Kinnargata 26 - Steypa bílaplan - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (891). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss að Kinnargötu 26 þó að vikið sé frá ákvæði skipulagsskilmála um gegndræpt yfirborð bílastæða enda tryggt að steypt bílastæði veiti ofanvatni móttöku innan lóðar en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytingar á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010." (Mál nr. 2108126)
Bæjarráð Garðabæjar
02
38. (1996). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss að Kinnargötu 26 þó að vikið sé frá ákvæði skipulagsskilmála um gegndræpt yfirborð bílastæða enda tryggt að steypt bílastæði veiti ofanvatni móttöku innan lóðar en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytingar á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu á steyptu bílastæði sem gerir ráð fyrir móttaka á ofanvatni innan lóðar.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar sem gerir ekki athugasemd við að bílaplan sé steypt ef ofanvatni frá bílastæði er veitt í þar til gerðan móttaka innan lóðar.
Ákvæði um gegndræpt yfirborð bílastæða er sett fram í grein 4.6.1.1 í deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofangreinda útfærslu á bílastæði varðar þar sem að móttaki ofanvatns er innan lóðar.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
9. fundur
Lögð er fyrirspurn um hugmynd að útfærslu bílastæðis. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.