Beint í efni

38. (1996). fundur

05.10.2021
Bæjarráð Garðabæjar

38. (1996). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

05.10.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2006130

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 - Viðauki nr. 4.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2021 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

"Fræðslumál

Leikskóladeild Urriðaholtsskóla

Fjárframlög til leikskóladeildar Urriðaholtsskóla eru vanáætlað í fjárhagsáætlun ársins 2021.

Leikskólinn hefur vaxið gríðarlega á síðustu misserum og er nú áætlað að 214 börn verði í skólanum í okt.

Barnafjöldi í skólanum hefur verið eftirfarandi:

Janúar 2019 72 börn

janúar 2020 118 börn

Janúar 2021 157 börn

1. okt. 2021 214 börn (áætl.) 142 (fjölgun um 142 börn frá 2019)

Stöðugildum við skólann hefur fjölgað jafnt og þétt og er nú orðin 53.

Sérkennsla hefur einnig aukist í skólanum.

Hlutfall háskólamenntaðra starfsmanna er hátt í leikskólanum

Ljóst er því að það vantar um 200 millj. kr. á launalið skólans til að áætlun ársins geti staðist.

Fæðisgjöld -3.500.000 04121-0240

Leikskólagjöld -18.000.000 04121-0251

Launaliðir leikskóladeildar Urriðaholtsskóla 200.000.000 04121-

Samtals 178.500.000

Leikskólinn Sjáland

Vegna samkomulags við Sjáland ehf. dags. 11. júní sl. greiðir Garðabær félaginu rúmlega 104 m.kr. á árinu 2021 vegna vanhækkunar á greiðslum samkvæmt 6. gr. samnings aðila frá 2004 vegna launaþróunar leikskólakennara, hækkunar neysluverðsvísitölu til verðtryggingar og annarra kostnaðarhækkana, þ.á.m. aukins undirbúningtíma starfsfólks og styttingu vinnuviku.

Greitt á árinu 2021 104.198.000 04116-4364

Frístundaheimili

Vegna Covid hafa tekjur tómstundaheimila ekki verið eins og upphafleg áætlun gerði ráð fyrir

á vorönn 2021. Tímabil komið upp sem mæting hefur verið slök.

Meiri stuðningur er við börn með sérþarfir en áætlun gerði ráð fyrir.

Frístundaheimili Garðabæjar 12.000.000 ýmsir lyklar

Samtals útgjaldaauki 294.698.000

Fjármögnun viðauka

Útgjaldauka mætt með hækkun á staðgreiðslu útsvars -294.698.000"

Málsnúmer 2106503

02

Brekkuás 7 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hákoni Magnússyni, kt. 050570-3639, leyfi til að taka í notkun útgrafið rými í kjallara einbýlishússins að Brekkuási 7.

Málsnúmer 2106335

03

Kinnargata 25 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Öglu Friðjónsdóttur, kt. 080686-2269, leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni við Kinnargötu 25.

Málsnúmer 2102134

04

Suðurhraun 10 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hellubyggð ehf., kt. 660116-5400, leyfi til að innrétta viðbótarrými í atvinnuhúsnæði við Suðurhraun 10.

Málsnúmer 2106252

05

Víkurgata 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðmundi Elíasi Sæmundssyni, kt. 100272-4829, leyfi til að stækka bílgeymslu og rými á neðri hæð einbýlishússins við Víkurgötu 4.

Málsnúmer 2109133

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 6.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu á lóðinni við Blikanes 6. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Blikaness 3, 4, 5, 7 og 8 og Tjaldaness nr. 3, 5 og 7

Málsnúmer 2106451

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Kumlamýrar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kumlamýrar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir við tillöguna sem brugðist hefur verið við.

Málsnúmer 2011163

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna svæðis við Brekkugötu og Dyngjugötu.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Í deiliskipulagsbreytingunni felst.

Afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist lítillega og mörk milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts verða samræmd.

Bráðabirgðaútfærsla með snúningshaus í Dyngjugötu og Brekkugötu fellur niður.

Brekkugata og Dyngjugata tengjast Urriðaholtsstræti með deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Breyting er gerð á fyrirkomulagi bílastæða og gangstéttar vegna samræmingar milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Fyrirhuguð gatnatenging Brekkugötu frá 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts færist til.

Málsnúmer 2109394

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi sameiginlega svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 á Suðvesturlandi.

Í afgreiðslu skipulagsnefndar kemur fram að nefndin geri ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við sameiginlega svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.

Málið er til umsagnar hjá umhverfisnefnd en frestur til að gera athugasemdir er til 29. október nk.

Málsnúmer 2108527

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn lóðarhafa Hagaflöt 20 um skjólvegg.

Lögð fram.

Málsnúmer 1912107

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 8

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra í tilefni umsóknar um að lóðinni við Hraunhóla 8 verði skipt í tvær einbýlishúsalóðir. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum allra húsa við Hraunhóla og Lynghóla.

Málsnúmer 2109351

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna lóðar fyrir leikskóla.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðrholts sem gerir ráð fyrir stækkun skipulagsvæðisins til suðurs frá Vetrarbraut á háholti Hnoðraholts. Gert er ráð fyrir að á svæðinu verði lóð fyrir leikskóla og lóð fyrir íbúðakjarna fyrir fatlað fólk.

