Prýðahverfi - úthlutun lóða og sala byggingarréttar
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
03
22. (2123). fundur
Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 4. júní 2024 voru opnuð tilboð í 7 einbýlishúsalóðir í Prýðahverfi (sunnan gamla Álftanesvegar). Alls bárust 163 tilboð sem skiptust þannig:
Tilboð í Steinprýði 11 27
Tilboð í Steinprýði 2 18
Tilboð í Kjarrprýði 1 20
Tilboð í Kjarrprýði 2 16
Tilboð í Kjarrprýði 3 23
Tilboð í Garðprýði 2 17
Tilboð í Garðprýði 4 22
Tilboð í Garðprýði 6 20
Sami einstaklingur átti hæsta tilboð í 4 einbýlishúsalóðir en hefur fallið frá tilboði sínu í 3 lóðir.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboðum í lóðir í Prýðahverfi (sunnan gamla Álftanesvegar), þar sem lagt er til grundvallar hæsta verð í samræmi við söluskilmála. Tilboðin eru samþykkt með fyrirvara um að tilboðsgjafar uppfylli öll skilyrði um hæfi skv. söluskilmálum. Tilboðsgjöfum er veittur frestur til kl. 16:00 fimmtudaginn 20. júní til að skila tilskildum gögnum.
Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til að samþykkja tilboð í lóðir í þeim tilvikum sem tilboðsgjafar falla frá tilboðum sínum eða uppfylla ekki hæfisskilyrði. Skal þá lagt til grundvallar að taka tilboðum frá þeim aðilum sem eru næsti í röðinni hvað varðar tilboðsverð, enda séu uppfyllt skilyrði í söluskilmálum.
Hæstu tilboð í einstakar lóðir voru:
Tilboðsgjafi Lóð Tilboðsfjárhæð
Ásberg Pétursson Steinprýði 11 45.000.000
Helgi Fróði Ingason Steinprýði 2 40.000.000
Helgi Fróði Ingason Kjarrprýði 1 39.000.000
Ásberg Pétursson Kjarrprýði 2 40.000.000
Víðir Starri Vilbergsson
og Sæbjörg Guðjónsdóttir Kjarrprýði 3 51.050.000
Helgi Fróði Ingason Garðprýði 2 38.000.000
Helgi Fróði Ingason Garðprýði 4 38.000.100
Finnbogi Bjarnason Garðprýði 6 35.256.556
Bæjarráð Garðabæjar
05
21. (2122). fundur
Lögð voru fram óopnuð umslög með tilboðum í byggingarrétt lóða við Garðprýði 2, 4 og 6. Kjarrprýði 1, 2 og 3 og Steinprýði 2 og 11, sbr. samþykkt bæjarráðs frá fundi 7. maí sl. um sölu á byggingarrétti lóða í Prýðahverfi og tilkynningu á vef Garðabæjar. Tilboðin komu frá söluaðilum, þ.e. Torg - fasteignasölu, Garðatorg eignamiðlun, Fasteignamarkaðinum og Fasteignasölunni Miklaborg. Umslögin voru opnuð og tilboðin flokkuð eftir tegundum lóða. Samtals bárust 72 tilboð. Tilboðin verða skráð, flokkuð nánar og tekin til afgreiðslu á fundi bæjarráðs þriðjudaginn 11. júní 2024.
Bæjarráð Garðabæjar
06
17. (2118). fundur
Bæjarráð samþykkir skilmála um sölu á byggingarétti lóða við Steinprýði, Kjarrprýði og Garðaprýði. Lóðirnar verða auglýstar á vef Garðabæjar og hjá tilgreindum fasteignasölum. Bæjarráð samþykkir að lóðirnar verði auglýstar til sölu hjá fasteignasölum með 14 daga tilboðsfresti. Tilboð verða opnuð á fundi bæjarráðs, þriðjudaginn 28. maí 2024.