Beint í efni

5. (901). fundur

17.03.2022
Bæjarstjórn Garðabæjar

5. (901). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

17.03.2022

Kl. 17:00 - 20:10

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Gunnar Einarsson
  • Guðfinnur Sigurvinsson
  • Stella Stefánsdóttir
  • Þorri Geir Rúnarsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Almar Guðmundsson, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 3. mars 2022 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2203009F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 8/3 ´22.

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og óskaði körfuknattleiksdeild Stjörnunnar til hamingju með frábæran árangur í bikarkeppni KKÍ bæði í meistaraflokki og yngri flokkum en fyrirhugaðir eru úrslitaleikir um helgina. Þá ræddi Ingvar 11. tl., tilkynningu sveitarfélagsins Voga varðandi bókun vegna Suðurnesjalínu 2.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi hækkun lífeyrissjóðsskuldbindinga 2021.

Fundargerðin sem er 12. tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2203023F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 15/3 ´22.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi stöðu heimilislausra með fjölþættan vanda, 6. tl.,erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið og 12. tl., fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi atvinnutengda starfsemi á Garðatorgi.

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., tilkynningu frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála varðandi skýrslu um reynslu og viðhorf kjörinna fulltrúa í bæjar- og sveitarstjórnum á Íslandi, 4. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi stöðu heimilislausra með fjölþættan vanda og 17. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldstofn fasteignaskatts).

Gunnar Einarsson, ræddi 17. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldstofn fasteignaskatts).

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 17. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldstofn fasteignaskatts).

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 17. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldstofn fasteignaskatts).

Almar Guðmundsson, ræddi 17. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldstofn fasteignaskatts), 4. tl., bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi stöðu heimilislausra með fjölþættan vanda og 12. tl., fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi atvinnutengda starfsemi á Garðatorgi.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 17. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldstofn fasteignaskatts).

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 17. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldstofn fasteignaskatts).

Fundargerðin sem er 18. tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2203011F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 8/3 ´22.

Þorri Geir Rúnarson, ræddi 1. tl., uppbyggingu á aðstöðu fyrir mannlífsmiðstöð skáta við Breiðumýri á Álftanesi, 2. tl., skýrslu um nýtingu hvatapeninga, 3. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup 2021. Þá ræddi Þorri Geir önnur mál, framkvæmdir og fjölbreytta aðstöðu í Miðgarði.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., skýrslu um nýtingu hvatapeninga.

Stella Stefánsdóttir, ræddi 2. tl., skýrslu um nýtingu hvatapeninga.

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., skýrslu um nýtingu hvatapeninga. Þá ræddi Ingvar önnur mál, framkvæmdir og fjölbreytta aðstöðu í Miðgarði.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., skýrslu um nýtingu hvatapeninga.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., skýrslu um nýtingu hvatapeninga. Þá ræddi Gunnar önnur mál, framkvæmdir og fjölbreytta aðstöðu í Miðgarði.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2203012F

04

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 7/3 ´22.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., barnamenningarhátíð í Garðabæ 2022, 2. tl., mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til áhrifa, 5., tl. hvatningarsjóð ungra listamanna og hönnuða og 3. tl., minjagarðinn að Hofsstöðum og sýningarrými á Garðatorgi.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2203008F

05

Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 10/3 ´22.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar og framlagða bókun.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar og framlagða bókun. Gunnar sagði frá því að hann hafi mætt á fund skólanefndar tónlistarskólans í morgun til að ræða stöðu og málefni skólans.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., starfsemi tónlistarskólans.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., starfsemi tónlistarskólans.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., starfsemi tónlistarskólans.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., starfsemi tónlistarskólans.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2203010F

06

Fundargerð umhverfisnefndar frá 9/3 ´22.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., tillögu að deiliskipulagi fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni, 4. tl., umsóknir um utanvegahlaup, 5. tl., aðgengi að grenndargámum, 6. tl., hreinsunarátak 2022 og 7. tl., ágang máva í Sjálandshverfi.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 4. tl., umsóknir um utanvegahlaup.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 4. tl., umsóknir um utanvegahlaup og 2. tl., tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum.

