49. (2007). fundur
49. (2007). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
21.12.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2111122
01
Kumlamýri - Úthlutun lóða og sala byggingarréttar.
Tilboð í byggingarrétt parhúsalóða í Kumlamýri hafa verið yfir farin. Um er að ræða úthlutun og sölu byggingaréttar 26 parhúsalóða í Kumlámýri.
Draga þarf um röð jafnhárra tilboð
Ingi Örn Gíslason og Böðvar Jónsson kr. 38.000.000
Björn Sigurðsson og Helgi Gunnarsson kr. 38.000.000
Hjálmtýr Bergsson Sandholt og Theodóra Stella Hafsteinsdóttir kr. 36.000.000
Gunnar Örn Hilmarsson og Sigurður Jóhann Stefánsson kr. 36.000.000
Gísli Sveinbjörnsson og Trausti Finnbogason kr. 36.000.000
Arnar Rósenkrans Hilmarsson og Helen Viggósdóttir kr. 36.000.000
Draga þarf um tvo tilboð sem tilboðsfjárhæðir í lóðir nr. 25 og 26 eru jafnháar.
Lea Helgadóttir og Bergur Sandholt kr. 34.000.000
Haukur Gunnarsson og Gunnar Guðbrandsson kr. 34.000.000
Miðar með nöfnum tilboðsgjafa voru sett í box og formaður bæjarráðs dró miða með nöfnum:
Að drætti loknum er röðin þessi:
1. Jóhann Svavar Jóhannsson og Krystian Jerzy Sadowski kr. 47.340.000
2. Jónas Pétur Ólason og Luke Shearman kr. 40.200.000
3. Sigurður H. Sigurðsson og Sigurður Jensson kr. 40.000.000
4. Björn Sigurðsson og Helgi Gunnarsson kr. 38.000.000
5. Ingi Örn Gíslason og Böðvar Jónsson kr. 38.000.000
6. Steinþór Ólafsson og Pétur Ingason kr. 37.000.000
7. Gísli Sveinbjörnsson og Trausti Finnbogason kr. 36.000.000
8. Hjálmtýr B. Sandholt og Theodóra S. Hafsteinsdóttir kr. 36.000.000
9. Arnar Rósenkr Hilmarsson og Helen Viggósdóttir kr. 36.000.000
10. Gunnar Örn Hilmarsson og Sigurður Jóhann Stefánsson kr. 36.000.000
11. Páll Hólm Sigurðsson og Björgvin Gestsson kr. 35.200.000
12. Valdimar Ólafsson og Gylfi Jens Gylfason kr. 34.865.000
13. Haukur Gunnarsson og Gunnar Guðbrandsson kr. 34.000.000
14. Lea Helgadóttir og Bergur Sandholt kr. 34.000.000
Bæjarráð samþykkir tilboð ofangreindra einstaklinga samkvæmt töluliðum 1-13 í byggingarrétt lóða í Kumlamýri. Tilboðsgjafi nr. 14 er á biðlista eins og aðrir tilboðsgjafar í röð miðað við fjárhæð tilboða.
Þeir tveir einstaklingar sem eiga hæsta sameiginlega tilboð í tvær samliggjandi lóðir fá fyrsta rétt til að velja lóðir á svæðinu. Næsta valrétt eiga þeir sem eiga næsthæsta tilboð og svo koll að kolli.
Tilboðsgjöfum verður sendur tölvupóstur til staðfestingará samþykki tilboðs. Frestur til að að leggja fram staðfestingu banka eða lánastofnunar varðandi fjárhagsstöðu sína, fjármögnun lóðar er 14 dagar frá og með 1. janúar 2022. Í staðfestingu skal koma fram að báðir tilboðsgjafar í sameiginlegu tilboði geti staðið undir kostnaði sem áætlaður er vegna byggingarframkvæmda, greiðslu gatnagerðargjalda og kaupa á byggingarrétt lóðarinnar.
Tilboðsfjárhæð fyrir byggingarrétt skal innt af hendi fyrir 4. febrúar 2022.
Tilboðsgjafar verða boðaðir til fundar í Sveinatungu í tveimur hópum 1-7 og 8-13 þar sem val á lóðum fer fram.
Málsnúmer 2112276
02
Austurhraun 9a - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita UMF-Stjörnunni leyfi til að reisa auglýsingaskilti á lóð í Molduhrauni
Málsnúmer 2110330
03
Maríugata 7 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Búseta húsnæðissamvinnufélagi, kt. 561184-0709, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 20 íbúðum að Maríugötu 7.
Málsnúmer 2111461
04
Miðhraun 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita FF 11 ehf., kt. 680406-1030, leyfi til að innrétta rými fyrir raftækjaframleiðslu að Miðhrauni 4.
