Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Stekkjarflöt 9.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
40. (1998). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flatahverfis vegna lóðarinnar við Stekkjarföt 9. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
12. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Stekkjarflöt 9 að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
9. fundur
Lögð fram fyrirspurn um stækkun húss á baklóð. Viðbygging fer lítillega út fyrir byggingarreit samkvæmt tillögunni og gert verður ráð fyrir íverurýmum við hluta brunagafls þar sem áður var bílageymsla.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynnar skal eigendum Stekkjarflatar 7, 8, 10 og 11 sem og Smáraflatar 4 og 5.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.