Beint í efni

Tillaga um úttekt á innleiðingu nýs greiðlukerfis Strætó bs.

Málsnúmer 2112283

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (897). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

1. (2008). fundur

Á fundi bæjarráðs voru Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., Daði Áslaugarson, deildarstjóri upplýsingartækni hjá Strætó bs. og Gunnar Valur Gíslason, fulltrúi Garðabæjar í stjórn Strætó bs. Gerðu þeir grein fyrir innleiðingu á nýju greiðslukerfi Strætó bs. ásamt útfærslu á aðgerðum til úrbóta fyrir þann hóp viðskiptamanna sem hefur verið í erfiðleikum með að hagnýta sér kerfið.

Umræða var um málið.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

49. (2007). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga Garðabæjarlistans.

„Bæjarráð Garðabæjar óskar eftir því að gerð verði úttekt á innleiðingu nýs greiðslukerfis Strætó og ferlar rýndir þar sem upp hafa komið alvarlegir annmarkar sem leiða til þess að aðgengi öryrkja og fatlaðs fólks er verulega skert að þeim mikilvægu almenningssamgöngum sem Strætó er fyrir þann hóp.

Eins og fram hefur komið að undanförnu þá hefur fjöldi einstaklinga fatlaðs fólks og öryrkja ekki tök á því að nýta sér nýtt greiðslukerfi vegna hindrana í kerfinu. Sveitarfélögin bera ábyrgð á því að þjónusta þennan hóp samkvæmt lögum og því mikilvægt að fá fram hvað það er sem veldur því að nýtt kerfi komi í veg fyrir aðgengi allra.

Einnig er óskað eftir svari við því hvers vegna nefndir um samráð fatlaðs fólks hafi ekki komið að því að rýna aðgengið að nýju greiðslukerfi.“

Bæjarráð samþykkir að boða framkvæmdastjóra Strætó bs. á fund bæjarráð til að gera grein fyrir málinu.