Málsnúmer 2112275
05
Bréf Úti og Inni sf. varðandi skipulagsmál á lóð í landi Eyvindarstaða, dags. 21.12.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
Málsnúmer 2107453
06
Úrskurður umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á ákvörðun byggingarfulltrúa um að synja um beitingu þvingunarúrræða, dags. 16.12.21.
Í úrskurðarorði kemur fram að hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúa um að synja kröfu þeirra um að stoðveggur verði fjarlægður.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2109340
07
Tilboð í þjónustu og viðhald gatnalýsingar í Garðabæ.
Lögð fram að nýju yfirfarin tilboð sem bárust í þjónustu og viðhald gatnalýsingar.
Bergraf kr. 277.308.424
TG Raf kr. 215.344.734
Orkuvirki kr. 556.987.375
Hlíðarhagi kr. 256.149.740
Rafall kr. 213.730.147
Raflína kr. 197.037.150
Tengill kr. 224.631.955
Kostnaðaráætlun kr. 328.809.064
Á fundinum var upplýst að komið hefur í ljós að lægstbjóðandi uppfyllir ekki skilmála útboðsins og verður því ekki samið við hann um verkefnið.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næst lægstbjóðanda Rafals ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2112184
08
Tilkynning frá Almannavörnum um óvissustig vegna Log4j veikleikans, dags. 13.12.21.
Lögð fram tilkynning frá Almannavörnum varðandi ákvörðun um að lýsa yfir óvissustigi vegna Log4J veikleikans.
Bæjarstjóri upplýsti að tölvudeildin hefur listað upp kerfi sem eru í notkun hjá Garðabæ og verið er að yfirfara þau með samstarfsaðilum. Unnið að uppfærslu þar sem það á við og þörf er á.
Málsnúmer 2112206
09
Erindi frá Lions á íslandi og Blindrafélaginu um styrk til góðra málefna undir merkinu "Rauða fjöðrin", dags. 14.12.21.
Bæjarráð vísar erindinu til úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2022.
Málsnúmer 2106536
10
Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir vegna niðurfellingar eða lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds elli- og örorkulífeyrisþega árið 2022.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um viðmiðunarfjárhæðir vegna niðurfellingar eða lækkunar fasteignaskatts og fráveitugjalds elli- og örorkulífeyrisþega árið 2022
Einstaklingar (elli- og örorkulífeyrisþegar):
Einstaklingar með tekjur árið 2020 allt að kr. 5.860.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 5.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.360.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).
Hjón (elli- og örorkulífeyrisþegar):
Hjón með tekjur árið 2020 allt að kr. 7.470.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 13.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 8.770.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).
Ekki þarf að sækja um lækkunina.
Tillaga byggir á upplýsingum Tryggingastofnunar ríkisins um áætlun á hækkun ellilífeyris í janúar 2022 en reglugerð hefur ekki verið gefin út. Ef hækkun samkvæmt væntanlegri reglugerð verður hærri en 4,6% leiðréttast ofangreindar fjárhæðir í samræmi við það.
Málsnúmer 2112061
11
Úrskurðir úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála um kröfu um stöðvun framkvæmda við Eskiás.
Um er að ræða úrskurð til bráðabirgða og í úrskurðarorði kemur fram að kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda er hafnað.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2112283
12
Tillaga Garðabæjarlistans um úttekt á innleiðingu nýs greiðslukerfis Strætó bs.
Lögð fram eftirfarandi tillaga Garðabæjarlistans.
„Bæjarráð Garðabæjar óskar eftir því að gerð verði úttekt á innleiðingu nýs greiðslukerfis Strætó og ferlar rýndir þar sem upp hafa komið alvarlegir annmarkar sem leiða til þess að aðgengi öryrkja og fatlaðs fólks er verulega skert að þeim mikilvægu almenningssamgöngum sem Strætó er fyrir þann hóp.
Eins og fram hefur komið að undanförnu þá hefur fjöldi einstaklinga fatlaðs fólks og öryrkja ekki tök á því að nýta sér nýtt greiðslukerfi vegna hindrana í kerfinu. Sveitarfélögin bera ábyrgð á því að þjónusta þennan hóp samkvæmt lögum og því mikilvægt að fá fram hvað það er sem veldur því að nýtt kerfi komi í veg fyrir aðgengi allra.
Einnig er óskað eftir svari við því hvers vegna nefndir um samráð fatlaðs fólks hafi ekki komið að því að rýna aðgengið að nýju greiðslukerfi.“
Bæjarráð samþykkir að boða framkvæmdastjóra Strætó bs. á fund bæjarráð til að gera grein fyrir málinu.