Beint í efni

Holtstún - grenndarkynning á byggingarleyfi

Málsnúmer 2112275

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

6. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

6. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

4. fundur

Lögð fam tillaga að tveimur einbýlishúsum við Holtstún á milli Stekkjar og Asparvíkur sem grenndarkynnt hefur verið í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Engar athugasemdir bárust.
Með vísan í 44.gr.Skipulagslaga gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

6. (902). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna tveggja einbýlishúsa á lóð við Holtstún verði grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en deiliskipulag fyrir svæðið liggur ekki fyrir. Grenndarkynna skal eigendum Stekkjar, Asparvíkur, Tjarnar og Eyvindarholts sem og eigendum húsa við Austurtún, Norðurtún og Túngötu sem liggja að Norðurnesvegi. (Mál nr. 2112275)

Bæjarráð Garðabæjar

05

12. (2019). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna tveggja einbýlishúsa á lóð við Holtstún verði grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en deiliskipulag fyrir svæðið liggur ekki fyrir. Grenndarkynna skal eigendum Stekkjar, Asparvíkur, Tjarnar og Eyvindarholts sem og eigendum húsa við Austurtún, Norðurtún og Túngötu sem liggja að Norðurnesvegi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

4. fundur

Lögð fram umsókn landeiganda um byggingarleyfi fyrir 2 einbýlishúsum við tjarnarbakkann á milli Stekkjar og Asparvíkur.
Ekkert deiliskipulag hefur verið samþykkt á svæðinu en tillagan er innan landnotkunarreits fyrir íbúðarbyggð í aðalskipulagi. Byggingarnar eru í samræmi við byggðamyndstur innan landnotkunarreitsins.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum Stekkjar, Asparvíkur, Tjarnar og Eyvindarholts sem og eigendum húsa við Austurtún, Norðurtún og Túngötu sem liggja að Norðurnesvegi.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

1. (897). fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

1. fundur

Lagt fram erindi frá Baldri Ó Svavarssyni fyrir hönd Markhús ehf þar sem rakin er saga umsókna og deiliskipulagstillagna vegna áforma um byggingu sérbýlishúsa á svæði innan landnotkunarreits íbúðarbyggðar við Bessastaðatjörn á milli Asparvíkur og Stekkjar. Samkvæmt tillögu að deiliskipulagi Norðurness er gert ráð fyrir tveimur parhúsum á þessum stað. Tillagan hefur verið forkynnt.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn fyrir byggingarleyfi tveggja parhúsa á milli Stekks og Asparvíkur til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda yrði framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar á viðkomandi landnotkunarreit (1.10 Íb).

Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð Garðabæjar

09

49. (2007). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til umfjöllunar í skipulagsnefnd.