5. (2012). fundur
5. (2012). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
08.02.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Sorpbrennsla - framtíðar möguleikar - Kynning Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs.
Á fund bæjarráðs mætti Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs. og gerði grein fyrir lokaskýrslu forverkefnis um framtíðarlausn til meðhöndlunar brennanlegs úrgangs í stað urðunar.
Á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2 voru bæjarfulltrúarnir, Björg Fenger og Ingvar Arnarson.
02
Kynning á starfi persónuverndarfulltrúa Garðabæjar.
Á fund bæjarráðs mætti Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi Garðabæjar og gerði grein fyrir störfum persónuverndarfulltrúa og kynnti nánar helstu verkefni sem reynir á í starfi persónuverndarfulltrúa.
03
Lambhagi 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Grétari Markússyni, kt. 270852-4169, leyfi til framlengingar á þaki og útlistbreytingar á núverandi einbýlishúsi við Lambhaga 9.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar afmörkun svæða og breytingar á gatnatengingum. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
05
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um breytingar á rekstrarleyfi fyrir veitingastað Te & kaffi við Garðatorg 4.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að veitingastað Te & kaffi að Garðatorgi 4 verði veitt leyfi fyrir útiveitingum enda verði þess gætt að það valdi ekki íbúum hússins ónæði eða óþægindum. Í umsókninni kemur fram að gert er ráð fyrir að opnunartími útiveitinga verði frá kl. 08:00 til kl. 18:00.
07
Ársreikningur Garðabæjar 2021 - tillaga að afskriftum.
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna árið 2021 samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 929.708.
08
Varðar samkomulag um úthlutun lóða við Breiðumýri á Álftanesi
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning Húsbyggs ehf. og Grásteinsmýrar ehf. um framsal lóðarréttinda vegna lóðarinnar við Hestamýri 1 - samkvæmt úthlutunasamningi um lóðir í Breiðumýri, dags. 14.ágúst 2020. Byggingarréttargjöld hafa verið að fullu greidd og við undirritun framsalssamnings kemur til greiðslu helmingur áætlaðra lágmarksgatnagerðargjalda kr. 107.949.232.
09
Bréf Garðasóknar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2022, dags. 24.01.22.
Bæjarráð samþykkir að veita Garðasókn styrk að fjárhæð kr. 1.131.969 til greiðslu fasteignagjalda árið 2022.
10
Bréf umboðsmanns barna varðandi mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa, dags. 28.01.22.
Lagt fram og vísað til umfjöllunar nefnda bæjarins sem fjalla um málefni barna og ungmenna.
11
Bréf Náttúruhamfaratryggingar Íslands varðandi upplýsingar um mannvirki sem skylt er að tryggja hjá NTÍ.
Bæjarráð vísar bréfinu til frekari skoðunar og úrvinnslu tækni- og umhverfissviðs
12
Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa varðandi niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 02.02.22.
Bæjarráð samþykkir að veita Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa styrk að fjárhæð kr. 2.110.362 til greiðslu fasteignagjalda.
13
Bréf Skátafélagsins Vífils og Hjálparsveitar skáta í Garðabæ varðandi niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 14.01.22.
Bæjarráð samþykkir að veita Skátafélaginu Vífli og Hjálparsveit skáta Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 4.280.846. til greiðslu fasteignagjalda árið 2022.
14
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012 (móttaka einstaklinga með vernd, innflytjendaráð), 271. mál., dags. 02.02.22.
Lagt fram.
15
Beiðni um upplýsingar varðandi tímalínu vegna byggingar leikskóla í Urriðaholti.
Lögð fram tímalína vegna hönnunar, útboðs og byggingar leikskóla í Urriðaholti ásamt samningi um heildarhönnun.