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Urriðavatnsdölum, 4. tl., umsóknir um utanvegahlaup, 5. tl., aðgengi að grenndargámum og 7. tl., ágang máva í Sjálandshverfi.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., umsóknir um utanvegahlaup.

Gunnar Einarsson, ræddi 7. tl., ágang máva í Sjálandshverfi og 5. tl., aðgengi að grenndargámum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2202013

07

Fundargerð heilbrigðisnefndar HEF frá 14/3 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201281

08

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 2/3 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2202087

09

Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 18/2 ´22.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 4. tl., álagsgreiðslur vegna Covid-19.

Gunnar Einarsson ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201365

10

Fundargerð stjórnar SSH frá 7/3 ´22.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., samstarf um uppbyggingu á sérskóla á grunnskólastigi, 7. tl., samstarf um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir og 8. tl., búsetuúrræði fyrir heimilislausa með fjölþættan vanda.

Gunnar Einarsson, ræddi 6. tl., samstarf um uppbyggingu á sérskóla á grunnskólastigi. Þá ræddi Gunnar samstarf og sameiningu sveitarfélaga.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og ræddi samstarf og sameiningu sveitarfélaga.

Almar Guðmundsson, tók til máls og ræddi samstarf og sameiningu sveitarfélaga.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls og ræddi samstarf og sameiningu sveitarfélaga.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og ræddi samstarf og sameiningu sveitarfélaga.

Ingvar Arnarson, tók til máls og ræddi samstarf og sameiningu sveitarfélaga.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201214

11

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 25/2 ´22.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., áhættumat hjá Strætó bs., 4. tl., tillögu að hagræðingu í leiðakerfinu árið 2022, 6. tl., stöðu á innleiðingu nýs greiðslukerfis og 8. tl., nýja tegund skilta á stoppustöðvum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2203335

12

Tillaga Garðabæjarlistans um að stofnanir bæjarins fái fjárframlög til að halda árshátíð/skemmtun í smærri hópum.

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að veita stofnunum bæjarins fjárframlög til að geta haldið árshátíð hver í sínu lagi.“

Greinargerð.

Vegna Covid 19 hefur ekki verið hægt að halda árshátíð bæjarins síðustu þrjú ár. Til að koma til móts við stofnanir bæjarins er nauðsynlegt að veita þeim fjármagn til að hver eining geti haldið sína árshátíð. Starfsmenn hafa sýnt einstaka þrautseigju og verið lausnamiðaðir á þessum fordæmalausu Covid-tímum og því tilvalið að sýna þeim þakklæti í verki með fjárframlagi til “árshátíðarhalds?.

Gunnar Einarsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að fresta afgreiðslu tillögunnar og taka hana til umræðu í haust þar sem verið er að skoða möguleika á að halda sameiginlega árshátíð bæjarstarfsmanna í haust.

Tillaga Gunnars var samþykkt með átta atkvæðum (AG,ÁHJ,GVG,JS,GE,GS,SS,ÞGR) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og ræddi afgreiðslu tillögunnar.

Gunnar Valur Gíslason ræddi afgreiðslu tillögunnar.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi afgreiðslu tillögunnar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi afgreiðslu tillögunnar.

Málsnúmer 2203345

13

Tillaga um hinsegin fræðslu og heilsueflandi samfélag.

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:

„Bæjarfulltrúi Sara Dögg leggur til að bæjarstjórn óski eftir gerð þjónustusamnings við Samtökin ´78 um hinsegin fræðslu sem nýtist sem flestu starfsfólki Garðabæjar og um leið börnum og ungmennum. Lögð verði áhersla á þrenns konar inntak samnings.

Í fyrsta lagi. Framkvæmd markvissrar hinsegin fræðslu til ungmenna á grunnskólastigi. Í öðru lagi fræðslu fyrir starfsfólk Garðabæjar þar sem starfsfólki leik- og grunnskóla er veitt sérstök fræðsla en einnig þar sem boðið verður upp á hinsegin fræðslu fyrir allt starfsfólk.

Í þriðja lagi að Garðabær veiti íþróttafélögum í sveitarfélaginu sérstakan stuðning til þess að bjóða upp á hinsegin fræðslu til sinna iðkenda, þjálfara og starfsfólks.

