Beint í efni

17. (2118). fundur

07.05.2024
Bæjarráð Garðabæjar

17. (2118). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

07.05.2024

Kl. 08:00 - 9:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - varamaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2312283

01

Austurhraun 3 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingafulltrúa að veita Halli Kristmundssyni, kt. 220573-3899, leyfi til breytinga á innra skipulagi á 2. hæð hússins ásamt afleiddum framkvæmdum.

Málsnúmer 2306581

02

Blikanes 27 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sveini Biering Jónssyni, kt. 141282-5149, leyfi fyrir stækkun og breytingum á útliti og innra skipulagi hússins ásamt því að fjölga bílastæðum á lóð.

Málsnúmer 2111122

03

Kumlamýri - úthlutun lóða og sala byggingarréttar.

Bæjarráð samþykkir skilmála um sölu á byggingarétti lóða við Kumlamýri. Lóðirnar verða auglýstar á vef Garðabæjar og hjá tilgreindum fasteignasölum. Bæjarráð samþykkir að lóðirnar verði auglýstar til sölu hjá fasteignasölum með 14 daga tilboðsfresti. Tilboð verða opnuð á fundi bæjarráðs, þriðjudaginn 28. maí 2024.

Málsnúmer 2404377

04

Prýðahverfi - úthlutun lóða og sala byggingarréttar.

Bæjarráð samþykkir skilmála um sölu á byggingarétti lóða við Steinprýði, Kjarrprýði og Garðaprýði. Lóðirnar verða auglýstar á vef Garðabæjar og hjá tilgreindum fasteignasölum. Bæjarráð samþykkir að lóðirnar verði auglýstar til sölu hjá fasteignasölum með 14 daga tilboðsfresti. Tilboð verða opnuð á fundi bæjarráðs, þriðjudaginn 28. maí 2024.

Málsnúmer 2405028

05

Tilboð í lóð fyrir veitingahús við Breiðumýri á Álftanesi.

Lögð er fram umsókn Pálmars Harðarsonar og Guðfinns S. Karlssonar í lóð við Breiðumýri 2, Álftanesi, en auglýst var eftir áhugasömum aðilum til að byggja og starfrækja veitingahús á lóðinnni.

Mat mun lagt á umsóknina í samræmi við auglýsinguna, m.t.t. fjárhagslegs styrks umsækjanda, mati á hugmyndum um fyrirkomulag byggingarinnar og raunhæfi hugmynda um uppbyggingu, fjárfestingu og rekstur veitingastaðar.

Bæjarráð vísar umsókninni til afgreiðslu og úrlausnar bæjarstjóra.

Málsnúmer 2402030

06

Útboð á ræstingum í stofnunum Garðabæjar.

Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir helstu atriði varðandi útboð á ræstingu.

Bæjarráð samþykkir útboðs- og samningsskilmála vegna útboðs á ræstingum í stofnunum Garðabæjar, sem felst í að annast þrif stofnana Garðabæjar auk þess að leggja til allar hreinlætisvörur og sjá um áfyllingar á þeim.

Útboðinu er skipt í þrjá flokka m.t.t. eðli starfsemi og notkunar húsnæðis innan ársins. Um er að ræða (1) ræstingu í leikskólum, (2) ræstingu í grunnskólum og (3) ræstingu í öðrum stofnunum s.s. skrifstofum, fundar- og samkomusölum o.fl.

Umhverfissviði falin framkvæmd útboðsins.

Málsnúmer 2401044

07

Örútboð á raforku.

Eftirfarandi tilboð bárust í raforkusölu til þriggja ára, tímabilið 1. júní 2024 til 31. maí 2027, með heimild að framlengja til allt að eins árs, og til mest fjögurra ára samtals (tilboð krónur með vsk pr kWh):



1. Orkusalan ehf.

Almenn notkun 9,47 kr.

Götulýsing 9,47 kr.

2. N1 Rafmagn ehf.

Almenn notkun 10,13 kr.

Götulýsing 10,13 kr.



3. Orka náttúrunnar

Almenn notkun 10,24 kr.

Götulýsing 10,29 kr.

4. HS Orka

Almenn notkun 10,65 kr.

Götulýsing 9,96 kr.

5, Straumlind

Almenn notkun 9,52 kr.

Götulýsing 9,89 kr.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Orkusölunnar ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86.gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106.gr. laga um opinber innkaup 20 daga frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2405040

08

Tilkynning um ársfund Náttúruhamfaratryggingar Íslands.

Lagt fram ársfundarboð Náttúruhamfaratryggingar Íslands, sem haldinn verður fimmtudaginn 16. maí 2024.

Málsnúmer 2405023

09

Bréf Kvenfélags Garðabæjar varðandi kaffihlaðborð í Sveinatungu á hátíðarhöldum 17. júní, dags. 30.04.24.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindi um að hátíðarhlaðborð á 17. júní 2024 verði í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar ásamt því að vera á innitorgi á Garðatorgi.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu og úrlausnar bæjarstjóra.

Málsnúmer 2405047

10

Bréf IBO nefndar Samlífs, samtaka líffræðikennara varðandi styrk vegna þátttöku Sigríðar Margrétar Bjarkadóttur á ólympíuleikum í líffræði.

Bæjarráð samþykkir að verða við erindi Sigríðar Margrétar Bjarkadóttur, kt. 101105-2370 um greiðslu sumarlauna 2024 vegna undirbúnings fyrir þátttöku á Ólympíukeppninni í líffræði.

Málsnúmer 2307150

11

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 - úthlutun styrkja.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja:

Garðálfar - kór eldri borgara á Álftanesi kr. 450.000.-

Garðakórinn kr. 500.000.-

Kór Vídalínskirkju kr. 300.000.-

Bjarkarhlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis kr. 800.000.-

Samtök um kvennaathvarf kr. 800.000.-

Stígamót kr. 800.000.-

Örninn - minningar- og styrktarsjóður kr. 800.000.-

Aflið - samtök fyrir þolendur ofbeldis kr. 250.000.-

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins kr. 100.000.-

ADHD-samtökin kr. 300.000.-

Kvennaráðgjöfin kr. 250.000.-

Bæjarráð vísar til umfjöllunar í Íþrótta- og tómstundaráði styrkbeiðnum Siglingaklúbbins Vogs og Hestamannafélagsins Sóta (rekstur reiðhallar.).

Bæjarráð vísar styrkbeiðni Hestamannafélagsins Spretts (reiðvegur) til umhverfissviðs.