Skipulagsnefnd leggur til að fallið sé frá gerð lýsingar og forkynningu, sbr. heimild í 2. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga, þar sem allar meginforsendur fyrir tillögunni liggja fyrir í aðalskipulagi.

Málsnúmer 2109350

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi Minjastofnunar um friðlýsingu einbýlishússins að Litlabæjarvör 4.

Í umsögn skipulagsnefndar kemur fram að nefndin fagnar tillögu um friðlýsingu hússins.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrir sitt leyti skilmála friðlýsingar hússins að Litlabæjarvör 4.

Málsnúmer 2104420

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að lýsingu deiliskipulags fyrir Vífilsstaðahraun - fólkvang.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að lýsingu samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að deiliskipulagi Fólkvangs í Vífilsstaðahrauni, Maríuhellum og Vatnsmýrinni.

Málsnúmer 2107458

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi staðsetningu smáhýsis á lóðinni við Hólmatún 56.

Lögð fram.

Málsnúmer 2108126

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi heimild til útgáfu á byggingarleyfi vegna framkvæmda á lóðinni við Kinnargötu 26.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss að Kinnargötu 26 þó að vikið sé frá ákvæði skipulagsskilmála um gegndræpt yfirborð bílastæða enda tryggt að steypt bílastæði veiti ofanvatni móttöku innan lóðar en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytingar á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2107308

17

Opnun tilboða í vetrarþjónustu gatna í Garðabæ 2021-2024.

Lögð fram eftirfarandi tilboð sem bárust í vetrarþjónustu gatna í Garðabæ.

Ó.K. gröfur ehf. kr. 73.800.000

Bjartey ehf. kr. 59.616.000

Kostnaðaráætlun kr. 75.900.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Bjarteyjar ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2109340

18

Tillaga um útboð á þjónustu við gatnalýsingu í Garðabæ.

Lögð fram tillaga að útboðs- og verklýsingu vegna þjónustu og viðhalds gatnalýsingar. Um er að ræða sameiginlegt útboð Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar og Garðabæjar í þjónustu og viðhald gatnalýsingar í Garðabæ og Hafnarfirði.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti þátttöku í sameiginlegu útboði ofangreindra aðila á grundvelli fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingar.

Málsnúmer 2109572

19

Tilkynning svæðisskipulagnefndar Suðurnesja um endurskoðun á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024, dags. 28.09.21.

Bæjarráð vísar tilkynningunni til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2109630

20

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi Húsnæðissjálfseignarstofnun á landsbyggðinni, dags. 30.09.21.

Málsnúmer 2110001

21

Ársskýrsla Hönnunarsafns Íslands fyrir árið 2020.

Lögð fram.

Málsnúmer 2109613

22

Tilkynning frá forsætisráðuneytinu varðandi tilnefningar til jafnréttisviðurkenninga, dags. 29.09.21.

Lögð fram.

Málsnúmer 2109528

23

Tilkynning umhverfis- og auðlindaráðuneytis varðandi skýrslu um líffræðilega fjölbreytni í borgum og bæjum, dags. 23.09.21.

Lögð fram.

Málsnúmer 1907178

24

Tillaga um sölu á einbýlishúsinu að Holtsbúð 85.

Bæjarráð samþykkir að heimila bæjarstjóra að auglýsa til sölu einbýlishús í eigu bæjarins að Holtsbúð 85 og að söluverðið verði nýtt til kaupa á félagslegu húsnæði.

Málsnúmer 2110004

25

Bréf Fjölskylduhjálpar Íslands varðandi styrk til starfseminnar, dags. 30.09.21.

Bæjarráð vísar bréfinu til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.

Málsnúmer 2109051

26

Íbúðakjarni Brekkuási - forvalsgögn vegna alútboðs.

Lögð fram drög að forvalsgögnum vegna þátttöku í lokuðu útboði fyrirhugaðrar nýbyggingar íbúðakjarna fyrir fatlað fólk við Brekkuás 2.

Um er að ræða alútboð sem nær yfir alla hönnun þ.e.a.s. hönnunarstjórn, gerð aðaluppdrátta, deiliuppdrátta, lóðarteikninga sem og allra annara nauðsynlegra teikninga sem þarf í verkinu. Fullgera skal mannvirkið ásamt lóð og afhenda verkkaupa tilbúnu til innflutnings ásamt þvi að taka að sér byggingarstjórn á verktíma.

Ákveðnum fjölda umsækjenda sem standast kröfur forvalsins verður gefinn kostur á að gefa tilboð í verkefnið í fyrirhuguðu lokuðu útboði.

Bæjarráð samþykkir að unnið verði að því að fullgera gögn og auglýsa forval vegna alútboðs.

Málsnúmer 2109359

27

Samningur við Arnarland ehf. um gerð deiliskipulags og uppbyggingu á Arnarneshálsi.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við forsvaramenn Arnarlands ehf. um uppbyggingu byggðar á norðanverðum Arnarneshálsi og fór nánar yfir einstök ákvæði samningsins um gerð deiliskipulags og uppbyggingu svæðisins.

Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.