Uppræting fordóma er eina leiðin til þess að hinsegin fólk njóti öryggis í samfélaginu. Garðabæjarlistinn vill að markviss hinsegin fræðsla verði eitt þeirra markmiða sem falla undir heilsueflandi samfélag, enda er andleg líðan stór og mikilvægur þáttur góðrar heilsu.“

Greinagerð

Tillagan sem hér er lögð fram er lögð fram í 3ja sinn og nú af gefnu tilefni þar sem nú liggur fyrir Alþingi tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022-2025

Mannréttindi eru ekki sjálfsögð. Þetta veit hinsegin fólk, sem hefur barist fyrir réttindum sínum áratugum saman. Á Íslandi hefur mikill árangur náðst í þeirri baráttu, þótt enn sé langt í land á mörgum sviðum. Þrátt fyrir breytta tíma mætir hinsegin fólk enn fordómum og jafnvel andúð í samfélaginu. Nýlegar rannsóknir, m.a. á Íslandi, sýna að hinsegin ungmenni eru líklegri til þess að glíma við kvíða og þunglyndi auk þess sem þau íhuga frekar að skaða sig og að stytta sér aldur. Þessi staða er óásættanleg og Garðabær er í góðri aðstöðu til þess að leggja sitt af mörkum til þess að bæta líðan barna og ungmenna í bænum og jafnframt stuðla að opnara, fordómalausara og heilbrigðara samfélagi.

Fræðsla upprætir fordóma. Hinsegin fólk sem fær eindreginn stuðning frá fjölskyldu og nærsamfélagi á mun auðveldara uppdráttar en þau sem mæta mótlæti. Fræðsla um hinsegin mál er mikilvæg fyrir allt samfélagið, en ekki síst fyrir hinsegin ungmenni, hinsegin foreldra, börn hinsegin fólks og aðra aðstandendur, kennara, leiðbeinendur og aðra sem þjónusta þessa hópa. Hinsegin fræðsla kemur öllum þessum hópum vel. Bæði eykur það lífsgæði hinsegin fólks að það sé almenn meðvitund um málefni þeirra í nærsamfélaginu, en jafnframt eykur það öryggi fagfólks til þess að takast á við málefni sem eru þeim e.t.v. framandi.

Hinsegin málefni eru flókin og margslungin auk þess sem þau eru síbreytileg. Þess vegna er ákaflega mikilvægt að þau sem koma að fræðslu um hinsegin mál séu sérfræðingar. Því legg ég til að Garðabær leggi einnig áherslu á það að hinsegin fræðsla þarf að eiga sér stað óháð viðhorfum einstaka stjórnenda. Það má ekki vera minnsti möguleiki á því að fordómar nái að leita sér skjóls. Hinsegin fræðsla hefur hingað til verið valkvæð í skólum Garðabæjar, en það þýðir að færri fá notið hennar en ella. Hinsegin fræðsla á einfaldlega erindi við öll ungmenni og allt starfsfólk bæjarins. Því óska ég eftir því og vona einlæglega að Garðabær lýsi yfir fullum stuðningi yfir réttindabaráttu hinsegin fólks og sýni í verki að við tökum hinsegin fræðslu alvarlega. Með því að óska eftir þjónustusamningi við Samtökin ´78 sendum við skýr skilaboð um að Garðabær sé upplýst samfélag þar sem öllum manneskjum er sýnd virðing.

Því legg ég fram tillögu sama efnis í 3ja sinn með einlægri von um að meirihlutinn taki stærri skref til að styðja við hinsegin einstaklinga og þeirra velsæld í samfélagi fjölbreytileikans.

Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls um framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um framkomna tillögu.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls um framkomna tillögu.

Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu.

Gunnar Einarsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til fræðslu- og menningarsviðs.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um framkomna tillögu

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögunni til fræðslu og menningarsviðs.

Málsnúmer 2108710

14

Ársreikningur Garðabæjar 2021 - (fyrri umræða)

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2021. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Gunnar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins.

Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lýsti ánægju með góða útkomu í ársreikningi Garðabæjar árið 2021 og færði starfsmönnum bæjarins þakkir bæjarstjórnar fyrir þeirra þátt í þessari góðu niðurstöðu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2021 til síðari umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 7. apríl 2022.