12. fundur
12. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
14.10.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
- Arnar Hannes Halldórsson - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2110166
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 9. Urriðaholtsstræti 9.
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til norðurhlíðar Urriðaholts.
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir ráðgjafi hjá Alta og Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf gerðu grein fyrir aðalskipulags-og deiliskipulagstillögunum.
Tillagan gerir ráð fyrir því að eftirfarandi landnotkunarreitir breytist sem hér segir:
Reitur 5.04 Vþ (8 ha)minnkar og rennur saman við 5.08(1,6) Vþ og kallast eftir breytingu 5.04 Vþ (3,5 ha). Heildar minnkun á svæði ætlað Verslun og þjónustu um 6,1 ha. Ákvæði breytast þannig að gert verður ráð fyrir að atvinnuhúsnæði á reitnum næst gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Holtsvegar blandast íbúðarbyggð fjær gatnamótunum.
Reitur 5.05 Íb stækkar til norðvesturs úr 60,8 ha í 66,9 ha eða um 6,1 ha.
Samhliða er lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags.
Lagðar fram umsagnir sem bárust vegna verkefnislýsingar sem auglýst var í sumar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2.mgr.30.gr.skipulags-og byggingarlaga nr.123/2010.
Málsnúmer 2105343
02
Urriðaholtsstræti 9 - deiliskipulagsbreyting - Aðal og deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tilllaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 sem nær til lóðarinnar Urriðaholtsstræti 9:
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir ráðgjafi hjá Alta og Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf gerðu grein fyrir aðalskipulags-og deiliskipulagstillögunum.
Í breytingartillögunni felst að.
Notkun breytist úr verslun- og þjónustu í íbúðir fyrir 50 ára og eldri, kvaðir eru settar um sameiginleg rými.
Gert verður ráð fyrir 79 íbúðum, 23 íbúðir undir 90 m2 og 56 íbúðir yfir 90 m2.
Almennir skilmálar fyrir íbúðir í norðurhluta 4 gilda fyrir lóðina eftir breytingu.
Lóðamörk Urriðaholtsstrætis 7 og 9 og lóðamörk spennistöðvar breytast.
Byggingarreitur hliðrast og breytist. Byggingarreitur brotinn upp og myndaðar sjónlínur milli byggingahluta.
Salarhæðir og hæðafjöldi byggingar breytist en hámarkshæð húss helst óbreytt.
Byggingamagn á lóð minnkar. Bílastæðum á lóð fækkar til samræmis við breytta notkun.
Aðkoma að bílakjallara breytist. Krafa er gerð um grasstæði næst Urriðaholtsstræti
Aðkomugata færist lítillega til vesturs en tenging við Urriðaholtsstræti helst óbreytt.
Lagðar fram umsagnir sem borist hafa vegna lýsingar verkefnisins sem auglýst var í sumar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í sarmræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 2110128
03
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 8.Arnarnesháls/Arnarland
Þorgerður Arna Einarsdóttir hjá Landey ehf og Hálfdán Gunnarsson hjá Ósum ehf kynnti áform vegna uppbyggingar á óbyggðu svæði í norðanverðum Arnarneshálsi/Arnarnesholti sem hlotið hefur vinnuheitið Arnarland. Gert er ráð fyrir að áformin kalli á breytingu aðalskipulags.
Málsnúmer 2110129
04
Arnarland. Deiliskipulag
Þorgerður Arna Einarsdóttir hjá Landey ehf og Hálfdán Gunnarsson hjá Ósum ehf kynnti áform vegna uppbyggingar á óbyggðu svæði í norðanverðum Arnarneshálsi/Arnarnesholti sem hlotið hefur vinnuheitið Arnarland. Gert er ráð fyrir að áformin kalli á breytingu aðalskipulags.
Málsnúmer 2103060
05
Tillaga um rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Lögð fram tillaga sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn um tilhögun á vali á ráðgjöfum vegna breytinga á aðalskipulagi og deiliskipulagi á Þróunarsvæði A í aðalskipulagi auk Hafnarfjarðarvegar á milli bæjarmarka.
Skipulagsnefnd leggur til að skipulagsvinnan nái einnig til fyrirhugaðrar framlengingar Álftanesvegar frá Engidal að Reykjanesbraut um Molduhraun.
Málsnúmer 2107195
06
Kauptún 1 - Ósk um stækkun - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns ásamt umsögnum sem borist hafa.
Umsögnum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 2007640
07
Frjóakur 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Akra sem nær til lóðarinnar Frjóakur 9 að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Tillagan gerir ráð fyrir því að flatarmál neðri hæðar húss (kjallara) sé stærri en 70 % að flatarmáli aðalhæðar.
Innréttað hefur verið herbergi í djúpum kjallara með gólfsíðum gluggum og svæði á lóð í sömu hæð. Áður hafði verið veitt leyfi fyrir kjallararýminu sem tæknirými án glugga. Var sú tillaga samþykkt sem frávik frá deiliskipulagi. Gluggar á umræddu rými breyta þeim forsendum.
Skipulagsnefnd telur að sú breyting að heimila að kjallari sé stærri en sem nemur 70 % af flatarmáli geti talist óveruleg breyting enda grenndaráhrif þeirrar breytingar lítil í þessu tilfelli. Fleiri dæmi eru um að það í hverfinu að breyting á þessu ákvæði sé metin óveruleg. Reynslan sýnir að ferli óverulegra breytinga með grenndarkynningu er síst líklegra til að fara fram hjá grennd en ferli verulegra breytinga með auglýsingu.
Við samþykkt byggingarleyfis var húsið metið í samræmi við deiliskipulag og húsið byggt samkvæmt því.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem óverulega breytingu deiliskipulags Akra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 2108132
08
Stekkjarflöt 9 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Stekkjarflöt 9 að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata.
Málsnúmer 2106626
09
Smiðsbúð 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd gerir athugasemd við að sótt sé um að skrá gistirými sem sjálfstæðar íbúðir. Húsið er skráð sem gistihús og með því að gera gistiherbergi að sjálfstæðum íbúðum breytist húsið í fjölbýlishús. Tillagan gerir ráð fyrir íbúðum á jarðhæð sem deiliskipulag heimilar ekki.
Skipulagsnefnd hafnar þeirri útfærslu sem sótt er um.
Málsnúmer 2007072
10
Vinnureglur um veggi og girðingar
Lögð fram tillaga að samþykkti um vinnureglur Garðabæjar um veggi og girðingar að lokinni kynningu.
Engar athugasemdir eða ábendingar hafa borist.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar og leggur til að útbúinn verði bæklingur sem skýrir vinnureglurnar og sýn Garðabæjar á málefnið sem dreift verði í öll hús í Garðabæ.
Málsnúmer 2109174
11
Sunnakur 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd telur að útfærsla á rampi fyrir bílageymslu í kjallara sem nær að lóðarmörkum samræmist ekki yfirbragði einbýlishúsabyggðar í Akrahverfi.
Málsnúmer 2108423
12
Deiliskipulag Silfurtúns. Deiliskipulagsbreyting v. nýtingarhlutfalls.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Silfurtúns sem gerir ráð fyrir hækkun nýtingarhlutfalls.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins í nefndinni.
Málsnúmer 2109572
13
Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2024: Endurskoðun
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.