Sunnakur 4 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
12. (2019). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Agnesi Sigurðardóttur, kt. 180975-4549, leyfi til að byggja einbýlishús við Sunnakur 4.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
1. (897). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis fyrir einbýlishús að Sunnakri 4 þó að tröppur við húsið fari út fyrir byggingarreit. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. (Mál nr. 2109174)
Bæjarráð Garðabæjar
03
1. (2008). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis fyrir einbýlishús að Sunnakri 4 þó að tröppur við húsið fari út fyrir byggingarreit. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
1. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi á lóðinni Sunnakur 4. Kjallaratröppur ná út fyrir byggingarreit að austanverðu og norðanverðu.
Skipulagsnefnd leggur til að tröppur að austanverðu fari ekki lengra út fyrir byggingarreit en sem nemur 1,5 m.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr.sömu greinar hvað varðar kjallartröppur sem hluta byggingar utan byggingarreits með ofangreindri breytingartillögu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
12. fundur
Skipulagsnefnd telur að útfærsla á rampi fyrir bílageymslu í kjallara sem nær að lóðarmörkum samræmist ekki yfirbragði einbýlishúsabyggðar í Akrahverfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
11. fundur
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.