Beint í efni

1. fundur

06.01.2022
Skipulagsnefnd Garðabæjar

1. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

06.01.2022

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
  • Arnar Hannes Halldórsson - byggingarfulltrúi
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2109356

01

Kauptún 4 - deiliskipulagsbreyting

Aðalsteinn Snorrason og Edda Einarsdóttir arkitektar hjá Arkís og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi kynntu tillögu að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar Kauptún 4 til vesturs ásamt stækkun byggingarreits.

Lóðin stækkar til vesturs um 16.866 m2, er fyrir breytingu 56.403 m2 en verður 73.269 m2 eftir breytingu. Hámarksbyggingarmagn á lóð eykst úr 22.500 í 35.000 m2. Fjöldi bílastæða eykst í samræmi við bílastæðakröfu deiliskipulagsins sem 1 stæði fyrir hverja 30 m2. Heimilt verður að áfangaskipta uppbyggingu bílastæða í samræmi við bílastæðaþörf.

Tillagan er í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.

Jákvæð umsögn Urriðaholts ehf og rekstrarfélags Kauptúns um breytingartillöguna liggur fyrir. Tillagan hefur verið kynnt fyrir Vegagerðinni.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Afla skal umsagna umsagnaraðila.

Málsnúmer 2112275

02

Holtstún - grenndarkynning á byggingarleyfi

Lagt fram erindi frá Baldri Ó Svavarssyni fyrir hönd Markhús ehf þar sem rakin er saga umsókna og deiliskipulagstillagna vegna áforma um byggingu sérbýlishúsa á svæði innan landnotkunarreits íbúðarbyggðar við Bessastaðatjörn á milli Asparvíkur og Stekkjar. Samkvæmt tillögu að deiliskipulagi Norðurness er gert ráð fyrir tveimur parhúsum á þessum stað. Tillagan hefur verið forkynnt.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn fyrir byggingarleyfi tveggja parhúsa á milli Stekks og Asparvíkur til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda yrði framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar á viðkomandi landnotkunarreit (1.10 Íb).

Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2103060

03

Tillaga um rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir niðurstöðu matshóps um val á ráðgjöfum vegna skipulagsmótunar á Þróunarsvæði A og Hafnarfjarðarvegar á milli bæjarmarka.

Bæjarstjórn hefur samþykkt tillögu matshóps um að gengið verði til samninga við ráðgjafateymi Arkþing/Nordic og Eflu um verkefnið.

Skipulagsnefnd fagnar niðurstöðunni og þakkar öllum þátttakendum fyrir sýndan áhuga.

Málsnúmer 2102344

04

Hraunhólar 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á útfærslu lóðar sem er önnur en samþykktar byggingarleyfisteikningar gera ráð fyrir. Veggur hefur þegar verið byggður og er því um reyndarteikningar að ræða sem lagðar eru fram.

Skipulagsnefnd telur að samanlögð hæð stoðveggjar og skjólveggjar sé ekki í samræmi við ásýnd byggðar við Hraunhóla og Lynghóla en heildarhæð veggjar er um 4 metrar.

Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.

Málsnúmer 1604105

05

Hraunhólar 14 - fyrirspurn um deiliskipulag o.fl.

Lögð fram ósk lóðarhafa Hraunhóla númer 14 um deiliskipulagsbreytingu sem geri ráð fyrir því að lóðin í deiliskiplagi nái eins langt til suðurs og aðliggjandi lóð nr. 12. Allar lóðir nema nr. 14 og 16 ná jafn langt til suðurs í deiliskipulagi.

Samkvæmt þinglýstum gögnum nær landareign lóðar nr.14 100 metra frá götu til suðurs.

Fasteignaskráning lóðar nr.16 gerir ráð fyrir að lóðin nái jafnlangt til suðurs og hinar lóðirnar.

Ekki liggur fyrir skýring þess af hverju deiliskipulag gerði ekki ráð fyrir að lóðir nr.14 og nr.16 nái ekki jafn langt til suðurs og aðrar lóðir.

