Tillaga um hinsegin fræðslu og heilsueflandi samfélag.
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
40. fundur
Tillaga Garðabæjarlistans lögð fram til kynningar og umræðu. Í grunnskólum Garðabæjar fá allir nemendur og starfsfólk hinsegin fræðslu. Fræðslan fer ýmist fram af kennurum, námsráðgjöfum, skólahjúkrunarfræðingum eða utanaðkomandi aðilum eins og Samtökunum 78. Skólanefnd vísar tillögunni til fræðfræðslusviðs til frekari umræðu með skólastjórnendum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
5. (901). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Bæjarfulltrúi Sara Dögg leggur til að bæjarstjórn óski eftir gerð þjónustusamnings við Samtökin ´78 um hinsegin fræðslu sem nýtist sem flestu starfsfólki Garðabæjar og um leið börnum og ungmennum. Lögð verði áhersla á þrenns konar inntak samnings.
Í fyrsta lagi. Framkvæmd markvissrar hinsegin fræðslu til ungmenna á grunnskólastigi. Í öðru lagi fræðslu fyrir starfsfólk Garðabæjar þar sem starfsfólki leik- og grunnskóla er veitt sérstök fræðsla en einnig þar sem boðið verður upp á hinsegin fræðslu fyrir allt starfsfólk.
Í þriðja lagi að Garðabær veiti íþróttafélögum í sveitarfélaginu sérstakan stuðning til þess að bjóða upp á hinsegin fræðslu til sinna iðkenda, þjálfara og starfsfólks.
Uppræting fordóma er eina leiðin til þess að hinsegin fólk njóti öryggis í samfélaginu. Garðabæjarlistinn vill að markviss hinsegin fræðsla verði eitt þeirra markmiða sem falla undir heilsueflandi samfélag, enda er andleg líðan stór og mikilvægur þáttur góðrar heilsu.“
Greinagerð
Tillagan sem hér er lögð fram er lögð fram í 3ja sinn og nú af gefnu tilefni þar sem nú liggur fyrir Alþingi tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022-2025
Mannréttindi eru ekki sjálfsögð. Þetta veit hinsegin fólk, sem hefur barist fyrir réttindum sínum áratugum saman. Á Íslandi hefur mikill árangur náðst í þeirri baráttu, þótt enn sé langt í land á mörgum sviðum. Þrátt fyrir breytta tíma mætir hinsegin fólk enn fordómum og jafnvel andúð í samfélaginu. Nýlegar rannsóknir, m.a. á Íslandi, sýna að hinsegin ungmenni eru líklegri til þess að glíma við kvíða og þunglyndi auk þess sem þau íhuga frekar að skaða sig og að stytta sér aldur. Þessi staða er óásættanleg og Garðabær er í góðri aðstöðu til þess að leggja sitt af mörkum til þess að bæta líðan barna og ungmenna í bænum og jafnframt stuðla að opnara, fordómalausara og heilbrigðara samfélagi.
Fræðsla upprætir fordóma. Hinsegin fólk sem fær eindreginn stuðning frá fjölskyldu og nærsamfélagi á mun auðveldara uppdráttar en þau sem mæta mótlæti. Fræðsla um hinsegin mál er mikilvæg fyrir allt samfélagið, en ekki síst fyrir hinsegin ungmenni, hinsegin foreldra, börn hinsegin fólks og aðra aðstandendur, kennara, leiðbeinendur og aðra sem þjónusta þessa hópa. Hinsegin fræðsla kemur öllum þessum hópum vel. Bæði eykur það lífsgæði hinsegin fólks að það sé almenn meðvitund um málefni þeirra í nærsamfélaginu, en jafnframt eykur það öryggi fagfólks til þess að takast á við málefni sem eru þeim e.t.v. framandi.
Hinsegin málefni eru flókin og margslungin auk þess sem þau eru síbreytileg. Þess vegna er ákaflega mikilvægt að þau sem koma að fræðslu um hinsegin mál séu sérfræðingar. Því legg ég til að Garðabær leggi einnig áherslu á það að hinsegin fræðsla þarf að eiga sér stað óháð viðhorfum einstaka stjórnenda. Það má ekki vera minnsti möguleiki á því að fordómar nái að leita sér skjóls. Hinsegin fræðsla hefur hingað til verið valkvæð í skólum Garðabæjar, en það þýðir að færri fá notið hennar en ella. Hinsegin fræðsla á einfaldlega erindi við öll ungmenni og allt starfsfólk bæjarins. Því óska ég eftir því og vona einlæglega að Garðabær lýsi yfir fullum stuðningi yfir réttindabaráttu hinsegin fólks og sýni í verki að við tökum hinsegin fræðslu alvarlega. Með því að óska eftir þjónustusamningi við Samtökin ´78 sendum við skýr skilaboð um að Garðabær sé upplýst samfélag þar sem öllum manneskjum er sýnd virðing.
Því legg ég fram tillögu sama efnis í 3ja sinn með einlægri von um að meirihlutinn taki stærri skref til að styðja við hinsegin einstaklinga og þeirra velsæld í samfélagi fjölbreytileikans.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til fræðslu- og menningarsviðs.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls um framkomna tillögu
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögunni til fræðslu og menningarsviðs.