Beint í efni

Sunnakur 3 - Umsögn vegna lóðafrágangs - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2107384

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

6. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

6. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

3. fundur

Með vísan í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar gerir skipulagsstjóri fyrir hönd Garðabæjar ekki athugasemd við hæðir veggja á lóðarmörkum að götu og opnu svæði sunnan lóðar eins og þeir eru teiknaðir í meðfylgjandi skissu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

14. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

12. fundur

Lögð fram fyrirspurn um lóðarfrágang einbýlishússins Sunnakur 3. Lögð fram teikning með tillögu að lóðarfrágangi.
Svar: Baðhús stendur utan byggingarreits og við lóðarmörk, hæð veggja innan lóðarmarka og á lóðarmörkum er hærri en samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar gerir ráð fyrir. Nauðsynlegt er er að hönnuðir kynni sér deiliskipulagsákvæði og samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar.
Tillögu að útfærslu lóðar hafnað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

11. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

07

9. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa Sunnakurs 3, sem nú er í byggingu, um nokkur atriði.
Svar: Þess eru nokkur dæmi í Akrahverfi um að lóðarhafar hafa fengið leyfi til þess að aðlaga gangstétt að halla innkeyrslu og einnig til þess að setja hita í gangstétt. Það verður að gera í samráði við bæjarverkfræðing og byggingarfulltrúa enda komi það fram á teikningum.
Ef fjölga á bílastæðum á lóð umfram það sem deiliskipulag gerir ráð fyrir, sem eru 3 stæði eins og þau er sett fram í mæliblaði, þarf að sækja um deiliskipulagsbreytingu. Sama gildir um stoðvegg ef hann er hærri en 1,8 metrar yfir landi og eða nær lóðarmörkum en 1,8 m.