Skipulagsnefnd metur tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að lóðir nr.14 og 16 nái jafn langt til suðurs og aðrar lóðir við Hraunhóla sem óverulega breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr.sömu laga. Byggingarreitur stækki til suðurs til samræmis við aðrar lóðir. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum við Hraunhóla.

Málsnúmer 2109174

06

Sunnakur 4 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi á lóðinni Sunnakur 4. Kjallaratröppur ná út fyrir byggingarreit að austanverðu og norðanverðu.

Skipulagsnefnd leggur til að tröppur að austanverðu fari ekki lengra út fyrir byggingarreit en sem nemur 1,5 m.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr.sömu greinar hvað varðar kjallartröppur sem hluta byggingar utan byggingarreits með ofangreindri breytingartillögu.

Málsnúmer 2112037

07

Tengistöð ljósleiðara í Vetrarmýri. Vetrarmýri deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir því að lóðin Vetrarbraut 15 sem ætluð er fyrir dælustöð skiptist í tvær lóðir.

Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í samræmi við 3. mgr. 44. gr. sömu laga fellur skipulagsnefnd frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins.

Málsnúmer 2111173

08

Smárahvammsvegur, Deiliskipulag

Skipulagsefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 2111423

09

Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025. Breyting. Snókalönd, innviðir og uppbygging.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 2111422

10

Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025. Breyting. Sléttuhlíð.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 2201071

11

Stofn- og samgöngustígur á Arnarnesi. Breyting á deiliskipulagi Arnarness

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir því að stofnstígur meðfram Hafnarfjarðarvegi verði skilgreindur sem samgöngustígur með aðgreindri umferð hjólreiða annarsvegar og gangandi hinsvegar. Breidd samgöngustígs geti verið allt að 2 x 3 m breiður með raflýsingu.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2102111

12

Víðiholt íbúðabyggð. Deiliskipulag

Skipulagsnefnd leggur til að íbúafundi verði frestað frá 13.1.2022 til 27.1.2022, nauðsynlegt er að sjá hvort að breyttar samgöngutakmarkanir heimili opin fund, eftir atvikum þannig að fjöldatakmarkanir verði þar og hvort hægt sé að krefjast niðurstöðu úr hraðprófi fyrir fundargesti og þá streymi frá fundinum samhliða ef að takmarka þarf komu gesta, ef að slíkt gengur ekki mun verða haldin hefðbundin fjarafundur á þeim degi. Athugasemdafrestur lengist til samræmis við framangreint og verður tvær vikur eftir kynningarfund.

Málsnúmer 2112032F

13

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 14

13.1 - 2112154 - Sunnuflöt 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um 1 m til suðurs vegna stækkunar svala á efri hæð. Breidd stækkað byggingarreits um 5 m.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Sunnuflatar 1,2,4,5 og 6 sem og Markarflatar 4.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

13.2 - 2110243 - Brekkugata 8 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir yfirbyggingu á svölum sem fer 35 cm út fyrir byggingarreit. Skipulagshöfundur gerir ekki athugsemd við útfærsluna. Með vísan í umsöng deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað yfyrbyggingu svala varðar. Bent skal á að samþykki eigenda hins hluta parhússins þarf að liggja fyrir áður en byggingarleyfi er veitt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

13.3 - 2112205 - Grímsgata 6 aukabyggingarmagn- Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn þar sem að spurt er hvort heimilað verði að auka byggingarmagn lóðarinnar um 330 m2 til að skapa rými fyrir B rými eins og svalir og svalaganga.
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

13.4 - 2110140 - Kinnargata 20 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn að einbýlishúsinu Kinnargata 20. Nokkrir fletir hússins eru lengri en 6 m en deiliskipulagshöfundur gerir ekki athugasemd við uppbrot tillögunnar.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar dags.9.desember 2021 gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað uppbrot veggflata varðar . Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2112017F

14

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 13

14.1 - 2111453 - Norðurtún 7 - Tilkynning um framkvæmdir

Lögð fram greinargerð lóðarhafa um útfærslu girðingar á lóðarmörkum að götu.
Með vísan í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar skulu girðingar á lóðarmörkum ekki vera hærri en 1,2 m að götu. Ef lóðarhafi vill reisa girðingu eða vegg sem er hærri en samþykktin gerir ráð fyrir skal sækja um deiliskipulagsbreytingu og leggja fram uppdrætti sem sýna útfærslu girðingarinnar.

