Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
5. (2012). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar afmörkun svæða og breytingar á gatnatengingum. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2 og deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 3 að lokinni auglýsingu.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að
· afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist lítillega. Deiliskipulagsmörk milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts samræmd.
· Bráðabirgðaútfærsla með snúningshaus í Dyngjugötu og Brekkugötu fellur niður.
Brekkugata og Dyngjugata tengjast Urriðaholtsstræti með deiliskipulagi Urriðaholts 3. áfanga.
· Breyting er gerð á fyrirkomulagi bílastæða og gangstéttar vegna samræmingar milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
· Fyrirhuguð gatnatenging á Brekkugötu frá 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts færist til.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögunar sem breytingar á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 2 og deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
13. (891). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Í deiliskipulagsbreytingunni felst.
Afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist lítillega og mörk milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts verða samræmd.
Bráðabirgðaútfærsla með snúningshaus í Dyngjugötu og Brekkugötu fellur niður.
Brekkugata og Dyngjugata tengjast Urriðaholtsstræti með deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Breyting er gerð á fyrirkomulagi bílastæða og gangstéttar vegna samræmingar milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Fyrirhuguð gatnatenging Brekkugötu frá 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts færist til." (Mál nr. 2011163)
Bæjarráð Garðabæjar
04
38. (1996). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Í deiliskipulagsbreytingunni felst.
Afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist lítillega og mörk milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts verða samræmd.
Bráðabirgðaútfærsla með snúningshaus í Dyngjugötu og Brekkugötu fellur niður.
Brekkugata og Dyngjugata tengjast Urriðaholtsstræti með deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Breyting er gerð á fyrirkomulagi bílastæða og gangstéttar vegna samræmingar milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Fyrirhuguð gatnatenging Brekkugötu frá 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts færist til.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 2 og deiliskipulags Norðurhluta 3.
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að
· afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist lítillega. Deiliskipulagsmörk milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts samræmd.
· Bráðabirgðaútfærsla með snúningshaus í Dyngjugötu og Brekkugötu fellur niður.
Brekkugata og Dyngjugata tengjast Urriðaholtsstræti með deiliskipulagi Urriðaholts 3. áfanga.
· Breyting er gerð á fyrirkomulagi bílastæða og gangstéttar vegna samræmingar milli 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
· Fyrirhuguð gatnatenging á Brekkugötu frá 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts færist til.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og 1.mgr.43.gr.sömu laga.