Beint í efni

9. fundur

23.08.2021
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

9. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

23.08.2021

Kl. 14:00 - 14:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Eysteinn Haraldsson
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2104268

01

Sjávargata 8 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Fyrirspurn vísað til skipulagsnefndar eftir skoðun.

Málsnúmer 2108332

02

Bjarnastaðavör göngustígur - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu, gerð og kostun göngustígs milli lóðanna Bjarnarvör nr. 2 og 4.

Svar: Deiliskipulag gerir ráð fyrir stíg á milli húsanna að leiksvæði. Ekki liggur fyrir nánari útfærsla stígsins en ekki er gert ráð fyrir því að kostnaður vegna framkvæmdarinnar lendi á lóðarhöfum aðliggjandi lóða. Ákvörðun um tímasetningu framkvæmda liggur ekki fyrir en gera má ráð fyrir því að það verði á næstu misserum í tengslum við uppbyggingu íbúðarhúsa í við Sveinskotsvör og Litlabæjarvör.

Málsnúmer 2108338

03

Eskiás 3a - skipting lóðar

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir því að spennistöðvarlóðin Eskiás 3a skiptist í tvær jafnstórar lóðir fyrir veitumannvirki. Lóðirnar munu nefnast Eskiás 3a og Eskiás 3b. Byggingarreitur er óbreyttur.

Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Grenndarkynning er felld niður í samræmi við 2.ml,3.mgr.44.gr.sömu laga þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2106503

04

Brekkuás 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Sótt er um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir að 26,2 m2 rými á neðri hæð sem sýnt er sem óuppfyllt rými á samþykktum teikningum verði breytt í geymslu með aðgengi úr íbúðinni.

Þar sem að grenndaráhrif af breytingunni eru hverfandi gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað umrædda geymslu varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2108222

05

Sunnuflöt 24 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til vestur fyrir opið skýli í sömu hæð og neðri hæð hússins. Þak skýlisins verður þakið torfi, útveggir á þrjá vegu, plata og þak og steinsteypu. Skýlið opnast inn í byggingarreit en nær um 1,2 m út fyrir byggingarreit til vesturs.

Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr,123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum Sunnuflatar 21,22,23 og 26.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2108050

06

Lindarflöt 28 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um hugmynd að gerð verði lágreist bygging undir geymslu og gufubað við lóðarmörk að austanverðu og að lóðarmörkum að sunnanverðu.

Með vísan í önnur sambærileg mál þarf að sækja um deiliskipulagsbreytingu sem hægt verður að vísa til grenndarkynningar. Gera þarf ráð fyrir byggingarreit fyrir viðkomandi smáhýsi.

Gerður er greinarmunur á smáhýsi fyrir geymslu o.þ.h. eins og byggingarreglugerð gerir ráð fyrir eða baðhúsi sem er annars eðlis.

Málsnúmer 2107003

07

Bakkaflöt 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Að mati skipulagsstjóra er umsókn í samræmi við deiliskipulag Flata en gera þarf ráð fyrir því að tvær bifreiðar rýmist í bílskýli.

Málsnúmer 2108132

08

Stekkjarflöt 9 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um stækkun húss á baklóð. Viðbygging fer lítillega út fyrir byggingarreit samkvæmt tillögunni og gert verður ráð fyrir íverurýmum við hluta brunagafls þar sem áður var bílageymsla.

Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.

Grenndarkynnar skal eigendum Stekkjarflatar 7, 8, 10 og 11 sem og Smáraflatar 4 og 5.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2107384

09

Sunnakur 3 - Umsögn vegna lóðafrágangs - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa Sunnakurs 3, sem nú er í byggingu, um nokkur atriði.

Svar: Þess eru nokkur dæmi í Akrahverfi um að lóðarhafar hafa fengið leyfi til þess að aðlaga gangstétt að halla innkeyrslu og einnig til þess að setja hita í gangstétt. Það verður að gera í samráði við bæjarverkfræðing og byggingarfulltrúa enda komi það fram á teikningum.

Ef fjölga á bílastæðum á lóð umfram það sem deiliskipulag gerir ráð fyrir, sem eru 3 stæði eins og þau er sett fram í mæliblaði, þarf að sækja um deiliskipulagsbreytingu. Sama gildir um stoðvegg ef hann er hærri en 1,8 metrar yfir landi og eða nær lóðarmörkum en 1,8 m.

Málsnúmer 2108126

10

Kinnargata 26 - Steypa bílaplan - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð er fyrirspurn um hugmynd að útfærslu bílastæðis. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

Málsnúmer 2108339

11

Molduhraun - Vesturhraun 1-5 - stækkun lóða og br. á spennistöð

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem gerir ráð fyrir tilfærslu á spennistöðvarlóðinni Vesturhraun 5a og breytingu á legu göngustígs.

Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2108365

12

Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs - Keldugata 4-10

Lögð fram fyrirspurn um tillögu að gerð stoðveggjar á efri hluta lóðar sem liggur að Holtsvegi og um frávik frá kröfu um innskot við bílageymslur. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfunar um umsókn um byggingarleyfi þar sem fallist er á umrædd atriði.

Fyrir hönd Garðabæjar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við gerð og legu stoðveggjar eins og teikningar sýna.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2108327

13

Hólmatún 6 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun húss sem gerir ráð fyrir að kvistir verði stækkaðir og byggðir yfir svalir.

Deiliskipulag heimilar nýtingu á risi og kvisti af ákveðinni stærð og lengd og einnig er heimilt að hafa svalir ofan á útbyggingum.

Nýtingarhlutfall fer yfir 0,4 eins og deiliskipulag gerir ráð fyrir.

Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu.

Vísað til umfjöllunar í skipulagsnefnd.