fundinum voru umslög með tilboðum opnuð og nöfn tilboðsgjafa skráð ásamt tilboðsverði. Fjöldi tilboða reyndist vera 84. Sjá fylgiskjal með fundargerð.

Tilboð verða yfirfarin og tekin fyrir að nýju á fundi bæjarráðs 21. desember nk.

Þeir tveir einstaklingar sem eiga hæsta sameiginlega tilboð í tvær samliggjandi lóðir fá fyrsta rétt til að velja lóðir á svæðinu. Næsta valrétt eiga þeir sem eiga næsthæsta tilboð og svo koll af kolli.

Skilyrði fyrir samþykki tilboðs er að tilboðsgjafar séu fjárráða og ekki í vanskilum við Garðabæ.

Þegar tilboð í samliggjandi lóðir hefur verið samþykkt skal viðkomandi tilboðsgjöfum veittur frestur í 14 daga til að leggja fram staðfestingu banka eða lánastofnunar varðandi fjárhagsstöðu sína, fjármögnun lóðar og skal koma fram að báðir tilboðsgjafarnir í sameiginlegu tilboði geti staðið undir kostnaði sem áætlaður er vegna byggingarframkvæmda, greiðslu gatnagerðargjalda og kaupa á byggingarrétt lóðarinnar.

Tilboðsfjárhæð fyrir byggingarrétt skal innt af hendi innan 20 daga frá samþykki bæjarráðs á tilboðum. Gatnagerðargjald skal greitt við útgáfu á byggingarleyfi.

Sólveig Helga Jóhannsdóttir, skipulagsfræðingur og Hulda Hauksdóttir, upplýsingastjóri lásu upp tilboðin og skráðu nöfn tilboðsgjafa og tilboðsverð.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

10

43. (2001). fundur

Bæjarstjóri kynnti skilmála um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar lóða við Kumlamýri á Álftanesi.

Um er að ræða úthlutun og sölu byggingarréttar 26 lóða við Kumlamýri.

Í skilmálunum kemur fram að einungis einstaklingar geta gert tilboð í lóðirnar og þurfa tveir einstaklingar saman að gera tilboð í hverja samliggjandi parhúsalóð og eru sameiginlega ábyrgir fyrir greiðslu byggingarréttargjalds. Lágmarkstilboð byggingarréttar í hverja einstaka parhúsalóð er kr. 10.000.000.

Bæjarráð samþykkir að lóðir við Kumlamýri verði auglýstar til úthlutunar.