Frestun á gildistöku reglugerðar nr. 230/2021
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. (901). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að nýta heimild reglugerðar nr. 14/2022 um frestun til ársins 2022 ákvæði reglugerðar 230/2021 er mælir fyrir um að færa byggðasamlög, sameignarfélög, sameignarfyrirtæki með ótakmarkaðri ábyrgð sveitarfélagsins í samantekin reikningsskil m.v. hlutfallslega ábyrgð sveitarfélagsins. Bæjarstjóra er falið að gera viðauka við fjárhagsáætlun vegna áranna 2022-2025 sem skal lagður fram eigi síðar en 1. júní 2022. (Mál nr. 2203102)
Bæjarráð Garðabæjar
02
9. (2016). fundur
Í reglugerð nr. 14/2022 er heimild fyrir sveitarfélög að ákveða að fresta til ársins 2022 gildistöku ákvæðis í reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Um er að ræað ákvæði sem sett var með reglugerð 230/2021 og mælir fyrir um að færa byggðasamlög, sameignarfélög, sameignarfyrirtæki með ótakmarkaðri ábyrgð sveitarfélagsins í samantekin reikningsskil m.v. hlutfallslega ábyrgð sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að nýta heimild reglugerðar nr. 14/2022 um frestun og er bæjarstjóra falið að gera viðauka við fjárhagsáætlun vegna áranna 2022-2025 sem skal lagður fram eigi síðar en 1. júní 2022.