Beint í efni

9. (2016). fundur

08.03.2022
Bæjarráð Garðabæjar

9. (2016). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

08.03.2022

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2108710

01

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi hækkun lífeyrissjóðsskuldbindinga 2021, dags. 22.02.22.

Á fund bæjarráð kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir breyttum forsendum við útreikning á lífeyrisskuldbindingu í ársreikningi 2021 sem tilkynntar voru á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins í desember sl. að fengnum tillögum Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga.

Fjármálastjóri fór nánar yfir breyttar forsendur í útreikningi á lífeyrisskuldbindingu og kom fram að unnið er að gjaldfærslu lífeyrisskuldbindingar í ársreikningi í samráði við endurskoðendur bæjarins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2203085

02

Bréf umboðsmanns Alþingis varðandi álit í tilefni af kvörtun, dags. 28.02.22.

Lagt fram.

Málsnúmer 2203102

03

Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um frestun á gildistöku reglugerðar nr. 230/2021, dags. 25.01.22.

Í reglugerð nr. 14/2022 er heimild fyrir sveitarfélög að ákveða að fresta til ársins 2022 gildistöku ákvæðis í reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Um er að ræað ákvæði sem sett var með reglugerð 230/2021 og mælir fyrir um að færa byggðasamlög, sameignarfélög, sameignarfyrirtæki með ótakmarkaðri ábyrgð sveitarfélagsins í samantekin reikningsskil m.v. hlutfallslega ábyrgð sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að nýta heimild reglugerðar nr. 14/2022 um frestun og er bæjarstjóra falið að gera viðauka við fjárhagsáætlun vegna áranna 2022-2025 sem skal lagður fram eigi síðar en 1. júní 2022.

Málsnúmer 2202480

04

Bréf Krýsuvíkursamtakanna varðandi beiðni um fjárstuðning til starfsemi meðferðarheimilisins í Krýsuvík, dags. 21.02.22.

Bæjarráð vísar erindinu til nánari umfjöllunar fjölskyldusviðs og fjölskylduráðs. Jafnframt er erindinu vísað til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2202487

05

Bréf Magna lögmanna varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir við að breikka Hringveg frá Fossvöllum að Hólmsá, dags. 24.02.22.

Málsnúmer 2202461

06

Erindi Hestamannafélagsins Sóta um niðurfellingu fasteignagjalda árið 2022.

Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Sóta styrk að fjárhæð kr. 871.925 til greiðslu fasteignagjalda árið 2022.

Málsnúmer 2203095

07

Tillaga um móttöku flóttafólks frá Úkraínu.

Lögð fram eftirfarandi tillaga sem bæjarstjórn vísaði til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

„Bæjarstjórn staðfestir vilja Garðabæjar til þess að taka þátt í verkefninu og taka á móti flóttafólki frá Úkraínu. Hafinn er undirbúningur fyrir móttöku flóttafólks að hálfu ríkisins og mörg sveitarfélög þegar látið vita af vilja sínum til þátttöku í verkefninu. Garðabær er ríkt samfélag og það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að styðja við fólk í neyð líkt og nú ríkir í Úkraínu.“

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að afla upplýsinga og eiga viðræður við viðkomandi ráðuneyti um fyrirkomulag á móttöku á flóttafólki frá Úkraínu. Jafnframt skal hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga sem hefur farið fram á endurskoðun á samstarfssamningi við ríkið um móttöku flóttafólks.

Bæjarráð tekur undir samþykkt stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem samþykkt var einróma á fundi sem haldinn var 25. febrúar sl. en þar er tekið undir yfirlýsingu Evrópusamtaka sveitarfélaga, CEMR, um að evrópskir sveitarstjórnarmenn fordæmi brot á sjálfstæði og sjálfræði Úkraínu og lýsi yfir stuðningi og samstöðu með sveitarfélögum í Úkraínu og íbúum þeirra. Stjórn sambandsins hvetur kjörna fulltrúa í íslenskum sveitarfélögum til að undirrita yfirlýsinguna.

Málsnúmer 2203013

08

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um almannatryggingar (skerðing á lífeyri vegna búsetu). 71. mál., dags. 28.02.22.

Lagt fram.

Málsnúmer 2203077

09

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, 51. mál., dags. 02.03.22.

Lagt fram.

Málsnúmer 2203105

10

Bréf mennta- og barnamálaráðuneytisins varðandi þátttöku í PISA könnun, dags. 03.03.22.

Í bréfinu er farið fram á gott samstarf við nemendur, starfsfólk grunnskóla, sveitarfélög og skólaþjónustu sveitarfélaga vegna þátttöku í PISA könnun sem framundan er.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar bréfinu til skólanefndar grunnskóla, fræðslu- og menningarsviðs og til skólastjóra grunnskólanna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2203108

11

Tilkynning sveitarfélagsins Voga varðandi bókun vegna Suðurnesjalínu 2., dags. 04.03.22.

Málsnúmer 2203112

12

Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um verkefnið "Samtaka um hringrásarhagkerfið", dags. 28.02.22.

Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu og felur bæjarstjóra að hlutast til um skráningu Garðabæjar. Bæjarráð vísar tilkynningunni til kynningar í umhverfisnefnd.

Fylgiskjöl