Beint í efni

Ársreikningur Garðabæjar 2021 (síðari umræða)

Málsnúmer 2108710

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (902). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og fór nánar yfir helstu niðurstöður ársreiknings.

Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2021.

Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Við í Viðreisn viljum taka ábyrgð og horfa til þess hvernig við getum hraðað uppbyggingu samhliða því að viðhalda sterkri fjárhagsstöðu, sér í lagi með hliðsjón af þeim verðbólguhorfum sem við horfumst nú í augu við. Lykilatriðið hér eru fjármögnunarkjörin. Þess vegna viljum við horfa til grænna fjárfestinga. Taka stór skref og horfa til framtíðar með ábyrgri fjárfestingarleið og um leið gæta umhverfisvænna sjónarmiða sem eru samfélaginu okkar afar dýrmæt.
Ein af áhrifamestu aðgerðunum í þessu samhengi og falla undir grænu fjárfestingarnar eru ábyrg kaup á vöru og þjónustu þar sem miklir fjármunir eru undir og því skiptir máli að haga innkaupum með faglegum og gagnsæjum hætti. Lög um opinber innkaup eru til þess fallin að styðja við hagkvæmustu innkaupin hverju sinni og eftir þeim ber sveitarfélögum að starfa í sínum innkaupum.
Við vitum að hægt er að spara umtalsverða fjármuni með því einu að beita miðlægri og upplýstri stýringu í innkaupum bæjarins eða allt að 2 milljarða króna á næstu fjórum árum miðað við lægstu mögulegu áætlun. Fjármuni sem munar verulega um.
Samfélagsleg ábyrgð Garðabæjar er mikil. Gnótt er af landi í bæjarfélaginu, staða sem önnur bæjarfélög búa ekki við. Skortur á lóðaúthlutunum síðastliðinn áratug á höfuðborgarsvæðinu hefur leitt af sér hátt íbúðaverð og skort á íbúðum fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur. Bæjarfélagið okkar hefur alla burði að geta lagt sitt af mörkum við að sporna við frekari þróun í sömu átt með því að hraða uppbyggingu bæjarfélagsins. Það viljum við í Viðreisn gera á grænan hátt. Sú vegferð skilar sér í auknum ávinningi til allra Garðbæinga.“

Sigurður Guðmundsson, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans þakka starfsfólki fyrir vinnu við ársreikning. Það er ánægjuefni að skatttekjur á hvern íbúa voru hærri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Þar var gert ráð fyrir 837 þúsund kr. á íbúa en í raun komu inn 871 þúsund kr. á íbúa.
Þá er einnig jákvætt að sala á lóðum/byggingarrétti var töluverð sem gerir það að verkum að tekjur bæjarins hafa aukist um 1,1 milljarð króna á árinu 2021. Ánægjulegt er að sjá mikla fjölgun íbúa í Garðabæ, en frá árinu 2017 hefur fjölgað um 2800 íbúa.
Við höfum þó áhyggjur af nokkrum þáttum. Aukin verðbólga er áhyggjuefni, sérstaklega þar sem að verðtryggðar skuldir bæjarsjóðs hafa aukist töluvert á kjörtímabilinu. Lántaka á síðustu tveimur árum er samtals 6,5 milljarðar kr. Skuldir á hvern íbúa hafa þ.a.l. aukist mjög mikið. Árið 2017 voru þær 751 þúsund kr. en eru í dag orðnar 1224 þúsund kr. á hvern íbúa. Mikilvægt er að hafa í huga að Garðabær hefur staðið í miklum framkvæmdum á þessu tímabili og hafa eignir bæjarins þ.a.l. aukist töluvert.

Það er áhyggjuefni að rekstrarniðurstaða A-sjóðs sé neikvæð um 60 millj. kr. og það þrátt fyrir mikla sölu á lóðum/byggingarétti. Lóðir eru takmörkuð auðlind og ekki hægt að gera ráð fyrir að tekjur af slíkri sölu verði stöðugar til framtíðar, sérstaklega ef verðbólga eykst og kaupmáttur rýrnar. Ef rekstrarniðurstaða A-sjóðs heldur áfram að vera neikvæð á næstu árum hefur bærinn engin önnur úrræði en að hækka álögur eða skera niður í þjónustu til að mæta slíku.“
Framundan eru miklar fjárfestingar í innviðum sem eru nauðsynlegir til að veita bæjarbúum viðeigandi þjónustu. Til að standa undir þeirri fjárfestingu er mikilvægt að fara varlega í næstu skref. Að okkar mati er ekki skynsamlegt að auka mikið við skuldir á næstu árum og því nauðsynlegt að meta hversu miklu er hægt að ná inn með sölu lóða/byggingaréttar og í framhaldinu skoða hvort sú upphæð dugi til að standa undir þeim framtíðarfjárfestingum sem eru nauðsynlegar til að halda í við íbúaþróun Garðabæjar.
Næstu bæjarstjórnar bíður verðugt verkefni. Markmið okkar í Garðabæjarlistanum er að halda álögum eins lágum og kostur er, en einnig að tryggja góða þjónustu við íbúa og byggja upp innviði í takt við íbúaþróun. Til þess að það sé hægt þarf fjárhagsstaða Garðabæjar að vera sterk.“

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.

Í umræðunni komu fram þakkir til bæjarfulltrúa Áslaugar Huldu Jónsdóttur og Sigurðar Guðmundsson sem sitja í dag sinn síðasta bæjarstjórnarfund á kjörtímabilinu en þau verða ekki í kjöri við sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2021 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.

Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af viðstöddum bæjarfulltrúum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

5. (901). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2021. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Gunnar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins.

Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lýsti ánægju með góða útkomu í ársreikningi Garðabæjar árið 2021 og færði starfsmönnum bæjarins þakkir bæjarstjórnar fyrir þeirra þátt í þessari góðu niðurstöðu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2021 til síðari umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 7. apríl 2022.

Bæjarráð Garðabæjar

03

10. (2017). fundur

Ómar Gunnar Ómarsson, löggiltur endurskoðandi hjá Enor, Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhalds mættu á fund bæjarráðs. Ómar Gunnar gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2021, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.

Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikning Garðabæjar 2021 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður af bæjarstjóra og bæjarráði og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 17. mars 2022 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 7. apríl 2022.

Bæjarráð Garðabæjar

04

9. (2016). fundur

Á fund bæjarráð kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir breyttum forsendum við útreikning á lífeyrisskuldbindingu í ársreikningi 2021 sem tilkynntar voru á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins í desember sl. að fengnum tillögum Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga.

Fjármálastjóri fór nánar yfir breyttar forsendur í útreikningi á lífeyrisskuldbindingu og kom fram að unnið er að gjaldfærslu lífeyrisskuldbindingar í ársreikningi í samráði við endurskoðendur bæjarins.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

05

5. (2012). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna árið 2021 samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 929.708.

Bæjarráð Garðabæjar

06

35. (1993). fundur

Á fund bæjarráð mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir árshlutauppgjöri Garðabæjar fyrir tímabilið janúar - júní 2021.

Niðurstaða A og B - hluta fyrir tímabilið í þkr:

Rekstrartekjur 9.247.098
Rekstrargjöld 8.398.869
Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir 848.229
Afskriftir (558.799)
Rekstrarniðurstaða án fjármunat. og gjöld 289.430
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (464.656)
Rekstrarniðurstaða (neikvæð) (175.226)