14.10 - 2110138 - Markarflöt 57 - Deiliskipulagsbreyting

Grenndarkynningu lýkur 21.12.2021

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu.Tillagan gerir ráð fyrir fyrir stækkun byggingarreits að norðarverðu sem nemur 76 fermetrum. Lengd hans yrði 19 m en dýpt 4 m. Fjarlægð byggingarreitar að lóðarmörkum yrði 5 metrar í stað 9.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

14.2 - 2102344 - Hraunhólar 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir þar sem útfærslu lóðar hefur verið breytt frá samþykktu byggingarleyfi.
Felldur hefur verið út stoðveggur og skjólveggur staðsettur ofan á hann sem gerir það að verkum að heildar hæð veggjar verður næstum 4 metrar.
Skipulagsstjóri bendir á að útfærslan þurfi að eiga sér stoð í deiliskipulagi.
Vísað til skipulagsnefndar.

14.3 - 2108588 - Marargrund 14 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir bílageymslu á kjallara við lóðarmörk í austurhorni lóðar.
Tillaga kallar á deiliskipulagsbreytingu þar sem að mannvirkið fer út fyrir byggingarreit.
Skipulagsstjóri metur deiliskipulagsbreytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ása og Grunda og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Marargrundar 11, 12,13,15 og 16 sem og Bólstaðs.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

14.4 - 2102132 - Stekkjarflöt 25 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun byggingarreits að götu. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

14.5 - 1906181 - Jafnakur 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu.
Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um 15 m2 í átt að opnu svæði. Fjarlægð stækkaðs byggingarreits að lóðarmörkum er 50 cm.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Akra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

14.6 - 1909306 - Smiðsbúð 9 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir breytingum á húsnæðinu að Smiðsbúð 9 sem gerir ráð fyrir að íbúðum á efri hæð verði fjölgað úr 2 í 5 og neðri hæð verði skipt upp í alls 13 þjónusturými með aðgengi utanfrá. Gert er ráð fyrir leiksvæði á lóð.
Tillagan er í samræmi við ákvæði deiliskipulags þar sem heimilt er að hafa íbúðarrými á efri hæð. Minnt skal á að þjónusturými eru ekki ætluð til búsetu.

14.7 - 2112147 - Lautargata 4 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að falla frá ákvæði um íbúð á jarðhæð og í stað þess yrði íbúð bætt við á efstu hæð. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um fyrirspurnina.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar er svar við fyrirspurninni neikvætt.

14.8 - 2112148 - Grímsgata 6 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að færa byggingarreit bílageymslu um 1,3 m vestur. Umsögn deiliskipulagshöfundar liggur fyrir og er ekki gerð athugsemd við útfærsluna.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað færslu byggingarreits bílageymslu varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

14.9 - 2111349 - Tjarnarflöt 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð er fram fyrirspurn um byggingu gróðurhúss utan byggingarreits á lóð sem er 18 m2 að grunnfleti. Staðsetning þess er nær lóðarmörkum en 3 m en samþykki eiganda aðliggjandi lóðar liggur fyrir.
Þar sem að gróðurhúsið er stærri en 15 m2 sem er heimilað flatarmál smáhýsa samkvæmt deiliskipulagi Flata metur skipulagsstjóri tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslagar nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Gera skal ráð fyrir byggingarreit fyrir gróðurhúsið.
Grenndarkynna skal eigendum Tjarnarflatar 5,6,8 og 9 sem og Móaflatar 6,8 og 10.